Kiwanisfréttir - 01.12.1994, Blaðsíða 5
íslenska umdæmið
Nýr starfsmaður umdæmisins
Nú í haust var ráðinn nýr starfs-
maður á skrifstofu Kiwanis-
umdæmisins Island - Færeyjar. Sá
heitir Hermann og er Þórðarson, fy rr-
verandi umdæmisstjóri úr Eldborg
Hafnarfírði. Hermann tók til starfa
þann 5. desember síðastliðinn.
K-fréttir tóku hús á Hermanni og
spurðu hann fyrst í hverju starf hans
væri aðallega fólgið og hvernig það
nýttist hreyfingunni.
„Segja má að þetta sé tilraunastarf,
semmunimótastafreynslunni. Egmun
sjá um daglegan rekstur skrifstofunnar,
annast póstinn, senda bréf og þess háttar.
Starfið mun létta verulega á
stjórnarmönnum umdæmisins, því ég
mun sinna ýmsum verkefnum fyrir þá.
Einnig geta forsetar og ritarar í
klúbbunum fengið hjá mér aðstoð við
ýmis verkefni, svo sem við að þýðabréf.
Utgáfustarf mun vera ofarlega á
mínum verkefnalista, meðal annars
fjölföldun og frágangur á handbókum,
vinna við félagatal Kiwanis og
undirbúningur fyrir prentun á því riti,
auk ýmissa fræðslugagna.
Núna hef ég nýlokið við að undirbúa
til prentunar handbók fyrir forseta og
svæðisstjóra. Verður henni dreift nú
fyrir áramót. Þessi handbók er að koma
út í fyrsta sinn á íslensku. Hún er þýdd
af Ingvari Magnússyni, erlendum ritara
umdæmisins. Bókin hefur að geyma
ýmsar handhægar upplýsingar fyrir
embættismenn, raunverulega allt, sem
slíkir menn þurfa að vita. Þar eru enn-
fremur lög umdæmisins og klúbbanna,
dagbók og eyðublöð. Ritið er ekki
hugsað til fræðslu, heldur erþví ætlað að
vera hjálpargagn."
Til að byrja með verður skrifstofan
opin tvo daga í viku, á mánudögum
kl. 13:00 - 17:00 og á fimmtudögum
kl. 16:00 - 20:00. Með þeirri tíma-
setningu er reynt að koma til móts við
þá, sem ekki komast í síma á daginn.
Síminn á skrifstofunni er 91-883636 og
faxnúmerið er 91-880036. Einnig er
hægt að hafa samband við Hermann
heima í síma 91-51265, séu menn með
áríðandi mál.
En hvernig líst Hermanni á nýja
starfið?
„Það leggst mjög vel í mig. Þetta er
meira og minna það, sem ég hef verið að
vinna fyrir umdæmið síðastliðin 25 ár.
Nú er þetta opinbert starf en ekki
tómstundir. Eg eránægður með þá breyt-
ingu, sem það veldur og er sannfærður
um að starfið muni gagnast Kiwanis-
hreyfíngunni. Svona starfsmann hefði
mátt ráða miklu fyrr, það hefði leyst
mikinn vanda.“
Kiwanisumdæmið
ísland - Færeyjar
Engjateigi 11, Reykjavík
Sími 91 - 883 636
Fax 91 - 880 036
KÍWANISFRÉTTIR
5