Kiwanisfréttir - 01.12.1994, Blaðsíða 16
||p) Fréttir úr klúbbstarfinu
KIWANISKLÚBBURINN
HERÐUBREIÐ
„Valgeir og gemlingarnir“ á heimaréttarkvöldi 12. mars 1994.
Valgeir Illugason, Ragnar Jónsson, Friðrik Steingrímsson og
Siguður Baldursson
Starfsemi Herðubreiðar
gekk að mestu með hefð-
bundnum hætti á síðast vetri.
Fundamætingar voru ekki
nógu góðar en þær voru
aðeins 65,5%. Fyrirlesara
fengum við 6 sinnum á fundi
og tjölluðu þeir m.a. um
fiskeldi, Kyrrahafslaxinn,
uppbyggingu sjálfstrausts og
málefni barna m.a. með tilliti
til barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna. Styrkirvoru veittir
t.d. til Krabbameinsfélags
Suður-Þingeyjarsýslu og
keypt bjöllukerfi í hinn nýja
Reykjahlíðarskóla.
Hið árlega heimarétta-
kvöld Herðubreiðar var
haldið 12. mars og mættu 28
gestir auk klúbbfélaga. Að
venju var á boðstólum sér-
mývetnskurmaturs.s. siginn
silungur, fjallagrasaystingur
með mjólk og slátri, kæst
andaregg, hverabakað rúg-
brauð og kjötréttur.
Meðal skemmtiatriða var
Ijóðalestur og harmonikku-
leikur en þá léku „Valgeir og
gemlingarnir". Á eftir var
stiginn dans við undirleik
þeirra og skemmti fólk sér
ljómandi vel. Það er von
okkar að sjá ennþá fleiri gesti
á næsta heimaréttakvöldi sem
verður haldið 25. mars í vetur.
Heimboð aldraðra tókst
mjög vel að vanda en það er
árleg skemmtun og matar-
veisla sem klúbburinn býður
Mývetningum 70 áraog eldri
til.
Heldur mætti þunnskipað
lið á sumarhátíðina í sumar
frá klúbbnum en nokkuð vel
var mætt á umdæmisþingið
því þar mættu alls 5 Herðu-
breiðarfélagar.
Starfið í haust hófst með
stjórnarskiptafundi sem var
sameiginlegur með Faxa og
Skjálfanda og var haldinn í
Hótel Reynihlíðföstudaginn
7. október. Á hann mætti
meðal góðra gesta Grétar J.
Magnússon, umdæmisstjóri,
sem þótti viðeigandi að mæta
fyrst á fund hjá Herðubreið
nýkominn heim frá em-
bættistöku í Bandaríkjunum
þar eð sá klúbbur stakk
upphaflega upp á honum til
að verða umdæmisstjóri.
Kristinn Jónsson svæðis-
stjóri skipti um stjórnir í
klúbbunum af röggsemi og
myndarskap ásamt með
hjálpurum eftir ágæta
hvatningarræðu og ráðlegg-
ingar og einnig fór hann yfir
markmið Kiwanis 1994-
1995.
Grétar rakti helstu atriði í
undirbúningi sínum fyrir
embætti umdæmisstjóra,
ræddi um Kiwanisstarfið vítt
og breitt, gaf góð ráð og h vatti
tildáða. Þáafhentihannhin-
um nýju forsetum klúbbanna
Sigurjóni Má Péturssyni,
Herðubreið, Marinó Eggerts-
syni, Faxa, og Óttari Viðari,
Skjálfanda, merkin „íslands
- Færeyjar“ og „Börnin fyrst
og fremst“ og að auki fána
umdæmissins. Einnig sagði
hann nokkuð frá Hixson-
orðunni og afhenti Jóhannesi
Steingrímssyni Herðubreið
merki „Foundation“ en hann
erformaðurnýklúbbanefndar
og í J-verkefnisnefnd svo í
mörg horn hefur hann að líta
á starfsárinu. Mun hann ör-
ugglega standa sig vel eins
og í öðrum Kiwanisstörfum
gegnumárin. Sanniðbaratil.
Margt fleira gerðist á
þessum ágæta fundi og á eftir
áttu þeir sem ekki þurftu að
halda strax heimleiðis saman
notalega stund og ánægj ulega
fram á nótt.
Heldur hefur fækkað í
klúbbnum okkar því á síðasta
vetri og í haust hafa sex
félagar hætt en aðeins einn
nýr komið í staðinn svo þörf
er á markvissum aðgerðum
til að fjölga aftur í honum.
Ekki hefur margt gerst
ennþá á þessu nýbyrjaða
starfsári utan venjubundinna
starfa.
Að lokum óska ég öllu
Ki wanisfólki og mökum þess
heilla og velfarnaðar í starfi
og leik með von um gott og
árangursríkt starf í vetur og
góð samskipti milli klúbba í
umdæminu.
Með bestu
Kiwaniskveðjum
Finnur Baldursson
blaðafulltrúi
Embættismenn þriggja klúbba ásamt Grétari Umdæmisstjóra
og Kristni Svæðisstjóra á stjórnarskiptafundi
7. október 1994
16
KÍWANISFRÉTTIR