Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Síða 10
Helgarblað 17.–20. febrúar 201710 Fréttir Óttast að verkfalls- sjÓður sé tÓmur n Greiðslur úr verkfallssjóði sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur dragast e kkert bólar á greiðslu til sjó- manna úr verkfallssjóði Sjó- manna- og vélstjórafélags Grindavíkur sem borga átti út í byrjun vikunnar. Áhyggjufullir félagsmenn eru ósátt- ir við upplýsingaskort vegna máls- ins og telja að sjóðurinn hafi tæmst. Alls er búið að greiða um 76 millj- ónir króna úr sjóðnum síðan verk- fall sjómanna hófst. Forsvarsmað- ur SVG vísar því á bug að sjóðurinn sé uppurinn og sagði fyrirspurn DV þess efnis „lúalega“. Milljarðs tekjutap hjá hinu opinbera Verkfall sjómanna hefur nú staðið yfir í tæpar 10 vikur og eru um 2.200 sjómenn í verkfalli auk tæplega 500 vélstjóra. Samkvæmt upplýs- ingum frá Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, þá hafa deiluaðilar samið um öll mál, nema hvað varð- ar skattaafslátt á fæðispen- ingum. Sú aðgerð, sé miðað við að fjöldi lögskráningardaga sjómanna sé 1,5–1,6 milljónir daga á ári og að fæðispeningar séu að jafnaði 1.500 krónur á dag, mun þýða tekjutap ríkissjóðs upp á 730 milljónir á ári auk þess sem sveitarfélögin kæmu til með tapa um 330 milljónum króna í út- svarstekjur. Þessar tölur komu fram í frétt RÚV um málið. Kallaði Heiðrún Lind eftir því að stjórn- völd einhentu sér í það verkefni að úrskurða um rétt- mæti þessarar kröfu en áður hafði Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, landbúnaðar- og sjávarút- vegsráðherra, lagt fram tillögu um almenna skoðun og greiningu á fæð- is- og dagpeningum á almennum vinnumarkaði og þeirri skoðun yrði lokið í apríl. Ólíklegt verður að telj- ast að deiluaðilar hafi þolinmæði eða jafnvel burði til þess að bíða svo lengi. Ekkert bólar á þriðju greiðslu Samkvæmt heimildum DV þá óttast félagsmenn Sjómanna- og vélstjóra- félags Grindavíkur að verkfallssjóð- ur félagsins sé tómur. Alls eru 656 fé- lagsmenn sem eiga rétt á greiðslum úr verkfallssjóði hjá SVG en aðeins 380 nýta sér þann möguleika. Ástæða þess að menn kjósa ekki að nýta sér þennan rétt er hugsanlega sú að þeir eru horfnir til annarra starfa. Byrjað var að greiða úr sjóðnum um miðjan janúarmánuð og áttu félagsmenn von á greiðslum sem nema kauptryggingu háseta, sem eru 234 þúsund krónur á mánuði eða 10.800 krónur alla virka daga. Ætlunin var að greitt yrði á tveggja vikna fresti, alls 117 þúsund krónur í hvert skipti. Tvær greiðslur voru inntar af hendi, alls um 76 milljón- ir króna, en sú þriðja átti að berast til félagsmanna mánudaginn 13. febrúar síðast liðinn. Engar greiðslur hafa enn borist þrátt fyrir ítrekanir frá félagsmönnum. Í samtali við DV fullyrðir ónafngreindur félagsmaður að gjaldkeri félagsins hafi sagt sjóð- inn tóman. Segja fréttirnar „úr lausu lofti gripnar“ DV hafði samband við forsvars- menn Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur vegna málsins. Þar var þessum upplýsingum blaðsins vísað á bug og þær sagðar „úr lausu lofti gripnar“. Viðmælandinn sagði fyrir- spurn blaðsins vera „lúalega“ en frek- ari fyrir spurnum var ekki svarað og borið við fjölmiðlabanni deiluaðila. Ekki fékkst uppgefið hver staðan er á verkfallssjóði Sjómannafélags Vestmannaeyja en þar hafa um 100 sjómenn nýtt sér úrræðið af þeim 177 sem eiga til þess rétt. Starfsmaður fé- lagsins sagðist ekki geta veitt þær upplýsingar og sagði forsvarsmenn félagsins vera upptekna við funda- höld í höfuðborginni. RÚV greindi frá því í janúarlok að SV væri reiðu- búið til þess að selja orlofsíbúðir félagsins til þess að standa undir greiðslum úr verkfallssjóði. Þó fékkst staðfest að engin slík skref hafi verið stigin enn sem komið er. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Skip á sjó Stutt gæti verið í að deilan leysist. Ekkert er þó í hendi. Pure Synergy á 15% afslætti í febrúar Mamma veit best • Laufbrekka 30 og Njálsgata 1 • mammaveitbest.is Hvert er þitt markmið í meistaramánuði? Gleraugnaverslunin Eyesland hefur opnað nýja og glæsilega verslun á Grandagarði 13. Mikið úrval af gæðagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Cocoa Mint sólgleraugu kr. 12.900,- Sjáðu muninn?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.