Kiwanisfréttir - 01.12.1994, Síða 26
Vísnahornið
Hér koma nokkrar vísur er urðu til á síðasta
umdæmisþingi á Akureyri. í þriðju vísu er
minnst á frumkvöðul og frumburð og er þar átt
við undirritaðan og Grétar en undirritaður mun
hafa átt upptökin að því að gera hann að
umdæmisstjóra.
Umdæmisþingið með pompi og prakt
við Pollinn með gleði er haldið í ár
málefni reifuð og margt fram er lagt
mögnuð upp hreyfing til góðverka klár.
Eiturlyfjavísis vaska lið
vel um landið kynnir málefnið
hringveginn þeir hraustir saman hjóla
hreyfing okkar á þá mun nú stóla.
Frumkvöðull sendir núfrumburði Ijóð
og framtíðar óskirnar bestu
stattu þig skínandi strákur með þjóð
sem stendur við bak þitt affestu.
Grétar við taumunum tekur í haust
treystum við honum hið besta
efþekkjum við kappann þá lætur ei laust
lausn nema náist aðfesta.
Sæmundur endar nú ár sitt í haust
sem umdæmisstjóri góður
starfsemi frábær og stórgóð afhlaust
stendur því uppi hans hróður.
Finnur Baldursson
Herðubreið
Lagakrókurinn
Umsjón:
Laganefnd Isl. umdæmisins
Hermann Þórðarson, formaður
Heimsstjórn samþykkir breytingar á miklvægri starfsreglu
Ritnefnd hefur ákveðið í samráði við Hermann
Þórðarson formann Laganefndar að vera með fastan
þátt í blaðinu sem fjallaði um lög og reglugerðir og sem
Ki wanisfélagar gætu sent spurningar til og fengið svör
við í blaðinu. Er það von okkar að þessum dálki verði
vel tekið og hann notaður af Kiwanisfélögum.
Starfsregla 319.5 - „Hálfsársathugun á klúbbum með
færri en tíu félaga“ - hefur verið endurskoðuð og heitir nú
„Arleg athugun áklúbbum meðfœrri enfimmtánfélaga. “
Þessi breyting varsambykktáfundiheimsstjórnarímaís.l.
og tók gildi samstundis.
Breytingin byggist á þeirri skoðun að könnun á félaga-
fjölda klúbba ætti aðeins að fara fram einu sinni á ári
hverju,þannigaðviðkcmandiklúbbar,svæði,eðaumdæmi,
fái það sem eftir lifir starfsársins færi á að snúa dæminu
við. Áðurliðuaðeinssexmánuðirþartilrefsiaðgerðirtóku
gildi.
Sem leiðtogi klúbbs, svæðis eða umdæmis, ættir þú að
hafa eftirfarandi atriði í huga varðandi hina breyttu
starfsreglu:
Þann 15. desemberhversstarfsárs, munalþjóðaritarinn
senda aðvörun til þeirra klúbba sem samkvœmt
septemberskýrslu telja færri en fimmtán félaga (sem er
brot á starfsreglu 319.le). Hver klúbbur hefur þá þrjátíu
daga til þess að bregðast við tilkynningunni. Hinn
1. febrúar, verða viðkomandi klúbbar úrskurðaðir
„í ólagi“ og settir á skilorð.
Þaðan í frá, ef klúbbur fjölgar félögum í fimmtán eða
fleiri, verður litið á hann sem „klúbb í góðu lagi“ (nema
að í gangi gegn honum sé mál vegna brots á starfsreglu
319.1, sem ekki varðar félagatölu).
Efklúbburhelduróbreyttrifélagatölu(ellefutilfjórtán
félagar), veður hann áfram „í ólagi“ og á skilorði, Eða
með öðrum orðum, að klúbbur sem er „í ólagi“ getur verið
það í ótilgreindan tíma. Fyrri útgáfa starfsreglu 319.5
gerði þetta ekki Ijóst.
Ef á annað borð, samt sem áður, félagatala klúbbs
fellur niður fyrir tíu á komandi septemberskýrslu, getur
klúbburinn átt það á hættu að stofnskrá hans verði numin
úrgildieðaafturkölluðájanúar/febrúarfundi stjórnarinnar.
Þegar stjórnin samþykkti þessa breytingu var frestað
afgreiðslu allra málagegn klúbbum sem þá voru á skilorði.
Þeim var samt sem áður ráðlagt, að fjölga félögum í
minnst ellefu fyrir 30. september til þess að komast hjá
því að mál þeirra verði tekin fyrir á fundi stjórnarinnar í
febrúar 1995.
Á sama hátt voru klúbbar sem voru samkvæmt
marsskýrslu með félagatölu fyrir neðan ellefu, ekki
úrskurðaðir „í ólagi.“ En ef félagatala verður ekki komin
upp fyrirellefu á septemberskýrslu, verðaþeir úrskurðaðir
„í ólagi“ og settir á skilorð í febrúar.
26
KÍWANISFRÉTTIR