Fréttablaðið - 27.09.2017, Page 14

Fréttablaðið - 27.09.2017, Page 14
markaðurinn Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Eignarhaldsfélagið Lindarhvoll, sem heldur utan um stöðugleikaeignir sem voru framseldar til ríkisins í ársbyrjun 2016, keypti þjónustu af lögmannsstofu Steinars Þórs Guð- geirssonar, hæstaréttarlögmanns og ráðgjafa Lindarhvols, fyrir sam- tals um 39 milljónir án virðisauka- skatts á síðustu átta mánuðum ársins 2016. Þetta kemur fram í nýbirtum árs- reikningi Lindarhvols. Þar segir að stjórn félagsins hafi gert samning við lögmannsstofuna Íslög, sem er í eigu Steinars Þórs, þann 28. apríl 2016 um að annast „þjónustu vegna umsýslu, fullnustu og sölu, á þeim stöðugleikaeignum sem voru umsjá félagsins“. Samtals nam rekstrar- kostnaður Lindarhvols 56,5 millj- ónum í fyrra. Steinar Þór, sem var formaður skilanefndar slitabús Kaupþings á árunum 2008 til 2012, hefur meðal annars haft það hlutverk að gæta hagsmuna íslenska ríkisins við sölu- ferli á hlut Kaupþings í Arion banka á undanförnum misserum. Þannig situr Steinar, sem sérstakur eftirlits- maður fyrir hönd stjórnvalda, alla fundi stjórnar Kaupþings þar sem söluferli bankans er til umræðu. Þá hefur Steinar einnig átt sæti í stjórnum fjölmargra félaga sem voru framseld til Lindarhvols sem hluti af stöðugleikaframlagi gömlu bankanna. Við upphaf starfsemi Lindarhvols nam bókfært virði stöðugleika- eigna ríflega 162 milljörðum en helmingur þeirra eigna var skulda- bréf útgefið af Kaupþingi til íslenska ríkisins. Í greinargerð um starfsemi Lindarhvols, sem fjármála- og efna- hagsráðuneytið sendi frá sér í síð- ustu viku, kom fram að frá framsali stöðugleikaeigna og fram til ágúst- loka 2017 hafa greiðslur inn á stöð- ugleikareikning ríkissjóðs, ásamt greiðslum inn á reikninga dóttur- félaga, numið samtals um 140 millj- örðum. Enn eru umtalsverðar eignir í umsýslu Lindarhvols, að stærstum hluta lánaeignir, en áætlað er að unnt verði að slíta starfsemi félags- ins á fyrri hluta næsta árs. – hae Steinar fékk 39 milljónir frá Lindarhvoli Steinar Þór Guðgeirsson, ráðgjafi Lindarhvols. Frá framsali stöðug­ leikaeigna til Lindarhvols í upphafi árs 2016 og fram til ágústloka á þessu ári hafa greiðslur inn á stöðugleika­ reikning ríkissjóðs, ásamt greiðslum inn á reikninga dótturfélaga, numið samtals um 140 milljörðum króna. Hópur fjárfesta hefur lagt íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Teatime til jafnvirði um 200 milljónir króna. Index Ventures, alþjóðlegur fjár- festingarsjóður, sem fjárfesti meðal annars í Facebook, Skype, Candy Crush og Clash of Clans, leiðir fjár- festinguna. Teatime, sem var stofnað í sumar af stofnendum og fyrrverandi lykil- starfsmönnum Plain Vanilla, hyggst þróa tölvuleiki fyrir farsíma sem tengja fólk saman í rauntíma á áður óþekktan hátt. Um er að ræða eina stærstu frum- fjárfestingu í hugbúnaðarfyrirtæki hér á landi, en Teatime var aðeins formlega stofnað fyrir þremur mán- uðum. „Það er ótrúlega gaman að vera kominn aftur af stað. Ég held að við séum með vöru sem hefur ótrúlega mikla möguleika,“ segir Þorsteinn Baldur Friðriksson, einn stofnend- anna. Guzman Diaz, yfirmaður leikja- fjárfestinga Index Ventures, segir að í tækni Teatime felist tækifæri til þess að koma með algerlega nýja hugmynd á markað. Index Vent- ures leiðir fjárfestahópinn með um 75 milljónir króna en alls leggja fjárfestarnir jafnvirði um 200 milljóna króna til stofnunar Teatime. Stofnendur Teatime eru þeir Þorsteinn Baldur, Ýmir Örn Finnbogason, Gunn- ar Hólmsteinn Guðmunds- son og Jóhann Þorvaldur Bergþórsson en allir voru þeir, eins og áður sagði, stjórn- endur hjá Plain Vanilla sem gaf ú t Q u i z U p - spurningaleikinn vinsæla. Í f j á r f e st a - h ó p n u m e r u margir sömu f j á r f e s t a r n i r og komu að Plain Vanilla og Quiz Up. Þar má nefna David Wa l l e r s t e i n , forstjóra Ten- cent í Banda- r í k j u n u m , sjöunda stærsta fyrirtækis heims miðað við mark- aðsvirði. Fyrir- tækið á mörg stór tæknifyrirtæki í Kína og var jafnframt á meðal stærstu fjárfesta í leigubílaþjónust- unni Uber og bílaframleiðandanum Tesla. Einnig eru á meðal fjárfesta Davíð Helgason, stofnandi Unity, og íslenski fjárfestingarsjóðurinn Investa auk annarra. Þorsteinn Baldur segir hlutina hafa gerst hratt í sumar. „Eftir að QuizUp var selt til Bandaríkjanna í byrjun þessa árs tók við kær- komið frí, en eftir nokkra mánuði fann maður að löngunin til þess að skapa eitthvað nýtt var orðin sterk. Það var svo í sumar sem fjórir af fyrrverandi stjórnendum Plain Van- illa hittust og úr varð ný hugmynd sem við urðum strax mjög spenntir fyrir. Við ákváðum því að stofna nýtt fyrirtæki og byrjuðum að bera hug- myndina undir ýmsa fjárfesta sem við þekktum og höfðu verið með okkur í Plain Vanilla. Móttökurnar voru vægast sagt góðar og ég er ótrúlega þakklátur fyrir þá trú sem fjárfestarnir hafa haft á hugmyndinni og það traust sem þeir sýna teyminu okkar.“ Það að safna svo miklu fjármagni strax við stofnun hjálpi þeim að vinna hraðar í átt að mark- miðinu, sem sé að bylta því hvernig fólk spilar farsíma- leiki. Aðspurður segir Þor- steinn næstu skref að stækka félagið og ráða hæfileikaríkt fólk til starfa. „Við erum komnir með fjármagn sem gerir okkur kleift að hraða þróun- inni á fyrstu útgáfu Tea- time. Við getum von- andi aðeins s v i p t hulunni af v ö r u n n i fyrir jól. Þ a ð e r planið.“ – kij Fjárfesta 200 milljónir í næstu hugmynd stofnenda Plain Vanilla Þorsteinn Baldur Frið- riksson, einn stofnenda Teatime – Tengir þig við framtíðina! Sjónvarpsdreifikerfi fyrir hótel, gistiheimili og skip. Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660 oreind@oreind.is • www.oreind.is Breski vogunarsjóðurinn Attestor Capital hefur bætt við sig tæplega hálfs prósents eignarhlut í Arion banka fyrir rúmlega 800 millj- ónir króna en seljandi bréfanna var Kaupþing. Sjóðurinn nýtti sér lítinn hluta kaupréttar sem hann átti í bankanum en eftir kaupin á Attestor Capital rúmlega 10,4 pró- senta hlut í Arion banka. Kaup vogunarsjóðsins voru gerð daginn áður en kauprétturinn rann út um miðjan þennan mánuð, samkvæmt heimildum Markaðarins. Attestor Capital og Goldman Sachs, en bæði sjóðurinn og banda- ríski fjárfestingarbankinn fara nú með atkvæðarétt í Arion banka, eiga í dag samanlagt um 13,01 pró- sents hlut í bankanum. Kaup Att- estor Capital á um 0,44 prósenta hlut til viðbótar í Arion banka voru gerð í því skyni, samkvæmt heimildum Markaðarins, að vog- unarsjóðurinn og Goldman Sachs ættu í sameiningu lítillega stærri hlut í bankanum en Bankasýsla ríkisins. Stofnunin heldur á 13 pró- senta hlut í Arion banka fyrir hönd íslenska ríkisins. Fjármálaeftirlitið (FME) komst nýlega að þeirri ákvörðun að Att- estor Capital og tengdir aðilar væru hæfir til að fara með virkan eignar- hlut í Arion banka en í kjölfarið fékk sjóðurinn atkvæðarétt í samræmi við hlutafjáreign sína í bankanum. Í lok síðustu viku komst FME að sömu niðurstöðu í tilfelli vogunar- sjóðsins Taconic Capital og Kaup- þings með þeirri undantekningu að sú ákvörðun tekur ekki gildi fyrr en Arion banki verður skráður á hluta- bréfamarkað. Fram að því munu hvorki bandaríski sjóðurinn né Kaupþing fara beint með atkvæða- rétt í bankanum heldur verður hann í höndum Kaupskila, dótturfélags Kaupþings. Samkvæmt ákvörðun FME teljast Taconic og Kaupþing vera í sam- starfi í skilningi laga um fjármála- fyrirtæki. Vogunarsjóðurinn er langsamlega stærsti einstaki hlut- hafi Kaupþings með rúmlega 40 prósenta hlut en í gegnum dóttur- félag sitt á Kaupþing um 57,4 pró- sent í Arion banka. Taconic eignað- ist sem kunnugt er fyrr á árinu 9,99 prósenta hlut í Arion banka og á því samanlangt – beint og óbeint – lið- lega þriðjungshlut í bankanum. Þegar vogunarsjóðirnir þrír – Attestor, Taconic og Och-Ziff Capi- tal – ásamt Goldman Sachs keyptu samtals rúmlega 29 prósenta hlut af Kaupþingi í Arion banka í mars á þessu ári fyrir 49 milljarða var einnig um það samið að fjárfesta- hópurinn hefði kauprétt að um 22 prósenta hlut til viðbótar. Sá kaupréttur rann út 19. septem- ber án þess að nokkur fjárfestanna nýtti sér hann fyrir utan Attestor en sjóðurinn ákvað sem fyrr segir að bæta aðeins við sig 0,44 prósentum í bankanum. Kauprétturinn var á hærra gengi en sjóðirnir og Gold- man keyptu hlut sinn á fyrr á árinu sem var á genginu 0,81 miðað við bókfært eigið fé í lok þriðja fjórð- ungs 2016. Samkvæmt heimildum Markaðarins þurfti Attestor því að greiða rúmlega 800 milljónir króna fyrir tæplega hálfs prósents hlut í Arion banka en eigið fé bankans var liðlega 222 milljarðar í lok júní á þessu ári. Ekkert verður af fyrirhuguðu útboði og skráningu Arion banka á þessu ári, eins og Markaðurinn greindi fyrst frá síðastliðinn mið- vikudag, vegna stjórnarslita og boð- aðra kosninga til Alþingis í næsta mánuði. Kaupþing staðfesti þetta í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í lok síðustu viku. Stefnir Kaup- þing nú að því að losa um hlut sinn í bankanum í gegnum opið hluta- fjárútboð á fyrsta fjórðungi næsta árs þegar væntingar eru um að ný ríkisstjórn hafi tekið til starfa eftir kosningar. hordur@frettabladid.is Attestor eykur við hlut sinn fyrir 800 milljónir Vogunarsjóður nýtti sér kauprétt og bætti við sig 0,44 prósenta hlut. Kaupin gerð svo Attestor Capital og Goldman Sachs færu sameiginlega með meiri at- kvæðarétt í Arion banka en sem nemur 13 prósenta hlut Bankasýslu ríkisins. Hluthafar Arion banka Kaupskil 57,4% Bankasýslan 13% Attestor 10,4% Taconic 9,99% Och-Ziff 6,6% Goldman 2,6% Hlutafjárboð og skráning Arion frestast fram á næsta ár. FréTTABLAðið/STeFán 2 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m I Ð V I K u D a g u r2 markaðurinn 2 7 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D D B -8 C 8 8 1 D D B -8 B 4 C 1 D D B -8 A 1 0 1 D D B -8 8 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.