Kiwanisfréttir - 01.12.1994, Síða 21
Fréttir úr klúbbstarfinu
KIWANISKLÚBBURINN
HRÓLFUR
Unniö við að taka sundlaugina niður
“Samtaka
nú„
Laugardaginn 20. nóv-
ember 1994 komum við
saman nokkrir kiwanis-
félagar, úr Hrólfi áDalvíkog
SúlumíÓlafsfírði, viðgömlu
sundlaugina á Dalvík. Til-
gangur þessa var ekki að taka
sundsprett, heldur vorum við
þarna saman komnir til að
fjarlægja gömlu laugina.
Þann 2. október s.l.
vígðum viðDalvíkingarnýja
ogglæsilegasundlaugogDal-
víkurbærvarsvorausnarlegur
að gefa Kirkjumiðstöðinni að
Vestmannsvatni dúk sund-
laugarinnar, nuddpott, allar
dælur og hreinsibúnað gegn
því að allt yrði tjarlægt og
fyllt upp í grunninn. Kiw-
anisklúbbarniráÓðinssvæði,
undir forystu séra Svavars
Jónssonar úr Súlum, tóku
höndum saman að uppbygg-
ingu aðstöðunnar að Vest-
mannsvatni og er ætlunin að
setja “nýju„ sundlaugina og
nuddpottinn ásamt tilheyr-
andi upp næsta vor.
Viðmættumumkl. 10:00
um morguninn og byrjuðum
að vinnaundirstjórn séra Jóns
Helga Þórarinssonar prests
hér á Dalvík. Óhætt er að
segja að hann hafi virkjað
æðri máttarvöld því dagana á
undan var hörkufrost en er
við byrjuðum að vinna hafði
þiðnað upp og þurftum við
því ekki að höggva okkur leið
í gegn.
Síðan létum við hendur
standa fram úr ermum, rifum
hellurnarkringumlauginaog
náðum þannig að komast að
festingum dúksins, losuðum
hann og brutum saman. Þessu
næst var allthíft upp á vörubíl
og keyrt í hús þar sem búið
var að fá geymslu undir dúk-
inn, pottinn og fylgihluti í
vetur.
Að lokum bauð svo einn
félaginn öllum hópnum, 12
manns, í mat á eftir og var
það vel rómað.
Vinna þessi sýnir að með
samvinnu og smá hjálp að
ofan er allt hægt að gera.
Það er von mín að jafn vel
gangi í vor þegar við ætlum
að setja sundlaugina upp
austur á Vestmannsvatni.
Með Kiwaniskveðju,
Björn Björnsson
forseti Hrólfs á Dalvík
Eiturlyfjavísir kynntur
SæmundurSæmundsson, um-
dæmisstjóri og Jakob Björnsson,
bæjarstjóri á Akureyri, ásamt
hjólreiðaköppunum sem tóku það
að sér að hjóla hringveginn til að
vekjaathygli áeiturlyfja\ ísi þeim
sem Kiwanismenn sendu inn á
hvert heimili á landinu.
Þessum ungu mönnum er
Kiwanishreyfingin þakklát fyrir
þeirra þátt í kynningunni.
Þessi mynd var tekin, þegar
kapparnir komu við á umdæmis-
þinginu á Akureyri í ágúst s.l.
KÍWANISFRÉTTIR
21