Kiwanisfréttir - 01.12.1994, Page 24
Viðurkenning
„Heiðursfylkingin“
(Legion of Honor)
VIÐURKENNING FYRIR
LANGVARANDISTÖRF
Eru einhverjir Kiwanisfélagar í ykkar hópi
sem hafa starfað í tuttugu og fimm ár? Það er
hugsanlegt því að fyrsti Kiwanisklúbburinn
í Evrópu var stofnaður árið 1963 (í Vín, Aus-
turríki), og Kiwanishreyfingin hefur breiðst
út víða síðan þá.
Hver Kiwanisfélagi sem hefur starfað í
minnst aldarfjórðung á rétt á mikilsvirtri
viðurkenningu: verðlaunum „Heiðurs-
fylkingar“ Kiwanishreyfingarinnar. Þessi
viðurkenning er hönnuð með það fyrir
augum að Kiwanisklúbbar geti heiðrað þá
félaga sína sem lengi hafa fórnað tíma sínum
og kröftum fyrir Kiwanishreyfinguna og
samfélagið.
Einnig má veita þessa viðurkenningu þegar
Kiwanisfélagar hafa starfað í þrjátíu, þrjátíu
og fimm, fjörutíu, fjörutíu og fimm, fimmtíu,
fimmtíu og fimm, sextíu og sextíu og fimm ár.
Það er ekki nauðsynlegt að tíminn sé
samfelldur eða að starfað hafi verið í sama
klúbbi allan tímann.
Hver er viðurkenning félaga í Heiðurs-
fylkingunni? Hægt er að fá falleg barmmerki
og skjöl til að afhenda þeim sem til þessa
heiðurs hafa unnið. Barmmerkin eru úr
hvítagulli og hönnuð þannig að þau sína
æðsta embætti sem Kiwanisfélaginn hefur
gengt: félagi, fyrrverandi forseti, fyrrver-
andi ritari, fyrrverandi féhirðir, fyrrverandi
svæðisstjóri, fyrrverandi umdæmisstjóri,
fyrrverandi stjórnarmaður í umdæmisstjórn,
eða fyrrverandi stjórnarmaður í alþjóða-
stjórn.
Sérstakt skjal fylgir með barmmerkjunum,
þar sem skráður er fjöldi ára sem
Kiwanisfélaginn hefur starfað. Skjalið er
undirritað af heimsforseta og alþjóða-
ritaranum og gert er ráð fyrir undirskriftum
klúbbforseta og klúbbritara.
Kiwanisfélagar teljast hafa unnið til
þessara viðurkenningar þegar innan við sex
Hver Kiwanisfélagi sem
hefur starfað í minnst
aldarfjórðung, á rétt á
viðurkenningu.
Sérstakt skjal fylgir með
barmmerkjunum, þar sem
skráður er fjöldi ára sem
Kiwanisfélaginn hefur
starfað. Skjalið er undirritað
af heimsforseta og
alþjóðaritara og gert er ráð
fy rir undirskriftum
klúbbforseta og klúbbritara.
£-lV [.KCION OFHONORi*,:).
AXll HH ir rVltTIIKK KXUII V; IMIN «
Kiwíinis Qub
mánuðir eru til þess dags sem tilskyldum
árafjölda er náð. Það er hefð fyrir því að þeir
sem hljóta viðurkenningu „Heiðurs-
fylkingarinnar“ fái hana afhenta á fyrsta
klúbbfundi eftir að tilskyldum tíma er náð.
Eða, ef klúbbur hans æskir þess, getur hann
afhent viðurkenninguna á stofnundar-
afmæli, afmælisdegi Kiwanishreyfingar-
innar eða á síðasta klúbbfundi starfsársins.
Hægt er að panta barmmerki og skjöl
Heiðursfylkingarinnar hjá birgðadeild
alþjóðaskrifstofunnar í Indianapolis, Indi-
ana, eða eftir pöntunarlista Kiwanis-
lagersins. Hverri pöntun verður að fylgja
listi með nafni viðtakanda, fjölda ára í
hreyfingunni og æðsta embætti sem hann
hefur gengt innan hennar. Hægt er að panta
merkin og skjölin saman eða sitt í hvoru lagi.
(Þýtt úr BKO Bulletin for Kiwanis Officers, -
Fréttablaði fyrir embættismenn Kiwanis
hreyfingarinnar.) H.Þ.
24
KÍWANISFRÉTTIR