Kiwanisfréttir - 01.12.1994, Qupperneq 10
Símaspjall
„Þingfundurinn haldinn í skólastofu“
Guðni Grímsson, Helgafelli í spjalli við K-fréttir
K-fréttir hafa tekið upp þá ný-
breytni þetta starfsár að vera með
símaspjall í hverju blaði við ein-
hvern Kiwanisfélaga sem hefur
verið mörg ár í hreyfingunni.
Blaðið hringdi í Guðna Grímsson
félaga í Helgafelli Vestmanna-
eyjum og varð hann góðfúslega
við þeirri ósk okkar um að svara
nokkrum spurningum og þökkum
við honum fyrir.
Hvenær gekkst þú í klúbbinn?
„Árið 1971 gekk ég í Kiwanis-
klúbbinn Helgafell en forseti klúbbsins
þá var Erlendur Eyjólfsson“.
Hvernig var hreyfingin og klúbbar-
nir á þeim tíma?
„Ki wanis var mjögsterkt afl þegarég
var að byrja og fannst mér klúbbarnir
mjög sterkirhéráSuðurlandi. Á þessum
árum var mikið um heimsóknir á milli
klúbba og samband við móðurklúbb
mjög gott“.
Fyrsta umdæmisþingið?
„Fyrsta umdæmisþingið sem ég fór á
var á Hornafirði árið 1975. Þá var ég
ritari í stjórn Viktors Helgasonar. Það
var mikill lærdómur fyrir mann að koma
áfyrstaþingið. Þaðvarhaldiðískólanum
á Höfn og var ekki tjölmennara en það
að þingfundurinn var haldinn í
skólastofu. Ekkimanéghvaðamál voru
efst á baugi á þessu þingi, en ég man vel
eftir umræðu sem var um gjöld til hreyfin-
garinnar og einn ágætur félagi af
Suðurnesjum ræddi mikið um hækkun
sem nam örfáum krónum. Mjög
skemmtilegur andi var á þessu þingi
enda nær allir þingfulltrúar í gistingu á
Hótel Höfn og því samgangur inikill“.
Þingið í Vestmannaeyjum?
„UmdæmisþingiðíVestmannaeyjum
árið 1983 er mér enn í fersku minni enda
var ég þá forseti Helgafells og einnig í
þingnefnd. Þingið var haldið í Kiwan-
ishúsinu sem þá var nýbúið að stækka og
var það fyrsta notkun á stóra fundarsal-
num. Á ýmsu gekk með undirbúning
þingsins og held ég að reynsluleysi hafi
verið okkar versti óvinur, en allt
bjargaðist þetta á síðustu stundu þó.
Gisting á þessu þingi var þó sér kapítuli
því ekki var margra kosta völ. Eg veitþó
að þegar minnst er á „Hótel HB“ þá setji
hroll að sumum en aðrir minnast þess
Guðni Grímsson
sem skemmtilegs kafla og á ég þar við
félaga frá Súlum Ólafsfirði sem sváfu í
flatsæng í einum stórum sal. Mjög margir
gistuíheimahúsumhjáKiwanisfélögum
og veit ég að þá myndaðist víða kunn-
ingsskapur sem enn stendur. Á þinginu
í Vestmannaeyjum var trygginga-
sjóðurinn stofnaður“.
Eftirminnileg atvik?
Þaðsem helst kemurupp í hugaminn
er frá árinu 1975 er ég fór í ferð til
Gullfoss og Geysis með fulltrúum úr
Evrópu ogheimsstjórn. í lokferðarinnar
var komið við í sumarbússtað Páls H.
Pálssonar en hann stendur á Kúanesi við
Þingvallavatn, þar sem tekið var á móti
gestum af mikilli reisn. Þegar verið var
að útskýra fyrir erlendu gestunum
muninn á nafninu Kúanes og Kiwanis,
því Kiwanis á ensku er borið fram sem
Kúvanis. Einnigerógleymanlegur upp-
gangur klúbbsins í Eyjum og bygging
Kiwanishússins þar og væri það eitt efni
í stóra bók“.
Viðhorf til blandaðra klúbba?
Þar hef ég ákveðna skoðun þ.e. ég er
algjölega mótfallinn þeim og er mér það
sársaukalaust þó ég sé kallaður þess
vegna karlremba.
Hver hafa verið þín embætti innan
umdæmisins?
„Ég var forseti míns klúbbs 1982-
1983 og erþað ómetanleg og ánægjuleg
reynsla að vera í forsvari fyrir sínum
klúbbi og einnig tel ég það vera mjög
þroskandi fyrir alla sem taka að sér það
starf.
Svæðisstjórivarég 1988-1989 ístjórn
Braga Stefánssonar. S væðisstjórastarfið
er mjög krefjandi, sérstaklega þegar um
víðfemt svæði eins og Sögusvæðið erað
ræða, en það er frá Hornafirði til
Þorlákshafnar. Þar á milli er hátt í 500
km. Það var gaman að vera Svæðisstjóri
því klúbbarnir stóðu sig vel og starfið
var mjög gott.
Golfnefnd. Þáerkomiðaðhobbíinu,
þar á maður skemmtilegar endurminn-
ingar með góðum félögum. Starfið í
nefndinni er skemmtilegt og þar leggur
maður metnað sinn í að allt fari sem best
fram en mætingin á golfmótið í Eyjum á
síðastliðnu sumri olli mér vonbrigðum.
Vonandi sjá Kiwanisfélagar sér fært að
mæta vel á golfmótin þó að þau séu
haldin utan stór-Reykjavíkursvæðisins,
því vinna, umstangið og kostnaður
10
KÍWANISFRÉTTIR