Fréttablaðið - 07.10.2017, Page 34
Rúnar Kristinsson er kominn heim og heldur um stjórnar-taumana í KR næstu þrjú árin. Eða, hann s k r i f a ð i u n d i r
samning til þriggja ára og eins
og hann hefur nú fengið að
reyna þá skipast fljótt veður í
lofti – sérstaklega í fótbolta-
heiminum. Rúnar snýr aftur
í Vesturbæjarstórveldið
núna þegar félagið stendur
á ákveðnum tímamótum.
Varla hefur verið negldur
nagli í Frostaskjóli síðan
1999 og lítið hefur breyst
varðandi aðstöðu undan-
farin ár. Á meðan hafa
Vesturbæingar þurft
að horfa á Valsmenn,
FH, Blika og Stjörnuna
byggja upp sín svæði
svo eftir hefur verið
tekið.
Jónas Kristinsson,
framkvæmdastjóri
KR og bróðir Rún-
ars, leiðir vinnu
um að endur-
s k i p u l e g g j a
Frostaskjól og
fékk sá er þetta
skrifar að kíkja
á hugmynd-
irnar sem eru
á borðinu.
Það verður
að vi ður -
Hjartað
réð för
kennast að verði helmingurinn af
hugmyndunum að veruleika verður
KR-svæðið huggulegra en flest
íþróttasvæði landsins. Jónas vill að
sjálfsögðu sjá allt verða að veruleika
með tveimur stúkum um völlinn,
knatt- og íþróttahúsi auk þess sem
félagsheimilið verður endurbyggt.
„Auðvitað vildu allir KR-ingar að hér
væru búnar að eiga sér stað einhverjar
breytingar. Að aðstaðan hefði batnað í
takt við hin félögin því KR hefur setið á
hakanum. Auðvitað er þetta allt pólitík. En
það er margt farið af stað og það er betra að
gera það sem á að gera vel. Ég held að menn
séu að horfa fram í tímann og ætli að nýta
þetta litla svæði sem við höfum sem allra,
allra best,“ segir Rúnar.
Aðstaðan hjá KR, sem eitt sinn var stærsti
og flottasti völlur landsins, hefur lítið breyst
frá því að stúkan var stækkuð og þak sett á. En
allt horfir þetta til betri vegar. Jónas bendir á
að Valsmenn hafi verið í mörg ár að berjast við
kerfið og það hafi tekið félagið langan tíma að
komast á þann stað sem það er á núna.
Rúnar segir að það skipti máli að æfa á einum
og sama stað. Það geti verið þreytandi til lengdar
að þvælast fram og til baka úr Vesturbænum og
upp í Egilshöll með allan æfingafatnað og þau tæki
og tól sem þarf til æfinga. „Það er mikilvægt að geta
æft á einum og sama stað. Þegar ég var að þjálfa síð-
ast hér á landi þá vorum við í Kórnum og þá þarf að
fylla skottið á bílnum af boltum og keilum og öðru
tilfallandi. Svo var það Egilshöll seint á kvöldin. En
það er enginn svo sem að væla yfir þessu, þetta er það
sem við búum við, en vonandi munum við ná að breyta
þessu með betri aðstöðu í Vesturbænum í framtíðinni.
Það myndast ákveðin stemning þegar leikmenn koma
saman inni í sama klefa, þessi klefastemning. Þá er leik-
maður með allt sitt dót á sama stað og allt auðveldara.“
Rúnar tekur við starfi Willums Þórs Þórssonar sem
stýrði KR í eitt og hálft ár. Rúnar hefur þjálfað norska
félagið Lilleström og belgíska félagið Lokeren síðan hann
hætti með KR-liðið eftir 2014 tímabilið. Hann var látinn
fara á báðum stöðum.
Rúnar var með KR-liðið frá 2010 til 2014 og á þeim tíma
vann liðið fimm titla, tvo Íslandsmeistaratitla (2011 og 2013)
og þrjá bikarmeistaratitla (2011, 2012 og 2014). KR vann titil
síðustu fjögur tímabilin sem Rúnar var með liðið.
Hann var á sínum tíma leikmaður KR og lék 140 leiki með
liðinu í efstu deild frá 1987 til 1994 og svo 2007. Hann er eini
leikmaður karlalandsliðsins sem hefur náð því að spila yfir
hundrað landsleiki fyrir Íslands hönd. KR endaði í fjórða sæti
Pepsi-deildar karla á síðasta tímabili og missti af Evrópukeppn-
inni. Sumarið 2018 verður fyrsta
sumarið í áratug þar sem KR-ingar
eru ekki í Evrópukeppni.
„Þegar ég fór í það að þjálfa KR á
sínum tíma var ég harðákveðinn í því
að gera það af fullum krafti. Ég vildi ná
árangri og vildi komast út að þjálfa. Ég
náði mér í þær gráður sem til þurfti og
ætlaði mér alla leið í þessu. Það gekk allt
eftir og ég komst út. Því miður náði ég
ekki að festa mig í sessi þarna úti. Hlut-
irnir gengu bara ekki alveg upp og ég var
látinn fara. Það var sárt að missa starfið
því ég hefði ég viljað vera aðeins lengur úti
og búa mér til meira nafn þarna úti.
Ég vissi það að ef hlutirnir myndu ekki
ganga upp þarna úti gæti maður alltaf flutt
aftur heim Hér er yndislegt að vera og fallið
er því ekki neitt. Ég hafði val um nokkra
staði en hjartað slær fyrir KR og hér er góður
hópur af fólki og leikmönnum og ég valdi frá
hjartanu. Manni rann blóðið til skyldunnar og
það vó mest í því að ég skrifaði undir hjá KR.“
Vantar fagmennsku í flest lið
Í skýrslu Borgarbrags, sem KR lét vinna fyrir sig,
kemur fram að aðstöðumál KR hafa lengi setið
á hakanum og nauðsynlegt sé að endurnýja
ýmis mannvirki félagsins. Auk þess verður reist
blönduð byggð meðfram svæðinu og aðstaða til
knattspyrnuiðkunar bætt til muna með byggingu
knatthúss, nýs keppnisvallar af fullkominni gerð,
auk nýrra áhorfendastúkna beggja vegna vallarins.
„Þetta er starf sem er búið að vera í gangi í nokkur
ár og hefur breyst eitthvað frá fyrstu hugmyndum.
Ég hef mínar skoðanir á svæðinu en ég hef ekki haft
neina aðstöðu til að gauka hugmyndum að en ef ég er
spurður er það sjálfsagt mál. Ef það á að vera nýr völlur
þá þarf meistaraflokkur að hafa sína klefa og aðstöðu
sem er hægt að nota allt árið. Þá er hægt að gera þetta
af meiri fagmennsku,“ segir Rúnar.
Hann bætir við að helsti munurinn á að þjálfa KR,
Lilleström og Lokeren sé að erlendis sé aðeins hugsað
um fótbolta. Í KR séu margar deildir. „Hér eru níu
íþróttagreinar. Ekki það að skíðadeildin sé mikið hér í
Frostaskjóli. Fótbolti og karfan eru mjög stór og barna-
starfið sömuleiðis. Úti er bara fótbolti og ekkert annað og
umgjörðin því mjög góð.
Öll umgjörð í kringum A-landsliðið til dæmis hefur batn-
að gríðarlega eftir að Lars Lagerbäck kom. Það finnst öllum
frábært og breytingarnar þar eru miklar. Ef við ætlum að
þróa fótboltann áfram þá þurfa félögin að fara í þetta saman.
Aðeins að setja meira púður í umgjörð. Meistaraflokkar KR
eru andlit félagsins og við erum að reyna ná árangri. Ef við
ætlum að bæta menn og félagið um leið
þá þarf að bæta aðstöðuna og umgjörð.
Það vantar meiri fagmennsku í flest
félög – og ég undanskil KR ekkert frá
því,“ segir Rúnar.
Hann segir að algengt sé, bæði í
Noregi og Belgíu, að „minni“ félögin
þar eyði frekar meiri peningum
í leikmenn en aðstöðu, og stór
munur sé á aðstöðu og umgjörð
„litlu og stóru“ félaganna. Þegar
hann kom til Lokeren tók hann
eftir því að búningsklefarnir
voru nánast eins og þegar hann
var að spila þar. Gamli skápur-
inn hans var meira að segja
enn uppi. „Það er mismikið
fjármagn sem félög hafa og
menn eyða frekar meiri
peningum í einn leikmann
en í aðstöðu. Það upplifði
ég í Lilleström og eins í
Lokeren.
Það gleymist oft að
huga að þrifnaði og
öðru þannig að mönn-
um þyki notalegt að
koma til æfinga og
vinnu. Stóru klúbb-
arnir úti hafa þetta
tipp topp en ég
u p p l i f ð i þ e tt a
bæði í Noregi og
Belgíu. Þar voru
skelfilegir bún-
ingsklefar og
það er nú bara
þannig að öll
s m á a t r i ð i
þ u r f a a ð
vera í lagi
til að ná
árangri og
þ a u
Rúnar Kristinsson er kominn
heim í KR. Hann á að stýra
knattspyrnuliðinu upp í hæstu
hæðir á ný. Hann er kominn
með nóg af flutningum og ætlar
ekki að halda á vit ævintýranna
nema eitthvað mjög bitastætt
verði á vegi hans. Hann ætlar að
láta hendur standa fram úr ermum
enda KR á tímamótum, ekki aðeins
knattspyrnudeildin því þar hefur
varla verið negldur nagli síðan 1999.
↣
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
7 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
C
-6
0
8
0
1
D
E
C
-5
F
4
4
1
D
E
C
-5
E
0
8
1
D
E
C
-5
C
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K