Kiwanisfréttir - 01.12.1994, Blaðsíða 9
Aðsendar greinar
KVEÐJA FRÁ
LANDSSAMBANDI SINAWIK
Ágætu Kiwanisfélagar.
Mér er það heiðurog ánægja að skrifa
nokkrar línur í blaðið ykkar.
Eftir því sem ég hef kynnst Kiwan-
ishreyfingunni s.l. 12 ár þá hugsa ég oft
til þess hvað ég gerði ef ég þekkti ekki og
væri félagi í Sinawik.
Við Sinawikkonur erum kannski ekki
í eins viðamiklum störfum og Kiwanis-
menn. En eitt er víst að þar sem Sina-
wikklúbbur starfar með Ki wanisklúbbi,
þar er mun blómlegra starf, eins og ég
veit af kynnum mínum af Si-
nawikklúbbum sem starfa með miklum
ágætum. MarkmiðokkaríSinawik erað
standa við hlið ykkar Kiwanisfélaga og
aðstoða ykkur eftir bestu getu. Kannski
þyrftum við að taka að okkur viðameiri
störf innan hreyfíngarinnar en þó er það
ekki víst, því samheldnin er mjög góð
eins og er.
Og svo megum við ekki gleyma því
að við Sinawikkonur værum ekki til í
þeirri mynd sem við erum nú ef engir
Kiwanisfélagar væru til.
Með bestu óskum til ykkar Kiwanis-
félgar um að þið haldið áfram ykkar
störfumíþjóðfélaginu, þvíekki veitiraf
að lýsa og lyfta upp samfélagi áeinh vern
Salmína S. Tavsen
formaður L.S.
hátt, en það gera störf ykkar svo
sannarlega.
Með Sinawikkveðju,
Salmína S. Tavsen
formaður L.S.
FRÁ FJÖLMIÐLAFULLTRÚA
Ágætu Kiwanisfélagar!
í upphafi starfsárs komið þið vonandi
hress og endurnærð til starfa í klúbb-
unum, eftirgottsumar, uppfull af nýjum
áherslum.
Síðasta starfsár var árangursríkt fyrir
okkur en við megum ekki sofna á verð-
inum, sókn er besta vörnin. Því er
nauðsynlegt fyrir alla Ki wanisfélaga að
vinna sem best saman að verkefnum
klúbbannaog gera starfið skemmtilegra.
Þáþurfa klúbbarnir að gera meira af því
að heimsækja aðra klúbba.
Fjölgun félaga ætti að vera
metnaðarfull stefnahvers klúbbmeðlims.
Það tryggir okkur stöðugan vöxt
hreyfingarinnar. Ástundi hverfélagiþá
stefnu, komumst við hjá stökkbreyt-
ingum og stefnum á fersleika í leik og
starfi. Gefum nýjumeinstaklingum, sem
við bjóðum inngöngu, tækifæri til að
hefja sig yfir hversdagsleikann og verða
virkir í öflugum líknar- og góðgerðar-
störfum. Slíkt gefur af sér skemmtileg
kynni og fjölskyldutengsl. Við finnum
samkennd með því að sinna þörfum
þeirra, sem á einhvern máta eiga bágt
eða eru útundan.
Aðalsteinn Aðalstcinsson,
fjölmiðlafulltrúi
Kiwanisfélagar verða að gera sér
grein fyrir að mikils er vænst af þeim.
Það ætti að hvetja þá til að vinna að
uppbyggingu og framförum í stað
skilningsleysis og andstöðu við góð
málefni.
Klúbbar hafa oft látið ógert að segja
frá stöðu okkar sem umhyggjusamri,
virkri og framsýnni hreyfingu, þar sem
unnið er af alúð að framgangi góðra
markmiða. Stundum er það af lítillæti,
en Kiwanishreyfingin þarf að koma sér
á framfæri, eins og kaupmanninum er
nauðsynlegt að auglýsa vöru sína. Með
öflugu upplýsingastreymi samvisku-
samra fjölmiðlafulltrúa klúbbanna
sýnum við fram á nauðsyn öflugs líknar-
og góðgerðastarfs. Það vekur athygli á
Ki wanis fyrir brautryðjendastörf og fyrir
hvað hreyfingin stendur. Um leið gæti
slíkt orðið til þess að vekja áhuga
almennings á að gerast Kiwanisfélagar
og aukið við vinahópinn, sem starfar
saman við leik og störf, í fersku,
kærleiksríku og glaðværu andrúmslofti
góðs Kiwanisklúbbs.
Klúbbforsetar, það er áskorun mín til
ykkar, að þið sjáið til þess að fjöl-
miðlafull trúar klúbbanna sinni skyldum
sínum við klúbbfélaga og byggðarlagið
með stöðugum upplýsingum til fjöl-
miðla. Það gefur starfinu kraft og
árangur.
Fjölm iölaful lírú iKiwanis
Aðalsteinn Aðalsteinsson
KÍWANISFRÉTTIR
9