Fréttablaðið - 27.09.2017, Side 21
bara það sem ég þarf að læra ef mig
langar að gera eitthvað,“ segir hún en
flestar sínar hugmyndir segist hún
fá hjá sjálfri sér. „Ég bara sé fyrir mér
hvernig hlutirnir eiga að vera.“
Gert upp á hagkvæman hátt
Elsa og Þórður keyptu húsið sitt við
Ásbúð í Garðabæ í febrúar og fluttu
inn í byrjun maí. Tímann þar á milli
nýttu þau til að láta mála, skipta
um einhver gólfefni og laga það sem
nauðsynlega þurfti að laga. Í sumar
hafa þau haldið áfram að koma sér
fyrir og eru nú orðin nokkuð sátt
við árangurinn.
Eldhúsið fékk hvað mesta yfir-
halningu en þó án þess að skipta
um skápa. „Okkur langaði að gera
eitthvað flott án þess að það kostaði
of mikið enda langar okkur síðar
meir að opna eldhúsið inn í stofu
sem verður meiri framkvæmd,“
segir Elsa en þau máluðu innrétt-
inguna svarta, tóku niður efri skápa,
settu nýjar borðplötur, höldur, vask
og tæki. „Fólk trúir því ekki að þetta
sé gamla innréttingin.“
Skipt var um gólfefni í svefnher-
bergjum og skipt um hurðir. Stofan
var aðeins máluð en svo hefur Elsa
dundað sér við að raða saman fal-
legum hlutum, gömlum og nýjum.
„Ég hef gaman af því að blanda
saman nýju og gömlu,“ segir hún
og tekur sem dæmi fallegan sófa.
„Þennan keyptum við notaðan,
lökkuðum viðinn svartan og létum
yfirdekkja með svörtu leðri.“
Hannaði herbergið 12 ára
Saman eiga þau Þórður tvær dætur,
þriggja ára og níu mánaða, og fyrir
átti Elsa dóttur, Laufeyju Líf, 12 ára,
sem hefur erft næmt auga móður
sinnar. „Hún hefur mjög sterkar
skoðanir á hvernig hlutirnir eigi
að vera í herberginu hennar. Hún
útbjó lista yfir hvernig hún vildi
skipuleggja það, valdi liti, húsgögn
og skraut og ég fékk engu að ráða,“
segir Elsa og hlær. Hún er afar stolt
af dótturinni enda útkoman afar
flott.
Sérleikherbergi er snilld
Tvær yngri dæturnar deila svefnher-
bergi. „Þar var markmiðið að hafa
allt sem krúttlegast og prinsessuleg-
ast. Ég vildi hafa smá ævintýraþema
og fékk því málarann til að útbúa
fjöll með snjó á veggina,“ segir Elsa
en barnaherbergin eru tvö, í öðru
er sofið en í hinu leikið. „Þetta er
sniðugt fyrirkomulag því þá er alltaf
fínt í svefnherberginu og ekki verið
að leika sér eins mikið uppi í rúmi.“
Skemmtilegt eilífðarverkefni
Þó ýmislegt sé búið að framkvæma
er margt eftir. „Nú er verið að
mála húsið að utan. Næsta sumar
skiptum við um þakkant og tökum
garðinn í gegn hjá okkur. Svo langar
mig að taka svefnherbergið mitt í
gegn og skipta um teppi á stigapalli.
Verkefnin eru endalaus en maður
verður að forgangsraða,“ segir Elsa
sem hlakkar til að takast á við þetta
skemmtilega eilífðarverkefni.
KLÆDDU ÞIG UPP
FYRIR VETURINN
YFIRHAFNIR - PEYSUR - KULDASKÓR
Svefnherbergi yngri stelpnanna er ævintýralegt. Skreytingar á veggjum minna
á snæviþakin fjöll en bleikir prinsessulitir ráða ríkjum.
Litlu stelpurnar eru með sérleikherbergi þar sem þær
geta ruslað til eins og þær vilja.
Heimasætan
Laufey Líf 12 ára
hannaði sjálf
herbergið sitt.
Eldhússkáparnir eru gamlir en voru málaðir svartir. Höldurnar eru nýjar líkt og tækin og borðplatan.
Elsa hefur gaman af því að finna skrautmuni sem passa vel inn í rýmið.
Prinsessur og
ævintýri fá sinn
sess í barnaher-
bergjunum.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 M I ÐV I KU DAG U R 2 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 7
2
7
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
B
-B
D
E
8
1
D
D
B
-B
C
A
C
1
D
D
B
-B
B
7
0
1
D
D
B
-B
A
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K