Fréttablaðið - 27.09.2017, Qupperneq 42
Olíuverð hækkar á nýSkotsilfur
Áhrif nýrra tæknilausna á fjármálamarkaði eru mikil og fyrirtæki sem nýta sér svokallaða fjártækni og trygginga-
tækni (e. Fintech, Insurtech) veita
nú hefðbundnum bönkum og fjár-
málafyrirtækjum samkeppni þegar
kemur að lánastarfsemi, verðbréfa-
viðskiptum og tryggingaþjónustu.
Margir spá að straumhvörf séu fram
undan vegna þessarar þróunar og
fjármálakerfið muni taka stakka-
skiptum á næstu árum.
Þróunin er knúin áfram af fyrir-
tækjum sem nýta sér tækni á borð
við bálkakeðjur (e. blockchain) og
aðra umbreytingatækni til að svara
kalli um aðgengilegri og hraðari
þjónustu frá hinum stafrænu kyn-
slóðum. Þetta eru sjaldnast fjár-
málafyrirtæki í lagalegum skilningi
og fæst því eftirlitsskyld: samt sem
áður bjóða þau oft á tíðum sömu
þjónustu og eiginleg fjármálafyrir-
tæki og eru í beinni samkeppni við
þau.
Samkeppni og skilvirkni
Grundvallarhlutverk fjármála-
fyrirtækja er að sinna miðlunar-
hlutverki í hagkerfinu: umbreyta
sparnaði í fjárfestingu og dreifa
áhættu. Sú staðreynd að fjárfest
hefur verið í fjártæknifyrirtækj-
um fyrir meira en 100 milljarða
Bandaríkjadala á undanförnum
árum bendir sterklega til að þessu
grundvallarhlutverki verði ekki
eingöngu sinnt af bönkum, verð-
bréfafyrirtækjum og -sjóðum og
tryggingafélögum í framtíðinni.
Þeirri þróun ber að fagna, enda
mun hún að öllum líkindum gera
fjármálamarkað skilvirkari, lækka
viðskiptakostnað og auka hagræði
fyrir viðskiptavinina.
Hefðbundin fjármálafyrirtæki
taka virkan þátt í þessari þróun
og eiga annaðhvort í samstarfi
við fjártæknifyrirtæki og/eða eru
að þróast sem slík sjálf. En það
er kostnaðarsamt. Talið er að
evrópskir bankar muni verja um
50 milljörðum dala í nýja fjárfest-
ingu í upplýsingatækni til að laga
sig að samkeppni úr nýjum áttum.
Þjónusta þvert á landamæri
Vísbendingar eru um að fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins geri sér grein fyrir að fjártækni
muni umbreyta hinum sameigin-
lega markaði og að nauðsynlegt
sé að gera bönkum kleift að nýta
sér þau tækifæri sem hún kemur
til með að skapa, til dæmis þegar
kemur að auknu aðgengi fólks að
fjármálaþjónustu þvert á landa-
mæri. Það kunni að vera nauð-
synleg forsenda þess að markmið
ESB um sameiginlegan fjármagns-
markað náist (e. Capital Markets
Union).
Þannig hefur framkvæmdastjórn-
in tekið til skoðunar breytingar
á reglum í þá veru að kaup fjár-
málafyrirtækja á hugbúnaði skil-
greinist sem fjárfesting fremur en
rekstrarkostnaður. Um helmingur
kostnaðar evrópskra banka vegna
upplýsingatækni er tilkominn
vegna kaupa á hugbúnaði og slík
breyting myndi leiða til þess að fjár-
binding þeirra myndi minnka um
20 milljarða evra á ári hverju. Slík
breyting myndi efla samkeppni á
fjármálamarkaði enn frekar og gera
fjármálafyrirtæki betur í stakk búin
til að nýta möguleika fjármálatækn-
innar neytendum til hagsbóta.
Þá er einnig rætt um að endur-
skoða þurfi reglur um breytileg
starfskjör. Engar takmarkanir eru á
slíkum greiðslum hjá starfsmönn-
um fjártæknifyrirtækja á meðan
strangar reglur gilda um slíkt hjá
fjármálafyrirtækjum.
Framtíðarskipan fjármálakerfisins
Miklar breytingar eru að eiga sér
stað á fjármálamarkaði og vafalaust
verður þróunin það hröð að umhverfi
fjármálaþjónustu taki stakkaskiptum
næsta áratuginn. Íslensk fjármála-
fyrirtæki starfa á hinum sameiginlega
evrópska markaði og þessar breyting-
ar munu einnig hafa mikil áhrif hér
á landi. Framtíðarskipan fjármála-
kerfisins er reglulega rædd á hinum
pólitíska vettvangi. Það er ekki síst
tilkomið vegna þeirrar staðreyndar
að umsvif ríkisins á fjármálamark-
aði hér á landi eru verulega mikil í
hinu evrópska samhengi. En það er
ekki nóg að ræða einungis um stærð
eignarhluta ríkisins til framtíðar
litið. Þessi umræða verður að byggja
á grunni þeirra breytinga sem eru að
eiga sér stað á fjármálamörkuðum
og leitast verður við að svara spurn-
ingum um; hvað þurfi að gera til þess
að íslensk fjármálafyrirtæki fullnýti
þau tækifæri sem eru að skapast með
örum tæknibreytingum og íslenskir
neytendur fái þannig aðgang að
hagkvæmari fjármálaþjónustu sem
þessar breytingar geta leitt af sér.
Stafræn straumhvörf
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur um þessar mundir ekki verið hærra í liðlega tvö ár. Aukin eftirspurn og áhyggjur fjárfesta af þróun alþjóða-
stjórnmála skýra hækkanirnar að mati greinenda, en auk þess eru vísbendingar um að áhrifa af samkomulagi ríkja innan OPEC, samtaka
stærstu olíuframleiðsluríkja heims, um að draga úr framleiðslu sé farið að gæta í verði. Búast má við frekari verðhækkunum. Fréttablaðið/EPa
Umheimurinn er að fara í gegnum
eitt magnaðasta og hraðasta breyt-
ingaskeið sögunnar. Nýsköpun og
tækni eru og verða lykilorð þessa
umbreytingatímabils. Í þessu sam-
hengi er oft talað um fjórðu iðn-
byltinguna sem mun bylta vinnu-
markaðnum eins og við þekkjum
hann á komandi árum. Stór hluti
þeirra starfa sem við þekkjum í dag
mun breytast, jafnvel hverfa, og ný
störf verða til.
Tækifærin sem munu skapast
við þessa umbreytingu eru mikil,
en erum við sem samfélag tilbúin
til að takast á við þessa áskorun?
Við þessi tímamót sannast hið
fornkveðna að „mennt er máttur“.
Í menntun felast tækifæri til að
bregðast við hinu óþekkta og skapa
ný tækifæri. Menntun í tækni og
nýsköpun þarf að færast ofar á for-
gangslistann á öllum menntastig-
um og áhugavert væri að sjá meira
samstarf og gegnsæi á milli ólíkra
menntastiga.
Forskot sem skiptir sköpum
Nýsköpun felst í hnotskurn í að
skapa eitthvað nýtt eða endurbæta
eitthvað sem þegar er til staðar.
Á þetta jafnt við menntastofn-
anir og atvinnulífið í heild. Geta
skipulagsheilda til nýsköpunar er
mikilvægt samkeppnisforskot og
skiptir sköpum í því hvort fyrirtæki
og stofnanir lifi af í síbreytilegu
umhverfi. Þverfagleiki, sköpunar-
gleði og hæfni til að starfa í teymi
með ólíkum einstaklingum eru
jafnframt veigamikil atriði í þessu
samhengi. Mikilvægt er að áhersla
á tækni og nýsköpun verði samofin
í menntakerfið frá upphafi skóla-
göngu og í gegnum allt lífið.
Lærdómur og skapandi hugsun
ætti að verða lífsstíll, eitthvað
sem endar aldrei þannig að við
séum sífellt í stakk búin til þess að
aðlagast breyttu umhverfi og takast
á við nýjar áskoranir í lífi og starfi.
Umheimur á hröðu breytingaskeiði
Guðmunda
Smáradóttir
formaður Opna
háskólans í HR
og FKA-félags-
kona
Menntun í tækni og
nýsköpun þarf að
færast ofar á forgangslistann
á öllum menntastigum og
áhugavert væri að sjá meira
samstarf og gegnsæi á milli
ólíkra menntastiga.
Katrín
Júlíusdóttir
framkvæmda-
stjóri Samtaka
fjármálafyrir-
tækja
Stokkað upp
Sigurður Hannes-
son var ekki
lengi að láta
til sín taka hjá
Samtökum
iðnaðarins
(SI). Tæplega
tveimur mán-
uðum eftir að Sigurður tók við
starfi framkvæmdastjóra hefur
hann hrundið af stað verulegum
skipulags- og áherslubreytingum
í starfsemi samtakanna. Allir sem
til þekkja vita að þær voru nauð-
synlegar – og þó fyrr hefði verið.
Breytingar hafa orðið á starfsliði
SI vegna þessa og talsvert af nýju
fólki mun bætast við á næstunni í
stað þeirra sem eru á útleið. Með
þessu þykir Sigurður hafa sýnt
að hann muni láta verkin tala og
ekki veigra sér við að taka erfiðar
ákvarðanir í því skyni að styrkja
samtökin.
Minnka hlut sinn
Litlar breyt-
ingar urðu
á hluthafa-
hópi Kviku
eftir að hlutafé
bankans var
aukið um daginn.
Eignarhaldsfélagið Brimgarðar,
sem er í eigu Guðnýjar, Eggerts,
Halldórs og Gunnars Þórs Gísla-
barna, minnkaði hlut sinn í bank-
anum úr 5 í 4,12 prósent, en fyrr í
sumar seldi félagið 3,3 prósenta
hlut til Hjörleifs Jakobssonar,
fjárfestis og fyrrverandi stjórnar-
manns í Kaupþingi. Þá bætti VÍS
lítillega við hlut sinn í bankanum
og á nú 25,11 prósenta hlut og er
sem fyrr stærsti hluthafi Kviku.
Eftirlitsstjórnvöld lögðu nýverið
blessun sína yfir kaup Kviku á
Virðingu.
Ekki
norður
Steve Pappas,
aðstoðarfor-
stjóri Costco í
Evrópu, þvertók
fyrir það á fjármálaþingi Íslands-
banka í gær að heildsölurisinn
hefði hug á því að opna verslun á
Akureyri. Þrálátur orðrómur hefur
verið uppi síðustu vikur um að
Costco sé að íhuga að opna versl-
un nyrðra og var Pappas sérstak-
lega spurður út í þennan orðróm.
Hann tók fram að markaðurinn á
Akureyri væri afar smár í sniðum
og eins og sakir stæðu væru afar
litlar líkur á því að Costco legði
leið sína þangað. Fyrirtækið
myndi frekar skoða aðrar leiðir
til þess að koma vörum sínum til
Akureyrar.
2 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m I Ð V I K U D A G U r6 Markaðurinn
2
7
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
B
-8
2
A
8
1
D
D
B
-8
1
6
C
1
D
D
B
-8
0
3
0
1
D
D
B
-7
E
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K