Fréttablaðið - 13.09.2017, Blaðsíða 35
Í kjölfar mikillar fjölgunar erlendra ferðamanna á Íslandi hefur þörfin fyrir aðgengi
legar umbúðir með alþjóðlegu
yfirbragði fyrir íslenskt lamba
kjöt í verslunum hérlendis orðið
aðkallandi. Icelandic Lamb hefur
nú í samvinnu við Krónuna,
Kjarval og Norðlenska brugðist
við og sett á markað nýja vörulínu
með umbúðum á ensku. Þetta er
í fyrsta sinn sem íslenskt lamba
kjöt er markaðssett til erlendra
ferðamanna með þessum hætti
hérlendis.
Á umbúðum vörulínunnar má
finna uppskriftir að einföldum og
fljótlegum réttum og miðast hrá
efnaúrvalið við algengt úrval í mat
vöruverslunum hér á landi segir
Hafliði Halldórsson, verkefnastjóri
hjá Icelandic Lamb. „Að mínu viti
er lamb oftast hversdagsmatur
og við viljum ekki flækja hlutina
um of hér. Með þessari vörulínu
viljum við stuðla að því að lamb
verði oftar á borðum hversdags og
einnig hvetja til aukinnar vöruþró
unar í framsetningu lambakjöts.“
Fimm vörur
Í fyrstu er boðið upp á fimm vörur
sem allar eru unnar úr stórum
lærum segir Hafliði. „Fyrst má
nefna heilan innralærisvöðva sem
er u.þ.b. 400 grömm. Vöðvinn er
ætlaður til heilsteikingar í ofni eða
á grilli og tekur allt að 30 mínútum
í eldun. Þessi vara passar fyrir tvo
fullorðna einstaklinga og hentar
vel þegar fólk hefur rýmri tíma til
undirbúnings. Hinar vörurnar eru
allar u.þ.b. 200 g í pakka og þurfa
eingöngu 5 mínútur eða skemmri
eldunartíma: Lambasteikur, sem
eru þunnar sneiðar sem henta t.d.
í snöggsteikingu með steikarmeð
læti og sósum, mjaðma steikur sem
henta vel á grillið og í pönnusteik
ingu, lambamedalíur sem passa
sem minni steikur og loks strimlar
eða „stir fry“ sem eru sérlega góðir
í alla fljóteldaða pönnurétti, til
dæmis austurlenska wokrétti sem
taka 23 mínútur í eldun.“
Líka fyrir heimamenn
Þótt vörurnar séu tilkomnar vegna
fjölgunar ferðamanna eru þær ekki
síður stílaðar inn á Íslendinga,
segir Hafliði. „Við stílum vöru
línuna inn á báða hópana og
vonum að Íslendingar taki líka vel
í hana. Hún er hins vegar merkt
á ensku í takt við eftirspurn eftir
vel merktum matvörum á ensku í
verslunum og algjörlega í sam
ræmi við markmið verkefnisins
sem er að auka sölu á lambakjöti
til erlendra ferðamanna.“
Hann bendir á að Vesturlanda
búar, þ.m.t. Íslendingar, versli
inn nánast daglega og í körfuna
rati í vaxandi mæli vörur sem eru
ófrosnar, fljóteldaðar og einfaldar
í notkun með leiðbeiningum eða
Lambakjöt í nýjum búningi
Icelandic Lamb hefur ásamt samstarfsaðilum sett á markað nýja vörulínu með umbúðum á
ensku. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt lambakjöt er markaðssett til erlendra ferðamanna
með þessum hætti hérlendis en vörurnar eru ekki síður stílaðar inn á Íslendinga.
„Með þessari vörulínu viljum við stuðla að því að lamb verði oftar á borðum hversdags og einnig hvetja til aukinnar vöruþróunar í framsetningu lambakjöts,“
segir Hafliði Halldórsson, verkefnastjóri hjá Icelandic Lamb. MYND/STEFÁN
Lamb „stir fry“ með
spínati,
kirsuberjatómötum og
mango chutney
Uppskriftin er fyrir 1 og eldunar-
tími er einungis 3 mínútur.
1 pakki Lamb Stir-Fry
¼ rauðlaukur, sneiddur
5 kirsuberjatómatar,
skornir í tvennt
2 msk. ólífuolía
1 msk. mango chutney
Spínat
Steikið kjötið á háum hita í 2
mín. Bætið mango chutney í og
hrærið saman, bætið rauðlauk og
tómötunum við og eldið í 1 mín. til
viðbótar. Kryddið til og berið fram
með góðu spínati.
uppskriftum. „Þá er fjöldi heimila
með einum eða tveimur einstakl
ingum sívaxandi og þessi hópur
vill geta keypt smærri einingar og
í leiðinni forðast matarsóun með
kaupum á óþarflega stórum
einingum.“
Við þróun vöru
línunnar voru
markaðsaðstæð
ur kannaðar
og þróun í
neysluhegðun
skoðuð segir
Hafliði. „Við
settum einnig
saman hóp
sérfræðinga
um kjötskurð,
matreiðslu og
sölu til ráðgjafar
um hvert skyldi stefnt.
Okkar niðurstaða er sú að lamba
kjöt eigi mikið inni í vöruþróun,
hafi setið eftir gagnvart öðrum
kjöttegundum undanfarin ár og
þetta verkefni var í kjölfarið þróað
af okkur hjá Icelandic Lamb.
Vöruþróunin hefur ef til vill
ekki síst setið eftir varðandi
hvernig fólk kaupir inn og
hvernig fjölskyldur hafa
minnkað. Nýja vörulínan
er partur af endurkort
lagningu dilksins til
að auka vöruúrval og
verðmæti íslensks lamba
kjöts.“
Verðlaunað
markaðsefni
Ef þetta verkefni Icelandic Lamb
lukkast vel gæti næsta skref verið
að setja fullunna vöru sem þessa í
útflutning. „Hins vegar er útflutn
ingur á frosnu lambakjöti
þegar í gangi á ákveðna
markaði á vegum slátur
leyfishafa. Okkar áherslur
snúa að því að hlúa sérstaklega
að þeim mörkuðum sem eru
vel borgandi en við erum
til ráðgjafar við seljendur
og kaupendur í því ferli
og gefum leyfi til notk
unar á vörumerki okkar og
markaðsefni á ákveðnum
mörkuðum að uppfylltum
skilyrðum.Markaðsefni
okkar hefur fengið verðlaun
Félags íslenskra auglýsinga
teiknara 2016, tilnefningu til
verðlauna „Arts Directors Club
of Europe“ 2016 og tilnefningu
til norrænna Emblumatarverð
launa 2017.“
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 M I ÐV I KU DAG U R 1 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 7
1
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
9
-D
5
C
8
1
D
B
9
-D
4
8
C
1
D
B
9
-D
3
5
0
1
D
B
9
-D
2
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K