Fréttablaðið - 07.10.2017, Blaðsíða 96
Hvað heitið þið fullum nöfnum og
hversu gamlar eruð þið?
Valentína: Ég er 7 ára og heiti Val-
entína Mirra Passaro.
Stefanía: Ég heiti Jerly Estefania
Catano Catano en er kölluð Stefanía
eða Steffý og er 7 ára.
Í hvaða skóla eruð þið og hvað
finnst ykkur mest gaman að gera
þar?
Valentína: Ég er í Háteigsskóla og
stærðfræði er skemmtilegust.
Stefanía: Ég er líka í Háteigsskóla og
mér finnst líka stærðfræði skemmti-
legust.
Hvernig leikið þið ykkur helst?
Valentína: Við leikum okkur fallega.
Stefanía: Við leikum okkur mest á
stönginni sem hægt er að snúa sér í
hringi á. Hún er á leikvellinum.
Hvað finnst ykkur mest gaman að
gera þegar þið eruð ekki í skóla?
Valentína: Mér finnst mest gaman í
playmo.
Stefanía: Mér finnst skemmtilegast
að vera úti að hjóla.
Eru einhver dýr í uppáhaldi hjá
ykkur?
Valentína: Já, kettlingar!
Stefanía: Hundar eru í mestu uppá-
haldi hjá mér.
Þekkið þið einhverja fugla?
Valentína: Já, dúfu, kráku, lóu, páfa-
gauk og krumma.
Stefanía: Ég þekki krumma og örn.
Hvað langar ykkur að verða þegar
þið verðið stórar?
Valentína: Mig langar að verða fim-
leikakennari, búðarkona og hjúkr-
unarkona.
Stefanía: Ég vil vera danskennari og
fimleikakennari.
Þekkja krumma
Valentína og Stefanía eru bestu vinkonur. Fréttablaðið/anton brink
og örn, lóu og
páfagauk
Við leikum okkur
mest á stönginni
sem hægt er að snúa sér í
hringi á. hún er á leikVell-
inum.
Á mánudaginn verður kveikt á
Friðarsúlunni í Viðey. Bandaríska
listakonan Yoko Ono á hugmynd-
ina að Friðarsúlunni sem er hugsuð
sem leiðarljós fyrir okkur öll að því
að vinna að heimsfriði. Yoko Ono
er bæði þekkt sem myndlistarkona
en einnig sem ötul baráttukona
fyrir friði í heiminum ásamt eigin-
manni sínum, tónlistarmanninum
John Lennon sem var einn af með-
limum hljómsveitarinnar Bítlarnir.
John Lennon dó eftir að hann varð
fyrir skotárás í New York þar sem
þau hjónin áttu heima.
Friðarsúlan er tileinkuð minn-
ingu Lennons og þess vegna er
kveikt á henni á afmælisdaginn
hans þann 9. október og hún látin
loga fyrir friði í heiminum til 8.
desember sem var dagurinn sem
hann dó. Á stöpli súlunnar sjálfrar
sem ljósið streymir upp úr eru
skrifuð orðin „Hugsa sér frið“ á 24
tungumálum. Þessi orð vísa í fræg-
asta lag Lennons, Imagine (Hugsa
sér), þar sem hann syngur um heim
sem er laus við styrjaldir og allir lifa
saman í sátt og samlyndi.
„Ég vona að friðarsúlan muni
lýsa upp heitar óskir um heimsfrið
hvaðanæva úr veröldinni og veita
hvatningu, innblástur og sam-
stöðu í heimi þar sem nú ríkir ótti
og ringulreið. Sameinumst um að
gera friðsæla veröld að veruleika.“
Þetta sagði Yoko Ono þegar fyrst
var kveikt á Friðarsúlunni og svo
er líka um að gera að hvetja alla til
þess að fara út í Viðey, skoða þetta
frábæra listaverk og gefa sér tíma
til þess að hugsa um frið. – mg
Friðarsúlan okkar allra
Það er mjög skemmtilegt að heim-
sækja Friðarsúluna í Viðey.
Fréttablaðið/Hanna
„Villidýr,“ sagði Kata ánægð þegar
hún sá næstu þraut. „Mér líkar
við villidýr.“ Lísaloppa las upp
þrautina: „Hér eru myndir af
þremur tegundum stórra katta
sem allir eru með mismunandi
feld. Getið þið parað saman
teikningarnar af köttunum
við myndirnar af feldi þeirra?“
„Arrrggg,“ hvæsti Kata eins og stór
köttur. „Leysum þetta,“ bætti hún
við drjúg með sig.
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
270
Getur þú
parað saman
kettina og
feldina?
?
?
?
A
B
D
1
2
3
Lausn á gátunni
1D, 2B og 3A?
Friðarsúlan Var
Vígð á aFmæli Johns
lennon Þann 9. október
2007 og er ÞVí tíu ára í ár.
7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r48 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
krakkar
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
C
-5
6
A
0
1
D
E
C
-5
5
6
4
1
D
E
C
-5
4
2
8
1
D
E
C
-5
2
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K