Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Síða 4
Helgarblað 17.–20. febrúar 20174 Fréttir
ljúffengur morgunmatur
alla daga
Kaffivagninn / Grandagarði 10, 101 Rvk.
Sími: 551 5932 / www.kaffivagninn.is
Opið virka daga frá 07:30–18:00
og um helgar frá 09:30–18:00
gamla
höfnin
Þ
orsteinn Hjaltested hefur
höfðað svokallaða meðal
göngusök á hendur tíu
erfingjum Sigurðar Hjaltested
sem reka mál gegn Kópavogs
bæ þar sem þess er krafist að bærinn
greiði þeim 75 milljarða í skaðabætur
vegna eignarnáms í landi Vatnsenda
á árunum 1992–2007. Um er að ræða
heimild í einkamálalögum þar sem
aðili, sem telur sig eiga lögvarða hags
muni af niðurstöðu dómsmáls, getur
gengið inn í dómsmál annarra og
orðið aðili að málinu.
Þá krefst Þorsteinn þess að
Kópavogsbær greiði honum
29.791.792.570 krónur auk vaxta
og dráttarvaxta að frádregnum inn
borgunum upp á 2.250.000.000 sem
Þorsteinn fékk í tveimur greiðslum
í byrjun febrúar 2007. Greiðslurnar
urðu til þess að Þorsteinn varð
skattakóngur Íslands 2010 og 2011.
Vísað aftur til héraðs
Mál erfingjanna var höfðað þann
28. apríl 2014. Aðalkrafa þeirra var
sú að Kópavogsbær myndi greiða
þeim 75 milljarða í bætur vegna
eignarnáms á jörðinni. Héraðsdóm
ur Reykjaness komst að þeirri niður
stöðu að vísa skyldi málinu frá dómi
í janúarlok 2016 vegna vanreifun
ar. „Hér stendur auðvitað upp úr
að fjölskipaður héraðsdómur hef
ur fallist á það sjónarmið bæjarins
að málið sé ódómtækt enda hefur
ekki verið sýnt fram á með nokkrum
hætti að dánarbú Sigurðar K. Hjalte
sted hafi orðið fyrir tjóni við eignar
nám Kópavogsbæjar,“ sagði Guðjón
Ármannsson, lögmaður Kópavogs
bæjar, við það tækifæri. Úrskurð
urinn var kærður til Hæstaréttar
og tveimur mánuðum síðar komst
æðsti dómstóll landsins að þeirri
niðurstöðu að frávísunarúrskurð
urinn yrði felldur úr gildi þannig að
taka þyrfti málið til efnismeðferðar
að nýju í héraði.
Deilt í hálfa öld
Deilur um jörðina hafa staðið yfir
í hálfa öld og eru gríðarlegir fjár
hagslegir hagsmunir í húfi enda
er jörðin eitt helsta byggingarland
Kópavogsbæjar. Upphaflegur eig
andi jarðarinnar var Magnús Einars
son Hjaltested. Hann eignaðist
jörðina árið 1914 en var ókvæntur
og barnlaus. Því fór svo að barna
barn bróður hans, Sigurður Krist
ján Lárus son Hjaltested, erfði Vatns
endajörðina og hóf þar búskap
ásamt seinni konu sinni árið 1958.
Sigurður lést árið 1966 en þá fór
sonur hans frá fyrra hjónabandi,
Magnús Hjaltested, fram á að fá
jörðina. Sú krafa leiddi til málaferla
sem enduðu með því að ekkja Sig
urðar var borin út af heimilinu. Þegar
Magnús lést svo árið 1999 tók Þor
steinn Hjaltested, elsti sonur hans,
við jörðinni.
Eins og áður segir fékk Þorsteinn
skaðabætur frá Kópavogsbæ upp
á rúmlega 2,25 milljarða króna í
febrúar 2007 en í kjölfarið hófu
aðrir erfingjar Sigurðar Hjalte
sted málaferli. Þeim lauk síðan í
mars 2015 þegar Hæstiréttur komst
að þeirri niðurstöðu að ráðstafa
skyldi beinum eignarrétti til fimmt
án erfingja Sigurðar Hjaltested en
ekki eingöngu til sonarsonar hans
Þorsteins. n
Þorsteinn vill
fá 30 milljarða
Höfðaði meðalgöngusök gegn tíu erfingjum Sigurðar Hjaltested
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Þorsteinn Hjaltested
Freistar þess að gerast
aðili að máli frændfólks
síns sem krefst skaðabóta
frá Kópavogsbæ að and-
virði 75 milljarða króna.
Þ
orgerður Katrín Gunnarsdóttir,
sjávarútvegs og landbúnaðar
ráðherra, sagði í þættinum
Þjóðbraut á sjónvarpsstöð
inni Hringbraut í gærkvöldi að Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæðis
flokksins og núverandi forsætis
ráðherra, hefði orðið fúll þegar hún
tilkynnti honum að hún ætlaði í fram
boð fyrir annan stjórnmálaflokk en
Sjálfstæðisflokkinn.
Þorgerður var þingmaður flokks
ins um árabil og menntamálaráð
herra á árunum 2003 til 2009.
Hún sagði í viðtali við Sölva
Tryggvason á Þjóðbraut að henni
hafi þótt vænt um að hann hefði
orðið fúll. „Honum var ekki sama.“
Hún talaði vel um Bjarna. „Bjarni
Benediktsson er einn af stóru
mönnunum í íslenskri pólitík. Hann
er sterkur leiðtogi. Hann er réttsýnn
maður og ég hef trú á honum – að
við getum haldið áfram með landið
okkar í þeirri uppbyggingu sem við
þurfum að halda áfram að standa
fyrir.“ n
baldur@dv.is
Bjarni einn af
stóru mönnunum
Þorgerður segir Bjarna Ben hafa orðið fúlan
Bjarni Ben
Varð að sögn
Þorgerðar
fúll þegar
hún tilkynnti
honum um
framboð sitt
fyrir Viðreisn.
MynD ÞorMar Vignir
Áfram í
varðhaldi
Héraðsdómur Reykjaness hefur
orðið við kröfu lögreglu þess efnis
að Thomas Møller Olsen, sem
grunaður er um aðild að dauða
Birnu Brjánsdóttur, sæti gæslu
varðhaldi næstu
tvær vikurnar.
Jón H. B.
Snorrason, sak
sóknari hjá lög
reglu, sagði við
RÚV að hann
gerði ráð fyrir að
innan tveggja
mánaða verði búið að ljúka mál
inu, en hámarkslengd gæsluvarð
halds, án þess að ákæra sé fram
komin, er 12 vikur.
Enn er beðið eftir lokaniður
stöðu krufningar og lífsýnarann
sókna.
Endurskoða
reglur um
umbun
Stangaveiðifélag Reykjavík
ur, SVFR, hefur að undanförnu
unnið að endurskoðun reglna
um umbun stjórnarmanna fé
lagsins. Stjórnarmenn hafa til
þessa fengið tiltekna veiðidaga í
ám félagsins fyrir þá vinnu sem
innt er af hendi í stjórn. Ágrein
ingur um hvernig gengið var um
þær reglur í fyrrasumar olli því að
ákveðið var að hefja undirbún
ingsvinnu að skýrari reglum. Ekki
er þó grunur um misferli, sam
kvæmt heimildum DV.
Fulltrúaráð og stjórn félags
ins skipaði hóp sem skilað hefur
tillögum en málið verður rætt á
aðalfundi SVFR, þann 25. febrúar.
Þrír stjórnarmenn hafa tilkynnt að
þeir sækist ekki eftir endurkjöri.