Fréttablaðið - 07.10.2017, Page 90

Fréttablaðið - 07.10.2017, Page 90
Þann þriðja október árið 1900 varð Margaret Abbott fyrsta banda-ríska konan til að vinna gullverðlaun á Ólympíu-leikum. Þetta voru aðrir Ólympíuleikar nútímans og öfugt við þá fyrstu, fjórum árum fyrr í Aþenu, fengu konur að taka þátt. Keppnis- greinarnar voru þó fáar og áttu það sameiginlegt að vera taldar kven- legar. Fyrr á leikunum höfðu konur því keppt í siglingum, hestamennsku, tennis og krikket. Margaret Abbott hlaut sín verð- laun fyrir sigur í golfi. Leikinn var níu holu hringur, sem hún fór á 72 höggum. Sá árangur þætti ekki upp á marga fiska í dag. En Margaret var líka tæpast afreksíþróttamaður. Hún var stödd í Frakklandi til að nema listfræði við akademíuna í París og skráði sig til leiks í golfkeppninni ásamt móður sinni í hálfgerðu bríaríi. Raunar vissi Margaret Abbott aldrei af þessum Ólympíumeistara- titli sínum. Verðlaun fyrir einstakar greinar á leikunum höfðu ekki enn verið samræmd og hlaut hún snotra postulínsskál fyrir sigurinn. Það var ekki fyrr en eftir dauða hennar meira en hálfri öld síðar að sagnfræðingar Ólympíunefndarinnar komust að þeirri niðurstöðu að golfkeppnin hefði í raun verið hluti af formlegri dagskrá leikanna, en ekki bara eitt af ótalmörgum smáíþróttamótum sem haldin voru í París sumarið 1900 í tengslum við heimssýninguna í borginni. Ef miðað er við opinberar skil- greiningar Ólympíunefndarinnar í dag, var golf fullgild keppnisgrein á Parísarleikunum 1900 og aftur í St. Louis fjórum árum síðar. Eftir það hvarf greinin af dagskrá allt til ársins 2016 í Ríó, þar sem keppt var í golfi á nýjan leik. Miðað við vinsældir golfíþróttar- innar kunna einhverjir að undrast þessa löngu bið. Hvers vegna hefur svo útbreidd og vinsæl keppnisgrein verið undanskilin á þessari mestu íþróttahátíð mannkyns? Þjóðleg tómstundariðja? Skýringin á þessu er margþætt. Í fyrsta lagi var golf lengi vel að mestu bundið við hinn engilsax- neska menningarheim. Golfvellir voru algengir á Bretlandseyjum og í Norður-Ameríku, en sjaldséðari víðast annars staðar. Kylfingar urðu líka snemma atvinnuíþróttamenn sem lengi vafðist fyrir Ólympíuhreyfingunni. Vissulega kom til greina að bjóða upp á keppni áhugakylfinga, en hætt var við að hún stæðist engan saman- burð við keppni þeirra bestu og vekti lítinn áhuga áhorfenda. Þrátt fyrir þessi vandamál, var margoft hreyft við hugmyndinni um að keppa í golfi á Ólympíuleikum á þeim 112 árum sem liðu á milli leik- anna í St. Louis og Ríó. Í eitt skiptið mátti minnstu muna að kylfingar yrðu meðal fullgildra Ólympíukepp- enda. Það var í Berlín árið 1936. Í raun er stórmerkilegt að skipu- leggjendur Berlínarleikanna hafi svo mikið sem íhugað að bæta golfi á keppnisskrána, því sáralítil hefð var fyrir íþróttinni í landinu. Um 1925 töldust golfvellir í gjörvöllu Þýska- landi ekki nema um tuttugu talsins og voru þeir að langmestu leyti reknir fyrir ferðamenn eða útlendinga sem búsettir voru í landinu. Valdataka þýskra nasista árið 1933 gaf golfáhugamönnum enga sérstaka ástæðu til bjartsýni. Í hugum Hitlers og félaga (að svo miklu leyti sem þeir höfðu nokkra skoðun á golfi) var um að ræða breskt yfirstéttarsport og því andstætt þýskri menningu og siðum. Við það bættist að gyðingar voru áberandi í hinu fámenna þýska golfsamfélagi, en nasistar hófust þegar handa við að reka þá úr hvers kyns félagasamtökum, þar á meðal úr íþróttahreyfingunni. Afstaða nasista til íþróttamála var mótsagnakennd. Þeir lögðu mikla áherslu á líkamsþjálfun ungmenna, bæði til að skapa öfluga hermenn og hraustar mæður til að styrkja germanska kynstofninn. Til að ná þessum markmiðum höfðu þýskir íþróttafræðingar mesta trú á leikfimi og fimleikum. Einstaklingsgreinar, svo sem í frjálsum íþróttum, voru vel séðar. Jafnframt kunnu nasistar að meta hópíþróttir sem reyndu á sam- hæfingu, svo sem reiptog og fimleika- sýningar þar sem stórir hópar fram- kvæmdu samhæfðar æfingar. Keppnisíþróttir og þá einkum þær sem upprunnar voru í Bretlandi mættu mun meiri tortryggni meðal nasista. Átti sú afstaða sér djúpar rætur innan þýsku íþróttahreyfing- arinnar, þar sem margir töldu það einkennismerki fagurra íþrótta að byggjast á samvinnu fremur en sam- keppni. En á sama tíma gerðu einstaklingar í forystu Nasistaflokksins sér grein fyrir áróðursmætti íþrótta. Annars vegar að velgengni á íþróttasviðinu gæti með einhverjum hætti stað- fest líkamlega og andlega yfirburði Þjóðverja gagnvart öðrum þjóðum en ekki síður gætu íþróttirnar orðið framlenging á utanríkisþjónustu landsins og aflað Þriðja ríkinu alþjóðlegrar viðurkenningar. Íþróttir sem áróðurstæki Ákvörðunin um að Ólympíuleik- arnir 1936 yrðu haldnir í Berlín hafði verið tekin áður en Hitler og félagar komust til valda og undirbúningur miðaðist við fremur hófstillta leika, sem miðasala ætti að standa straum af. Fátt bendir til að Adolf Hitler hafi haft minnsta áhuga á leikunum eða íþróttum almennt, en áróðursmála- ráðherranum Göbbels tókst að sann- færa hann um að gera þá að stórkost- legri skrautsýningu. Skipuleggjendur leikanna fengu óheftan aðgang að fjárhirslum þýska ríkisins til að gera allt sem glæsilegast úr garði. Keppikeflið varð að auka umsvifin með fjölgun keppenda og jafnvel upptöku nýrra greina. Ein birtingar- mynd þessa var þátttaka íslensks sundknattleiksflokks á Ólympíu- leikunum. Sundknattleikur var þá sem nú jaðaríþrótt á Íslandi og hefði keppnisför þessi aldrei komið til álita nema vegna rausnarlegra ferða- styrkja þýsku mótshaldaranna. Um svipað leyti og Göbbels var að sannfæra Foringjann um áróð- ursgildi Ólympíuleikanna, tókst öðrum manni að ná eyrum hans með íþróttauppbyggingu í huga. Sá hét Karl Henkell, glaumgosi með golfdellu, sem stýrði bæði þýska golfsambandinu og golfklúbbnum í Wiesbaden, elsta golfklúbbi lands- ins sem ekki var sérstaklega ætlaður útlendingum. Henkell þessi var nánast óþekktur, en hafði öflugt tengslanet. Hann var mágur Joachims von Ribbentrop, sem Hitler hafði gert að sérstökum ráðgjafa sínum á sviði utanríkismála og síðar utanríkisráðherra. Í gegnum Ribbentrop tókst Henkell að sann- færa Hitler um að golf væri annað og meira en sérviskuleg tómstundaiðja Breta, heldur íþróttagrein sem vert væri að breiða út og halda að þýskum almenningi. Þessi beinu persónulegu tengsl komu því til leiðar að stjórn nasista gaf út yfirlýsingu á árinu 1934, þar sem golf var útnefnt sem sérstök þjóðaríþrótt og eindregið hvatt til iðkunar hennar. Á næstu árum nærri tvöfaldaðist fjöldi golfvalla í landinu, en vissulega höfðu þeir verið mjög fáir fyrir. Kapp var lagt á að kveikja áhuga nýrra iðkenda og miklu fé var varið í kaup á búnaði og til þjálfunar. Karl Henkell fylltist eldmóði vegna hins nýtilkomna stuðnings stjórn- valda. Honum dugði ekki að koma golfinu á kortið í Þýskalandi, heldur vildi hann gera þýska golfsambandið gildandi á alþjóðavettvangi. Hann fékk þá hugmynd að hafa öflugt golf- mót sem hluta af Ólympíuleikunum. Keppt skyldi í ferðamannabænum Baden-Baden, þar sem besta golfvöll Þýskalands var að finna. Ekki yrði um einstaklingskeppni að ræða heldur skyldi hver þátttökuþjóð tefla fram tveggja manna liði. Móðgaður Hitler? Hugmyndin fékk ekki góðar undir- tektir hjá Ólympíunefndinni. Niðurstaðan varð sú að efnt var til alþjóðlegrar golfkeppni hálfum mánuði eftir að Berlínarólympíu- leikunum lauk. Golfsambönd nokk- urra landa sendu fulltrúa sína til leiks. Sem fyrr sagði kepptu þeir í tveggja manna liðum þar sem farnir voru tveir átján holu hringir eða 72 holur í allt. Þótt mótið teldist ekki hluti Ólympíuleikanna var ákveðið að hafa í heiðri áhugamannareglur þeirra. Keppendurnir voru því ekki úr hópi frægustu og öflugustu kylf- inga. Öllum að óvörum höfðu þýsku keppendurnir nauma forystu eftir fyrri dag keppninnar. Segir sagan að Ribbentrop hafi þá í flýti hringt í Foringjann, sagt honum að stórsigur væri í uppsiglingu og hvatt hann til að mæta og afhenda sigurlaunin. Mun Hitler hafa lagt af stað, en látið snúa við bíl sínum þegar fréttist að ensku keppendurnir hafi endað sem sigurvegarar. Sagan er skemmtileg, þótt hún hafi lítinn stuðning af heimildum. Ekkert í skráðri dagskrá Hitlers bendir til að hann hafi farið í óvæntan bíltúr þennan dag og raunar minnir frá- sögnin grunsamlega mikið á svip- aðar flökkusögur af því hvað Hitler var tapsár á Ólympíuleikunum. En eftir stendur að þýskir nasistar misstu fljótlega áhugann á golfi. Kylfingar Foringjans Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um golf og stjórnmál. golf væri annað og meira en SérviSkuleg tómStundaiðja Breta. ERTU LÖNGU HÆTT/UR AÐ REYKJA EN SITUR UPPI MEÐ SKEMMDIRNAR! Supreme Demantshúðslípun + Intraceuticals “Hollywood-meðferð” Fyrir Eftir Fyrir þá sem gera kröfur um gæði og árangur Tilboð í október Hlíðasmára 9 • Kópavogi • S. 893 0098 • snyrt@snyrt.is • www.snyrt.is Snyrtistofan Hafblik 7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r42 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 0 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D E C -1 B 6 0 1 D E C -1 A 2 4 1 D E C -1 8 E 8 1 D E C -1 7 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 0 s _ 6 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.