Morgunblaðið - 27.11.1963, Side 3
3
Miðvikudagur 27. nðv. 1963
MORGUNBLAÐIÐ
Dallas, 26. nóv. — (NTB)
NÆTURKLÚBBAEIG-
ANDINN Jack Ruby var í
dag opinberlega ákærður
fyrir morðið á Lee H. Os-
wald, sem talinn er hafa
myrt Kennedy, forseta. —
Það var saksóknarinn í
Texas, Henry Wade, sem
tilkynnti ákæruna og sagði
hann jafnframt, að mál
Ruby muni koma fyrir
kviðdóm 9. desember.
Ákæran hljóðar á morð
að yfirlögðu ráði.
• Lögfræðingur Ruby, Tom
Howard (52 ára), sagði frétta
mönnum, að hann myndi
byggja vörn sína á stundar-
geðtruflun, sem valdið hefði
því, að Ruby hefði ekki verið
ábyrgur gerða sinna, er hann
framdi morðið.
• Wade, saksóknari, sagðist
Þessar
Rub;
sogufrægu myndir (su neðri birtist á baksíðu blaðsins í gær) voru teknar þegar Jauk
Ruby skaut Oswald. Takið eftir grandvaraleysi lögreglumanna (efri mynd), og undrun þeirra
(neðri mynd). Aðeins sekúndubrot leið milli þess, sem myndirnar voru teknar.
Jack Ruby var í gær ákærður fyrir
morð að yfirlögðu ráði
ECviðdómur ræður öBBu um eðBi refsingar —
fyrrverandi starfsstúSka Ruby fullyrðir9 að
honum hafi verið greitt fyrir morðið
mundu leggjast gegn því, að
Ruby yrði látinn laus gegn
tryggingu, þar sem hér væri
um að ræða afbrot, sem kynni
að leiða af sér dauðarefsingu.
Sagðist Wade vonast til þess,
að mál Ruby fengi óhlutdræga
meðferð í réttinum.
• Ýmsir fréttamenn telja,
að kviðdómendur kunnu að
verða fyrir áhrifum af al-
menningi, og muni því hafa
tilhneigingu til _að beita ekki
harðri refsingu. í Texas er það
alveg í höndum kviðdómsins,
hvers konar refsingu er beitt,
og hve lengi, ef ekki er um
dauðarefsingu að ræða.
• Lögreglan í Dallas skýrði
frá þVí £ dag, að hún hefði
fundið enn eitt sönnunargagn
gegn Oswald. Hefðu klæðis-
agnir úr fötum hans fundizt á
skefti riffilsins.
^ Stúlka nokkur, sem unn-
ið hefur í næturklúbb
Rubys, en er nú leigubílstjóri,
lýsti því yfir við fréttamann
frönsku fréttastofunnar APF í
dag, að hún væri þess fullviss,
að Ruby hefði verið greitt fyr-
ir að myrða Oswald. Hún hló
að yfirlýsingu lögfræðings
Ruby, þess efnis, að nætur-
klúbbaeigandinn hefði þjáðst
af stundargeðtruflun. Sagði
stúlkan, að Ruby ætti til að
beita ofbeldi, en hann vissi
alltaf, hváð hann gerði. „Þeir
sem fólu honum verkið, munu
vernda hann — hann verður
ekki lengi í fangelsi“, sagði
stúlkan að lokum. Hún bað
fréttamanninn um að Iáta
nafns síns ekki getið.
I
stuttu máli
Oporto 24. AP. — Portugalsk-
nr togari fórst við norðurströnd
Portugals aðfaranótt mánudags.
SO sjómanna er saknað.
Helsingfors 25. 11. N.T.B. ____
Finnska stjórnin tilkynnti í dag,
að ekki væri áformað, að Finn-
land tæki þátt í störfum Evrópu-
ráðs Sameinuðu þjóðanna.
París 25. 11. NTB. — „Femina
verðlaunin" frönsku, að upphæð
5000, frankar voru í dag veitt
franska rithöfundinum Roger
Vrigni fyrir skáldsöguna „La-
nuitde mougins“.
Enn viða
sorg I gær
London, 26. nóv. - AP - NTB.
ÞJQÐARSORG var í írlandi í
úag, og var skólum, kvikmynda-
húsum og mörgum atvinnufyr-
irtækjum lokað. Minntust lands-
menn Kennedys, Bandaríkjafor-
seta, en hann var af írsku bergi
brotinn.
Víða um lönd voru í dag
haldnar minningarguðsþjónust-
ufj og víða tóku menn sér hlé
frá störfum. Þannig var í dag
frestað fundi landbúnaðarnefnd-
ar Efnahagsbandalags Evrópu,
sem fram átti að fara í Briissel.
Franska þjóðþingið kom í
dag saman til að minnast for-
setans látna, en þingið hefur
ekki komið saman, frá því and-
lát hans bar að höndum.
Tímabær spurning
Eftir forystugrein Tímans í
gær að dæma eru Framsóknarfor
ingjarnir farnir að velta því fyr-
ir sér, hver sé tilgangur flokks
þeirra í íslenzkum stjórnmálum.
Aðrir hafa áður velt þessari
spurningu fyrir sér og tíðum átt
erfitt með að finna við henni
viðhlítandi svar. Forystugrein
Tímans hefst á þessum orðum:
„Gerum ráð fyrir að ókunnur
útlendingur spyrði: Hvað er það
sem einkennir Framsóknarflokk-
inn og hefur gert hann svo lang-
lífan á sviði þjóðmálanna? —
Gerum ennfremur ráð fyrir að
fyrir svörum yrði einhver þeirra
traustu og góðu drengja, víðs
vegar um land, sem lengst og
bezt hafa lagt fram lið sitt til
að efla þessi samtök í heima-
byggð sinni í sveit eða við sjó.
Hvernig mundi hann þá svara?
Honum myncy í svari sínu áreið
anlega farast orð eitthvað á þessa
leið: Eitt aðaleinkenni Framsókn-
arflokksins er landnáms- og
landsbyggðarhugsjón hans. Hann
hefur orðið og mun enn verða
Ianglífur í landinu, af því að hann
trúir á landið og sýnir það í
verki.“
Magurt svar
Tíminn telur það sem sagt full-
nægjandi skýringu á eðli Fram-
sóknarflokksins, að hann trúi á
landið. Morgunblaðinu er raunar
ókunnugt um það, að nokkurs
staðar í veröldinni starfi lýðræð-
islegur flokkur, sem ekki „trúir
á Iandið“, þannig að erfitt er að
byggja flokkaskiptingu á því. f
rauninni er Tíminn þess vegna
að lýsa því yfir, sem menn vissu
fyrir, að Framsóknarflokkurinn
hefur enga ákveðna stjórnmála-
stefnu. Hann hefur það sameig-
inlegt með öllum lýðræðisflokk-
um „að trúa á landið". En þar
fyrir utan segir aðalmálgagn
flokksins að ekkert þurfi til að
koma, ef lýsa á Framsóknar-
flokknum. En heppilegra væri
hiris vegar að gefa hinum „ó-
kunna útlendingi“ ekki þetta vé-
fréttarsvar, heldur segja hrein-
skilnislega, að Framsóknarflokk-
urinn sé hentistefnuflokkur, sem
ætíð ekur seglum eftir vindi.
Krónan varin
f Þór, blaði Sjálfstæðismanna
á Austurlandi, er rætt um þensl-
una í íslenzku efnahagslífi. Þar
segir:
„Það er óhjákvæmilegt að ein-
hverjar ráðstafanir verði gerðar
til að Iétta af þessari spennu.
Stjórnarandstæðingar breiða það
mjög út, að enn verði gengis-
lækkun þrautaráðið. Þeir vita
sem er, að ef fólkið missir trú
á spariféð og leitast við að eyða
því, þá er það afl að verki, sem
er öllu öðru sterkara til að fella
gengið. Þess vegna er nauðsyn-
legt að fólkið viti það, að það er
ákveðinn vilji stjórnarflokkanna
að vernda krónuna og allar aðr-
ar ráðstafanir til að skapa jafn-
vægi koma fyrr til greina. Bank-
arnir -hafa þegar hafið ráðstaf-
anir með því að draga mjög úr
útlánum. Það er tilraun til að
létta ögn á spennunni. Skiljan-
lega er löngun fólksins til að
bæta aðstöðu sína á ýmsan hátt
einkum þegar tekjurnar vaxa,
eins og verið hefur síðustu ár.
Og alls staðar blasa við verkefni,
sem þarf að vinna og eru í verka-
hring ríkis- eða sveitarfélaga. En
fyrst og fremst er nauðsynlegt að
kunna sér hóf, umfram allt má
sparnaðarhneigðin ekki fjara út
með þjóðinni. Það veltur á miklu
að vel sé stjórnað.“