Fréttablaðið - 13.09.2017, Blaðsíða 22
Helstu söluvörur
mínar eru hálsmen,
ermahnappar og útskor-
in smágerð mynstur í
kýrhornsplötur en þær
hef ég ekki séð hjá öðrum
hönnuðum.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Þórdís Halla Sigmarsdóttir er á bak við hönnunarmerkið KúMen og hannar helst
skartgripi og ýmsa fallega smá-
hluti úr hornum. „Ég útskrifaðist
1995 sem smíðakennari frá Kenn-
araháskóla Íslands. Ég hef unnið
með fjölbreyttan efnivið í gegnum
tíðina og farið á fjölda námskeiða
sem tengjast handverki, til dæmis
í tengslum við silfursmíði, tálgun
og textíl. Undanfarin sjö ár hef
ég verið að prófa mig áfram með
að smíða úr hornum. Þær vörur
hafa fengið góðar viðtökur og
fóru mjög fljótlega úr því að vera
gjafir til vina og ættingja í að vera
söluvara.“
Helstu vörur hennar eru
hálsmen og ermahnappar. „Helstu
söluvörur mínar eru hálsmen,
ermahnappar og útskorin smá-
gerð mynstur í kýrhornsplötur
en þær hef ég ekki séð hjá öðrum
hönnuðum. Í raun hafa hring-
menin mín verið vinsælust en
á þeim snýst innri hringurinn í
þeim ytri svo menin hreyfast á
þeim sem ber það.“
Í maí síðastliðnum tók hún í
fyrsta sinn þátt í Handverki og
hönnun, sýningunni sem fer fram
reglulega í Ráðhúsi Reykjavíkur.
„Þar fékk KúMen mjög góðar
viðtökur og ég ætla að freista þess
að sækja um aftur. Næsta sýning
verður 23.-27. nóvember og von-
andi fæ ég aftur að vera með. Svo
hef ég verið með í ýmsum litlum
handverksmörkuðum, til dæmis
á Sjóminjasafninu, og allt hefur
þetta gengið vel.“
Frekari þróun framundan
Frekari vöruþróun er fram undan
í vetur segir Þórdís Halla. „Ég er
afar spennt fyrir frekari þróun
varðandi vörur mínar. Hand-
verkið er enn sem komið er kvöld-
og helgarvinna en það gefur mér
mikið að skapa og vinna með
höndunum. Vörurnar mínar voru
nýlega teknar í sölu í Snæfellsstofu
í Vatnajökulsþjóðgarði. Segja
má að hreindýrshornin séu þar
komin aftur heim svo sá sölustað-
ur er einstaklega viðeigandi. Svo
mun Islandica, sem er ný verslun
á Klapparstíg í Reykjavík, bráðum
selja vörurnar mínar.“
Verkstæði Þórdísar Höllu er
til húsa í bílskúr á Kársnesinu í
Kópavogi. „Þar rekur pabbi minn
litla verslun en hann rak lengi vel
verslun og gullsmíðaverkstæði
á Hverfisgötu í Reykjavík. Í dag
er hann 82 ára gamall og mætir
á hverjum degi eftir hádegi í
skúrinn og opnar litlu búðina sem
hann hefur útbúið þar. Sannarlega
magnaður karl. Ég nýti svo verk-
stæðið á kvöldin og um helgar
fyrir mína vinnu.“
Hönnun KúMens má skoða á
Facebook.
Fallegir dýrgripir úr hornum
Þórdís Halla Sigmarsdóttir hannar skartgripi og ýmsa smáhluti úr hornum undir merkinu KúMen.
Fyrstu vörurnar voru ætlaðar vinum og ættingjum en fljótlega jókst eftirspurnin eftir þeim.
„Ég er afar spennt fyrir frekari þróun varðandi vörurnar mínar,“ segir Þórdís Halla Sigmarsdóttir, eigandi KúMens. MYNDIR/ERNIR
Þórdís Halla og faðir hennar, Sigmar Ólafur Maríusson.
Tvær skeftar sultuskeiðar og tveir upptakarar úr íslensku hreindýrshorni.
Hringmenin vinsælu, en þau eru úr kýrhornum.
VIÐ ERUM AÐ TALA
UM BARNAEFNI
Hafðu það skemmtilegra í haust með Stöð 2
365.isMARGFALT SKEMMTILEGRI
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . S E p T E M B E R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
1
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
9
-D
5
C
8
1
D
B
9
-D
4
8
C
1
D
B
9
-D
3
5
0
1
D
B
9
-D
2
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K