Skinfaxi - 01.11.2015, Page 39
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 39
Sagnagarður Landgræðslunnar
Saga landgræðslu í máli og myndum.
Fróðleg og lifandi fræðsla um gróðursögu,
landeyðingu og endurheimt landgæða á Íslandi.
Upplýsingar um opnunartíma í síma 488-3000 og á land.is
Landgræðsla ríkisins
V ígsla á nýju fimleikahúsi Fjölnis við Egilshöllina í Grafarvogi fór fram 31. október sl. Húsið er hið glæsilegasta, fullbúið áhöldum fyrir áhaldafim-
leika og hópfimleika. Tilkoma nýja fimleika-
hússins mun stuðla að enn frekari uppbygg-
ingu félagsins og því óhætt að segja að fram-
tíðin sé bjöt fyrir fimleikaleikadeild Fjölnis.
Fjölmenni var við vígsluna og mikil stemning.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var við-
staddur vígslu fimleikahússins sem er í eigu
fasteignafélagins Regins hf. en Reykjavíkur-
borg leigir aðstöðuna fyrir Fjölni. Aðstaðan
í húsinu er frábær og fylltu Grafarvogsbúar
húsið ásamt dugmiklu fimleikafólki Fjölnis.
Um 700 börn og ungmenni stunda fim-
leika hjá fimleikadeild Fjölnis. Húsið er um
2.300 m2 að stærð. Hófst bygging þess 2014
og var það því rúmlega eitt ár í byggingu.
„Með tilkomu þessa húss verður algjör
bylting innan fimleikadeildar Fjölnis. Það er
varla hægt að lýsa þessu með orðum og við
erum agalega spennt. Iðkendur hjá okkur í
dag eru um 700 talsins og við höfum þurft
að æfa fram að þessu í pínulitlum sölum.
Það eru spennandi tímar fram undan,“ sagði
Halla Karí Hjaltested, rekstrarstjóri fimleika-
deildar Fjölnis.
Spennandi tímar fram undan hjá
fimleikadeild Fjölnis í nýju húsnæði