Fréttablaðið - 07.10.2017, Síða 10

Fréttablaðið - 07.10.2017, Síða 10
GÓÐUR VINNUFÉLAGI Volkswagen Caddy www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi er Volkswagen Caddy. Hann er áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum - hefðbundinni lengd og lengri gerð (Maxi). Caddy má fá með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi og aksturseiginleika bílsins. Fjórhjóladrifinn Caddy hentar einstaklega vel við íslenskar aðstæður og eykur til muna notkunarmöguleika Caddy, hvort heldur er í snjó, hálku eða erfiðu færi. Volkswagen Caddy kostar frá 2.550.000 kr. (2.056.452 kr. án vsk) Við látum framtíðina rætast. Í september fylgir öllum Caddy sendibílum margmiðlunartæki með bakkmyndavél. StjórnSýSla Dómsmálaráðuneytið hefur sent fyrirspurn til dómstóla­ ráða hinna Norðurlandanna um hvernig þau hagi hagsmunaskráning­ um dómara við rétti sína og hvernig þeim skráningum sé komið á fram­ færi við almenning. Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson, lögfræðingur í dómsmálaráðu­ neytinu, sendi þann 12. september umrædda upplýsingabeiðni í fjórum liðum. Spurt er um hvort fjárhagslegir hagsmunir séu skráðir og þá hvaða hagsmunir, hvort um sé að ræða skuldir eða aðrar skuldbindingar. Í annan stað er spurt um hvort eignar­ hlutir í fyrirtækjum séu skráðir, í þriðja lagi hvort þátttaka dómara í stjórnmálaflokkum eða öðrum félagasamtökum sé skráð. Í fjórða lagi er svo spurt hvort þessar upplýsingar, séu þær á annað borð skráðar, séu gerðar opinberar og aðgengilegar almenningi. „Sérstak­ Kanna hagsmunaskráningu dómara á Norðurlöndum Markmið breytinga á hagsmunaskrá dómara er að auka gagnsæi og aðgengi að upplýsingunum. Fréttablaðið/SteFán Dómsmálaráðuneytið hefur óskað eftir upp- lýsingum frá Norður- löndum um hvernig hagsmunir dómara séu skráðir. Hafin er vinna við að breyta lögum um hagsmunaskráningu dómara hér á landi. Í frumvarpi Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráð- herra eru lagðar til breyting- ar á hagsmunaskrá dómara. lega höfum við áhuga á að vita hvort fjárhagslegar upplýsingar dómara séu birtar á vefsvæði dómstóla og hversu oft þær upplýsingar séu uppfærðar,“ segir í bréfi dómsmálaráðuneytisins til dómstólaráðs Norðmanna. Sagt var frá því í desember á síðasta ári að Markús Sigurbjörns­ son, forseti Hæstaréttar, hefði átt í umfangsmiklum viðskiptum við Glitni. Hann átti í umfangsmiklum hlutabréfaviðskiptum á árunum fyrir hrun en vék ekki sæti í svoköll­ uðum hrunmálum. Hann var meðal dómara í þremur málum sem voru höfðuð gegn Glitni fyrir hrun en þá var hann hluthafi í bankanum. Málunum var öllum vísað frá. Fjórir dómarar við Hæstarétt áttu fyrir hrun samanlagt 487 þúsund hluti í Glitni og töpuðu þeir umtalsverðum fjárhæðum á falli Glitnis. Í þingmálaskrá Sigríðar Á. Ander­ sen dómsmálaráðherra er að finna frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla. Með frumvarp­ inu eru lagðar til breytingar á reglum um skráningu og birtingu upplýsinga um aukastörf dómara og eignarhald á hlutum í félögum og atvinnufyrir­ tækjum með það að markmiði að auka gegnsæi og aðgengi að upplýs­ ingunum, eins og segir í þingmála­ skrá. sveinn@frettabladid.is nOrEGUr Fórnarlömb náttúruham­ fara af völdum loftslagsbreytinga munu í framtíðinni örugglega höfða mál gegn norska ríkinu vegna þátt­ töku þess í olíuvinnslu verði þró­ unin ekki stöðvuð. Þetta er mat prófessors við lagadeild háskólans í Bergen í Noregi, Jørn Øyrehagen Sunde. Hann segir norska ríkið hafa stutt við uppbyggingu olíuvinnslu og eiga sjálft hlut í olíuvinnslufyrirtækjum. Það er mat Sunde að bótakröfurnar geti orðið svo háar að Norðmenn missi olíusjóð sinn en í honum eru nú nær átta þúsund milljarðar norskra króna. Greint er frá því á vef norska ríkis­ útvarpsins að bæði San Francisco og Oakland í Bandaríkjunum hafi höfðað mál gegn fimm stærstu olíu­ fyrirtækjunum vegna kostnaðarins af völdum loftslagsbreytinga í borg­ unum. – ibs Gætu misst olíusjóð sinn Olíuborpallur í noregshafi. nOrDiCPHOtOS/aFP 7 . O k t ó b E r 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 0 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E C -4 7 D 0 1 D E C -4 6 9 4 1 D E C -4 5 5 8 1 D E C -4 4 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 0 s _ 6 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.