Skinfaxi - 01.11.2015, Blaðsíða 15
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 15
„Við vissum
að við ættum
möguleika“
„Við stelpurnar bjuggumst ekki við að sigra
en stefndum hins vegar að því að komast
á verðlaunapall. Við vissum að við ættum
möguleika en draumamarkmiðið var samt
innst inni fyrsta sætið. Við vorum ekkert að
ræða þetta okkar á milli en ég fann samt á
fólki í kringum okkur að við myndum jafnvel
fara alla leið. Þegar upp var staðið kom þessi
sigur mér verulega á óvart, hann var æðis-
legur og ofsalega sætur. Þetta verður svo
skemmtilegt þegar að maður var ekkert far-
inn að búast við þessu,“ sagði Andrea Sif
Pétursdóttir, fyrirliði Norðurlandameistara
Stjörnunnar, í samtali við Skinfaxa.
„Nánast allur
tími er lagður
undir“
Andrea Sif sagði gríðarlega vinnu að baki
svona árangri. Nánast allur tími er lagður
undir til að ná þessum árangri en það er
þess virði þegar þú stendur á efsta palli sem
sigurvegari.
„Þetta eru fórnir en þú átt valið. Það er
alltaf eitthvað skemmtilegt í boði sem þú
verður að hafna til að komast á æfingu. Það
eru allir mjög sáttir eftir á og finnst það þess
virði að hafa lagt þetta allt á sig. Þetta sýnir
okkur að ef þú fórnar einhverju ertu að fá
eitthvað betra í staðinn. Við stelpurnar höf-
um aldrei æft jafnt stíft fyrir mót og þetta.
Allir virkir dagar vikunnar voru undirlagðir
og allar helgar fyrir æfingar, aukaæfingar
og hópefli. Það var bara lagt gífurlega á sig
til að ná þessum árangri. Það var alveg þess
virði,“ sagði Andrea Sif Pétursdóttir.
Vikufrí var gefið eftir mótið en verkefnin
eru næg fram undan. Nokkur mót eru á dag-
skrá í vetur og fram á vorið. Næsta mót á
erlendum vettvangi hjá nýkrýndum Norður-
landameisturum er Evrópumót í október á
næsta ári.