Skinfaxi - 01.11.2015, Blaðsíða 28
28 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
S igríður Dóra Sigurgeirsdóttir tók nýver-ið við tómstundastarfinu hjá UMSB af Sigurði Guðmundssyni. Sigga Dóra er
ekki ókunnug þessum málaflokki en hún hef-
ur meðal annars starfað í félagsmiðstöðinni
Óðali, Mími ungmennahúsi og vinnuskóla
Borgarbyggðar. Einnig skipulagði hún og
stýrði sumarfjöri fyrir börn í 1.–7. bekk í
Borgarnesi sumarið 2014. Sigga Dóra hefur
lokið einu ári í tómstunda- og flagsmála-
fræði við HÍ. Hún er með BA-gráðu í félags-
ráðgjöf og er í mastersnámi í sálfræði í upp-
eldis- og menntavísindum með áherslu á
áhættuhegðun, forvarnir og lífssýn, auk þess
sem hún hefur setið í ýmsum stjórnum og
tekið virkan þátt í félagsstörfum undanfarin ár.
„Ég er mjög spennt og hlakka mikið til að
takast á við þetta nýja starf. Ég hef alltaf verið
með annan fótinn í ungmennafélagsstarfinu.
Ég hef unnið á frístundaheimili, unnið með
öldruðum og vonandi kemur reynsla mín að
góðum notum í nýja starfinu. Fyrstu skref mín
verða að heimsækja staði og kynnast fólkinu
og sjá hvað er að gerast og taka stöðuna í
framhaldinu. Svo er Unglingalandsmót í
Borgarnesi fram undan og ég kem örugg-
lega til með að hjálpa eitthvað til í kringum
það. Það eru bara skemmtilegir tímar sem
bíða manns,“ sagði Sigríður Dóra.
E lísabet Kristín Kristmundsdóttir hóf störf sem fram-kvæmdastjóri Héraðssambands Strandamanna í lok október sl. og mun gegna starfinu til 15. ágúst 2016 að
minnsta kosti. Elísabet tekur við því starfi sem tómstunda-
fulltrúi Strandabyggðar gegndi áður samkvæmt sérstökum
samningi milli HSS og Strandabyggðar sem rann út um ára-
mótin 2014 og 2015.
Elísabet starfar einnig sem stuðningsfulltrúi við Grunnskól-
ann á Hólmavík og er ennfremur þjálfari hjá Umf. Geislanum
á Hólmavík sem býður upp á knattspyrnu, frjálsar íþróttir,
körfubolta og íþróttaskóla fyrir 1.–4. bekk.
„Mér líst vel á starfið og sýnist að ég muni hafa alveg nóg
fyrir stafni. Það er skrítið að koma inn alveg ný manneskja í
svona rótgróið samfélag en ég er uppalinn Húnvetningur. Ég
keppti á ungmennafélagsmótum heima fyrir þegar ég var yngri
og svo einnig í knattspyrnu. Nú er kominn snjór og fólk byrjað
að fara til fjalla en er búið að byggja upp skíðaskála sem heldur
betur var komin þörf á. Það er mikil spenna hjá börnum og full-
orðnum að geta farið að nýta sér þessar aðstæður. Við tökum
virkan þátt í SamVest og krakkar héðan eru virkilega duglegir
að taka þátt í mótum sem í boði eru,“ sagði Elísabet Kristín.
VERIÐ VELKOMIN!
Á vefnum www.vjp.is má finna allar helstu upplýsingar
um Vatnajökulsþjóðgarð
PO
RT
h
ön
nu
n
Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir nýr
tómstundafulltrúi UMSB:
Mjög spennt og
hlakka mikið til að
takast á við starfið
Mér líst vel á starfið
Elísabet Kristín Kristmundsdóttir.
Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir, tómstundafulltrúi
UMSB, ásamt fjölskyldu sinni.
Gísli Steinar Jóhannesson,
nýr framkvæmdastjóri USVS:
Mikið af tækifærum
hér á svæðinu
G ísli Steinar Jóhannesson var ráðinn framkvæmdastjóri Ungmenna-sambands Vestur-Skaftafellssýslu,
USVS, nú á haust-
dögum. Gísli
Steinar tekur við
starfinu af Birgi
Erni Sigurðssyni.
„Ég er tekinn
við starfi sem mér
líst vel á og er
spennandi. Það er
mikið af tækifærum
hér á svæðinu og
vonandi tekst okk-
ur að gera starfið
enn betra. Ég er
smám saman að koma mér betur inn í
hlutina en mér líst vel á framhaldið,“ sagði
Gísli Steinn.
Gísli Steinn Jóhanns-
son, framkvæmda-
stjóri USVS.
Elísabet Kristín Kristmundsdóttir
nýr framkvæmdastjóri HSS: