Fréttablaðið - 07.10.2017, Síða 18

Fréttablaðið - 07.10.2017, Síða 18
Málstofa um Smugudeiluna Haldin í Sjávarútvegshúsinu, Skúlagötu 4, mánudaginn 9. október milli kl. 12 og 13.30 Í tilefni af útgáfu bókar Arnórs Snæbjörnssonar sagnfræðings um Smugudeiluna gangast Hafréttarstofnun Íslands og Bókaútgáfan Sæmundur fyrir málstofu í Sjávarútvegshúsinu að Skúlagötu 4, Reykjavík, fyrirlestrasal á 1. hæð, mánu- daginn 9. október 2017 kl. 12 - 13.30. Í uppha málstofunnar ytur forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, stutt ávarp en Arnór Snæbjörnsson ytur síðan erindi og kynnir bók sína. Að loknum fyrirspurnum og umræðum áritar höfundur bók sína og boðið verður upp á léttar veitingar. Málstofustjóri er Tómas H. Heiðar, forstöðumaður Hafréttarstofnunar Íslands. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyr. Martin Lúther 10. nóv.1483 – 18. feb.1546 Fyrirlesturinn 10. október kl. 20:00 verður um persónu, uppeldi, menntun og hina innri baráttu hins unga Lúthers í leit að friði og hamingju, hér og nú, og um alla eilífð. Fyrirlesturinn 17. október kl. 20:0o fjallar um umbyltinguna miklu í huga og lífi Lúthers þegar hann finnur fagnaðarerindi Jesú Krists og loforð hans um eilíft líf þar sem réttlæti býr. Fyrirlesturinn 24. október kl. 20:00 greinir frá Lúther sem „uppgötvara samviskufrelsisins“, sem er undirstaða allra mannréttinda. Við það breyttist framtíð mannkynsins svo um munaði. Fyrri myndin verður sýnd 31. okt. kl. 20:oo og ber heitið LÚTHER. Þetta er afar vel leikin mynd með Joseph Fiennes í aðalhlutverki og Sir Peter Ustinov í aukahlutverki. Seinni myndin verður sýnd 7. nóv. kl. 20:00. Titill hennar er: Martin Lúther. Hún fjallar um ævi Lúthers í stórum dráttum, en aðallega um hann sem boðbera samviskufrelsisins og áhrif þess á framvindu mannréttinda og lýðræðis. Viðmælendur eru þekktir prófessorar svo sem Oxford-prófessorinn Alister McGrath. Björgvin Snorrason PhD í guðfræði flytur fyrirlestrana. Ókeypis aðgangur. Aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Þrír fyrirlestrar og tvær kvikmyndir verða í boði á þriðjudögum í Loftsalnum, Hólshrauni 3, Hafnarfirði í október 2017. 365.is Sími 1817 333 krá dag* Tryggðu þér áskrift *9.990.- á mánuði. Noregur Samtökin ICAN, eða Alþjóðlegt átak um eyðingu kjarn- orkuvopna, hlutu í gær friðarverð- laun Nóbels. Berit Reiss-Andersen, formaður norsku Nóbelsnefndar- innar, sagði við tilkynninguna að það væri vegna vinnu samtakanna að samþykkt sáttmála um bann og eyðingu kjarnavopna. ICAN var drifkraftur á bak við samkomulag sem 122 ríki undir- rituðu í júlí. Samkomulagið er hins vegar ekki líklegt til að hafa mikil áhrif á stöðu mála enda skrifaði ekk- ert kjarnorkuveldi undir það. „Við búum í heimi þar sem beit- ing kjarnorkuvopna er líklegri en hún hefur verið lengi,“ sagði Reiss- Andersen og vísaði til ástandsins á Kóreuskaga. Kallaði hún jafnframt eftir því að kjarnorkuveldi heims kæmu að borðinu og ræddu um að eyða vopnunum með tíð og tíma. ICAN samanstendur af hund- ruðum samtaka víða um heim og er með höfuðstöðvar í Sviss. Beat- rice Fihn, framkvæmdastjóri ICAN, sagði við blaðamenn í gær að verð- launin hefðu komið á óvart en að þau sýndu að vinna hópsins væri nauðsynleg. „Stríðslög kveða á um að ekki megi beina spjótum að almennum borgurum. Kjarnorkuvopn eru hins vegar gerð til að drepa almenna borgara, þau eiga að eyða heilu borgunum. Það er óásættanlegt,“ sagði Fihn enn fremur. Það kom fleiri en Fihn á óvart að fá Nóbelsverðlaun í vikunni. BBC kom breska rithöfundinum Kazuo Ishiguro til dæmis algjörlega í opna skjöldu þegar blaðamaður spurði hann um viðbrögð við því að hafa fengið bókmenntaverðlaun Nóbels. „Ég held ég hafi gefið þér nokkuð raunveruleg viðbrögð. Þau viðbrögð að ég spyr þig hvort þú getir sannað að þetta sé satt. Við umboðsmaður minn höfðum heyrt að ég gæti hafa unnið og vorum að fara að gá hvort þetta væru nokkuð falsfréttir. En greinilega ekki. Þetta er gríðar- legur heiður,“ sagði Ishiguro. Hann hefur meðal annars skrifað bækur á borð við Dreggjar dagsins og Veröld hinna vandalausu. Ishiguro er fæddur í Japan en fluttist til Bretlands þegar hann var fimm ára. Fjölmargir Japanir brugð- ust hins vegar reiðir við ákvörðun- inni en dyggir aðdáendur hins jap- anska Haruki Murakami bíða þess enn að hann fái verðlaunin. Hefur hann lengi verið talinn einna lík- legastur í veðbönkum, ár eftir ár. Fyrr í vikunni fengu Jeffrey C. Hall, Michael Rosbash og Michael W. Young læknisfræðiverðlaunin fyrir rannsóknir á líkamsklukk- unni. Eðlisfræðiverðlaunin fengu þeir Rainer Weiss, Barry C. Barish og Kip S. Thorne fyrir mælingar á þyngdarbylgjum. Þá féllu efnafræði- verðlaunin í hlut Jacques Dubochet, Joachims Frank og Richards Hend- erson fyrir að einfalda ferlið við að mynda lífrænar sameindir. Enn á eftir að tilkynna hver hlýtur hagfræðiverðlaunin. Það verður gert á mánudaginn. thorgnyr@frettabladid.is Fengu Nóbelsverðlaun fyrir baráttuna gegn kjarnorkuvopnum ICAN fær friðarverðlaun Nóbels fyrir baráttu fyrir eyðingu kjarnorkuvopna. Framkvæmdastjóri átaksins segir verðlaunin sýna nauðsyn baráttunnar. Fimm af sex Nóbelsverðlaunum hafa verið veitt í ár og hafa þau öll farið til karlmanna eða samtaka. Stuðningsmenn Murakami ósáttir við bókmenntaverðlaunin. ICAN-liðar voru einkar ánægðir með verðlaunin. NordICphotos/AFp Kjarnorkuvopn eru hins vegar gerð til að drepa almenna borgara, þau eiga að eyða heilu borgunum. Beatrice Fihn, framkvæmdastjóri ICAN SpáNN Talsmaður spænsku ríkis- stjórnarinnar í Katalóníu bað þau hundruð sem spænska lögreglan slasaði um síðustu helgi afsökunar í gær. Lögregla reyndi á sunnudag að koma í veg fyrir kosningar um sjálf- stæði héraðsins sem spænski stjórn- lagadómstóllinn taldi ólöglegar. Enric Millo, talsmaðurinn sem um ræðir, sagði ekki annað hægt en að sjá eftir atvikinu og baðst afsökunar fyrir hönd lögreglu. Hann sagði sök- ina þó liggja hjá héraðsstjórn Kata- lóníu sem hafi boðað til ólöglegra kosninga. Nú er búist við því að katalónska þingið lýsi yfir sjálfstæði á þingfundi á þriðjudag. Til stóð að gera það á mánudag en stjórnlagadómstóllinn setti lögbann á þann fund. „Allar til- raunir spænsku ríkisstjórnarinnar til að hindra framgang mála hafa reynst tilgangslausar og í raun gert stöðuna verri,“ sagði Raul Romeva, utanríkis- málastjóri héraðsins, í gær. – þea Biðst afsökunar á framgöngu lögreglu Spánar Lögreglan á Spáni slasaði hundruð Katalóna þegar kosið var um sjálfstæði héraðsins á sunnudaginn. 7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A u g A r D A g u r18 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð 0 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E C -1 B 6 0 1 D E C -1 A 2 4 1 D E C -1 8 E 8 1 D E C -1 7 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 0 s _ 6 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.