Fréttablaðið - 07.10.2017, Page 12
StjórnSýSla Það er merkjanleg
undiralda einhvers konar lýð-
skrums í samfélaginu, segir Arnar
Þór Jónsson, lektor í lögfræði við
lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Hann segir þetta ekki bara bundið
við Ísland heldur líka Evrópu og
Bandaríkin. Þetta kom fram í erindi
sem hann hélt á málfundi sem fór
fram í tilefni af sjötugsafmæli Jóns
Steinars Gunnlaugssonar, fyrrver-
andi hæstaréttardómara.
„Þetta er umræða sem við verðum
að taka mjög alvarlega í lagadeild-
inni. Þetta er umræða sem lög-
fræðingar, þingmenn, ráðherrar og
virðulegir embættismenn þjóðar-
innar eins og forsetinn þurfa að
taka alvarlega. Það er stutt skref
frá stjórnmálum til lagasetningar,“
segir Arnar Þór.
„Það hefur margt verið sagt í
sumar. Valdamönnum hefur verið
borið á brýn að iðka samtryggingu,
yfirhylmingu, alls konar þöggun og
að það hafi orðið trúnaðarbrestur.
Þetta hefur valdið ríkisstjórnar-
skiptum og að þing hefur verið
rofið. Síðast en ekki síst að almenn-
um hegningarlögum og alvarlegum
lagabálkum hefur verið breytt.“
Arnar Þór gagnrýndi mikið breyt-
ingar á lagaákvæðum í almennum
hegningarlögum um uppreist æru.
„Eftir stendur sú staðreynd að þeir
sem sitja uppi með refsidóm og hafa
ekki hlotið uppreist æru eru ekki
með úrræði til að fá úr því bætt.
Spurning mín til ykkar og okkar til
löggjafarþingsins nýja er þá hvort
við þetta verði unað.“
Hann sagði að réttarríkinu væri
ætlað að standa vörð um þá sem
verst standa. Í þann flokk falli vissu-
lega þeir sem dæmdir hafa verið
fyrir afbrot en eiga erfitt uppdráttar,
þrátt fyrir að kunna hafa haft ein-
lægan vilja til þess að bæta ráð sitt.
„Lög réttarríkis eiga vart að standa í
vegi fyrir því að menn geti fótað sig
að nýju, lært af mistökum og unnið
úr þeim á uppbyggilegan hátt.“
Arnar Þór benti á að umræðan
hefði mikið snúist um einn hóp
brotamanna.
„Málið hins vegar snýr að alls
konar fólki sem hefur hlotið dóm
fyrir alls konar verknað og þeir eru
ekki allir barnaníðingar. Spurningin
sem við stöndum frammi fyrir sem
samfélag er ekki bara það hvort
við viljum úthýsa barnaníðingum
heldur hvað við viljum gera við þá
ólánssömu eða dómgreindarlausu
einstaklinga sem hafa brotið af
sér. Til dæmis fársjúka eiturlyfja-
sjúklinga sem hafa flutt fíkniefni
til landsins eða fólk sem á unga
aldri hefur framið auðgunarbrot og
situr uppi með þungan dóm. Þær
lagabreytingar sem hér hafa verið
gerðar á síðustu dögum færa þetta
á engan hátt í það horf sem réttar-
ríki er sæmandi,“ segir Arnar Þór.
jonhakon@frettabladid.is
Lektor varar við
meiri áhrifum
lýðskrums
Stjórnmálamenn og embættismenn verða að taka
því alvarlega að hér á landi er merkjanleg undir-
alda lýðskrums, segir lektor í lögfræði. Hefur valdið
stjórnarslitum og breytingum á hegningarlögum.
Arnar Þór Jónsson lektor í lögfræði gagnrýndi harkalega breytingar á laga-
ákvæðum í almennum hegningarlögum um uppreist æru. FréttAblAðið/Ernir
Lög réttarríkis eiga
vart að standa í vegi
fyrir því að menn geti fótað
sig að nýju.
Arnar Þór Jónsson,
lektor í lögfræði
Nánari upplýsingar og rafræn
umsóknareyðublöð eru á www.nmi.is
Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á
netfangið: hildur@nmi.is
Umsóknarfrestur til kl. 12:00 á
hádegi þann 1. nóvember 2017
Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á
fyrri stigum sem hlotið gætu frekari ármögnun
sjóða og árfesta
Að styðja við undirbúning og framkvæmd
markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja
Að styðja við verkefni sem eru nýjung og skapa
ný störf
Markmið verkefnisins:
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir
eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki
til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til
nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða
starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.
Á markað með snjallt
nýsköpunarverkefni?
Átak til atvinnusköpunar
Bólusetning
gegn árlegri inflúensu
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast skipulag, verkstjórn og samhæfingu innan
fagsviðs ásamt svæðisstjóra, í samræmi við
stefnu og markmið Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins
Er svæðisstjóra innan handar við daglegan
rekstur stöðvar og er staðgengill hans
Er faglegur yfirmaður á sínu sviði
Sinnir klínísku starfi
Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum á
starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga stöðvar
Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun klínískra
leiðbeininga
Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi
Skipuleggur kennslu fyrir heilbrigðisstéttir í
samráði við fagstjóra lækninga, kennslustjóra og
lærimeistara
Hæfnikröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði
Framhaldsmenntun í hjúkrun æskileg
Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
Reynsla af starfi í heilsugæslu er kostur
Nám og reynsla á sviði stjórnunar æskileg
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri
í starfi
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
Nánari upplýsingar
Ásmundur Jónasson, s. 520-1800,
asmundur.jonasson@heilsugaeslan.is
Þórunn Ólafsdóttir, s. 585-1300,
thorunn.olafsdottir@heilsugaeslan.is
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðis-
þjónustunni þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt og
þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar
eftir því sem þörf er á. Flóknari vandamál, þörf fyrir
fjölbreyttari úrræði og skortur á sérhæfðu starfsfólki kallar
á nýja nálgun í starfsemi heilsugæslustöðva.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur gert breytingu á
skipulagi og rekstri heilsugæslustöðva sem miðar að því
að auka þjónustu við notendur, nýta betur fjármuni og að
bæta vinnuumhverfi starfsmanna.
Til að gera þjónustuna markvissari er lagt upp með
teymisvinnu sem grunnstef í starfsemi stöðva, ásamt
innleiðingu aðferða straumlínustjórnunar. Þverfagleg teymi
heilbrigðisstarfsfólks munu auðvelda stöðvum að taka á
flóknum vandamálum með fjölbreyttum úrræðum.
Í breyttu skipulagi fær starfsfólk aukið sjálfstæði til að
móta starfsemina og til að útfæra þjónustu sem mætir
þörfum íbúa og uppfyllir um leið kröfur um árangur
samkvæmt mælingum og mati.
Fagstjóri hjúkrunar Heilsugæslunni Garðabæ
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins a glýsir laust til umsóknar starf fagstjóra hjúkrunar við Heilsugæsluna
Garðabæ. Fagstjóri hjúkrunar ber ábyrgð á skipulagningu hjúkrunarþjónustu í samráði við svæðisstjóra.
Mikil áhersla er lögð á samvinnu milli fagstétta innan stöðvanna og að þjónustuþarfir skjólstæðinga
séu ávallt í fyrirrúmi. Um er að ræða krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, skipulagshæfileika og
samskiptahæfni. Ráðið verður í starfið til 4 ára frá og með 1.ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 26. júní 2017.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsókn skal fylgja ítarleg
náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar
um menntun, fyrri störf og reynslu.
Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast til Svövu K. Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á viðtölum við umsækjendur og á innsendum
gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningar. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Sækja skal um á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus
störf eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is).
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vill vekja athygli á því að skipulögð bólusetning gegn inflúensu hefst á
heil ugæslustöðvum mánudaginn 9. október 2017. Bóluefnið myndar mótefni gegn þrem r inflúensuveirustofnum
þ.á.m. svonefndri svínainflúensu.
Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?
• Öllum sem rðnir eru 60 ára
• Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum,
sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum
• Heilbrigðisstarfsmönnum sem daglega annast fólk með aukna áhættu, sbr. ofantalið
• Þunguðum konum
Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en greiða komugjald samkvæmt
reglugerð nr. 314 / 2017. Fyrirkomulag bólusetning r getur verið mismunandi milli heilsugæslustöðva.
Vinsamlegast leitið upplýsinga á vef Heilsugæslunnar www.heilsugaeslan.is, eða hafið samband við hlutaðeig-
andi heilsugæslustöð.
Heilsugæslan Árbæ, Reykjavík s: 585 7800
Heilsugæslan Efra-Breiðholti, Reykjavík s: 513 1550
Heilsugæslan Efstaleiti, Reykjavík s: 585 1800
Heilsugæslan Fjörður, Hafnarfirði s: 540 9400
Heilsugæslan Garðabæ s: 520 1800
Heilsugæslan Glæsibæ, Reykjavík s: 599 1300
Heilsugæslan Grafarvogi, Reykjavík s: 585 7600
Heilsugæslan Hamraborg, Kópavogi s: 594 0500
Heilsugæslan Hlíðum, Reykjavík s: 585 2300
Heilsugæslan Hvammi, Kópavogi s: 594 0400
Heilsugæslan Miðbæ, Reykjavík s: 585 2600
Heilsugæslan Mjódd, Reykjavík s: 513 1500
Heilsugæslan Mosfellsumdæmi s: 510 0700
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ s: 513 2100
Heilsugæslan Sólvangi, Hafnarfirði s: 550 600
Heilsugæslan Höfða, Reykjavík s. 591 7000
Heilsugæslan Lágmúla 4, Reykjavík s: 595 1300
Heilsugæslan Salahverfi, Kópavogi s: 590 3900
Heilsugæslan Urða hvarfi, Kópavogi s: 510 6500
Búast má við að bólusetning geti veitt a.m.k. 60-70% vörn gegn sjúkdómnum auk þess sem hann verður vægari
hjá þeim í hópi bólusettra sem veikjast. Þeim sem leita vilja ráðgjafar er bent á sína heilsugæslustöð.
Frekari upplýsingar er að finna á vef Heilsugæslunnar, www.heilsugaeslan.is
Fræðsluefni um inflúensu má finna á vef Embættis landlæknis, www.landlaeknir.is
Reykjavík, 6. október 2017
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Álfabakka 16, 109 Reykjavík sími 585 1300 www.heilsugaeslan.is
7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
C
-3
4
1
0
1
D
E
C
-3
2
D
4
1
D
E
C
-3
1
9
8
1
D
E
C
-3
0
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K