Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Page 12
Helgarblað 17.–20. febrúar 201712 Neytendur
Í
slendingar greiða allt að 60 pró
sentum hærra verð við stóra
Domino's pítsu af matseðli en
neytendur í nágrannalöndun
um þar sem íslenskir eigendur
pítsukeðjunnar hafa verið að hasla
sér völl á undanförnum misserum.
Pizza Pizza ehf., félag í
meirihlutaeigu íslenska athafna
mannsins Birgis Þórs Bieltvedt, á
meirihluta í Domino's á Íslandi
sem og í Noregi og Svíþjóð. Dom
ino's rekur tuttugu og tvo pítsu
staði hér á landi, tólf í Noregi og
tvo í Svíþjóð en þar var fyrsti stað
urinn opnaður í byrjun desember
síðastliðnum. Þrátt fyrir að vera í
eigu sömu aðila þá leiddi athugun
DV í ljós að verulegur verðmunur
er á pítsunum í þessum löndum.
Framkvæmdastjóri Domino's á
Íslandi segir muninn skýrast af
mörgum þáttum, meðal annars
uppbyggingu matseðla sem sé mis
munandi milli landa. Íslendingar
séu tilboðsdrifnir kaupendur á
meðan Norðmenn horfi til verðlags
á matseðlum. Tilboðin séu fleiri
og hagstæðari á Íslandi en sóttar
pítsur af matseðli eru mun ódýrari
í nágrannalöndunum. Hann segir
að miðað við kauphegðun Ís
lendinga séum við í raun að fá
pítsurnar á sambærilegu verði og
annars staðar.
Hallar oft á íslenska neytendur
DV hefur að undanförnu birt ítar
legan verðsamanburð á ýmiss
konar vörum sem fást hér á landi og
sambærilegum vörum í nágranna
löndunum. Niðurstöðurnar voru
nær allar á einn veg, að það er okrað
á íslenskum neytendum. Ísland
kom sömuleiðis nýverið fremur
illa út úr nýlegri könnun Eurostat,
hagstofu Evrópusam
bandsins, sem sýndi
að Ísland er fjórða
dýrasta land í
Evrópu þegar
kemur að
innkaupum
á matvöru,
drykkjar
vöru og
tóbaki. Verð
lag í þessu tilliti
væri 30 prósent
um hærra hér en
Evrópumeðal
talið. Aðeins
Sviss, Noregur og
Danmörk bjuggu
við hærra verð
á þessum vöru
flokkum en Ís
lendingar.
DV lék því forvitni á að vita
hvernig Ísland kæmi út í verðsam
anburði innan pítsukeðjunnar með
íslenska eignarhaldið.
Getur munað miklu á
stakri pítsu
Við skulum taka sem dæmi stóra
pítsu af matseðli Domino's á Ís
landi annars vegar og í Noregi og
Svíþjóð hins vegar. Pítsan sem um
ræðir er Bahamaspítsa sem er með
fjórar áleggstegundir og við gerum
ráð fyrir því að pítsan sé sótt.
Á Íslandi kostar Bahamas 3.245
krónur, en þess ber að geta að
sendingarkostnaður er innifalinn
í uppgefnu verði á matseðli, sem
er ekki tilfellið í Noregi og Svíþjóð.
En hægt er að óska eftir því að
sækja pítsuna og lækkar verðið þá
í 3.150 krónur. Athygli vekur að þú
sparar aðeins 95 krónur á að sækja
og því yrði mun hagstæðara fyrir
Íslendinginn, sem ætlar að sækja
pítsuna, að taka bara tvennutil
boð og fá þar aðra pítsu og stóran
skammt af brauðstöngum. En nán
ar af tilboðsfyrirkomulaginu síðar.
21,7 prósentum ódýrari í Noregi
Í Noregi, sem jafnan er þekkt fyrir
allt annað en lágt verð eins og
niðurstöður Eurostat sýna, kostar
stök, sótt Bahamaspítsa af matseðli
189 norskar krónur, eða sem nem
ur 2.533 íslenskum krónum.
Þetta gerir 21,7 prósenta
verðmun miðað við
sótta pítsu.
Sendingar
kostnaður, sem
ekki er uppgef
inn á matseðl
inum í Noregi er
75 norskar krón
ur, eða ríflega
990 krónur ís
lenskar. Heimsend
stök pítsa væri með
því gjaldi orðin 8
prósentum dýrari í
Noregi en á Íslandi.
Allt að 60
prósent ódýrari í
Svíþjóð
Í Svíþjóð vill svo til að ekki er að
finna Bahamaspítsu á matseðli en
algengt verð á sambærilegri stórri
pítsu af matseðli er um 139–149
sænskar krónur, eða rétt um 1.700
til 1.800 krónur íslenskar. Það þýð
ir að verðmunur á sóttri pítsu á Ís
landi og í Svíþjóð er á bilinu 55 til 60
prósent, Svíum í vil.
Sendingarkostnaðurinn sem ekki
er uppgefinn á matseðlinum í Sví
þjóð er 49 sænskar krónur, eða rúm
ar 600 krónur. Heimsend stök pítsa
væri með því gjaldi þó enn um og
yfir 40 prósentum ódýrari í Svíþjóð
Ef litið er til Domino's í Dan
mörku, sem tekið skal fram að er
ekki í eigu Íslendinganna í Pizza
Pizza ehf., er verðið enn lægra. Þar
má finna stóra Bahamaspítsu af
matseðli á 69 krónur danskar, eða
rúmar 1.100 krónur. Munar því allt
að 96 prósentum á verði pítsunnar
hér á landi og í Danmörku.
Þetta segir Domino's
DV leitaði skýringa á þessum verð
mun hjá Birgi Erni Birgissyni, fram
kvæmdastjóra Domino's á Íslandi
og segir hann að margir þættir, stór
ir jafnt sem smáir útskýri muninn.
Gott sé að fá tækifæri til að útskýra
þetta því viðskiptavinir hafi ein
hverjir verið að velta þessu fyrir sér.
Blaðamaður vissi fyrir það fyrsta
ekki að sendingarkostnaður væri
innifalinn í verði pítsu á matseðli
hér en ekki á norsku og sænsku
heimasíðunum. Úti er sendingar
kostnaðurinn umtalsvert hærri sem
taka verði með í reikninginn ef um
er að ræða hráan samanburð milli
matseðla. En líkt og bent er á í um
fjöllun DV nemur hinn innifaldi
sendingarkostnaður aðeins 95 krón
um á íslenska matseðlinum. Dæmin
miða því öll við að pítsan sé sótt.
Birgir Örn bendir síðan á að
þættir eins og gengislækkun í Nor
egi í kjölfar olíuverðslækkunar
og styrking íslensku krónunnar
undanfarið skipti máli í svona sam
anburði.
Öðruvísi matseðlar og
kauphegðun
Stór hluti skýringarinnar er síðan
uppbygging matseðla milli þjóða
sem helgast af kauphegðun og
neyslumynstri neytenda í mismun
andi löndum.
„Við gerðum allt öðruvísi mat
seðil í Noregi en á Íslandi. Við erum
með miklu fleiri tilboð á Íslandi
en í Noregi. Ástæðan er sú að við
komumst að því að kauphegðun
Norðmanna er meira drifin áfram
af matseðilsverði en Íslendingar eru
miklu drifnari áfram af tilboðsverði.
Það er eiginlega algjör meirihluti
á Íslandi sem kaupir tilboð af okk
ur,“ segir Birgir og nefnir sem dæmi
þriðjudagstilboðið, tvennutilboðið
og spartilboðin, sem séu gríðarvin
sæl.
„Við erum ekki að gera þetta með
sama hætti í Noregi. Íslendingar
velja tilboð og þegar maður skoð
ar nettóniðurstöður í reikningum
þá er pítsan yfirleitt ódýrari mið
að við hvernig Íslendingar kaupa.“
Bendir hann á að Íslendingar sem
sæki pítsurnar sínar taki nánast all
ir tilboð, sem miðað flest við að sótt
sé. Matseðlarnir séu því mjög ólíkt
uppbyggðir.
Hvað Svíþjóð varðar segir Birgir
að ofan á leggist fleiri atriði.
Ódýrari ostur í Svíþjóð
„Það eru miklir verndarmúrar í
kringum Ísland og Noreg, gagnvart
osti sérstaklega. Í Svíþjóð eru þeir
að borga helmingi lægra verð fyrir
ostinn en við. Það er gríðarlega stór
kostnaðarliður hjá okkur.“
Þá séu pítsurnar í Noregi aðeins
stærri, pítsurnar í Svíþjóð aðeins
minni, launakostnaður sé mismun
andi á hverjum stað fyrir sig og þá
þurfi Íslendingar að flytja inn tals
vert af vörum um þrjú þúsund kíló
metra leið.
„Þannig að það er margt sem
kemur inn í þetta. Ef þú ert að reikna
hvernig Íslendingar eru að kaupa þá
eru þeir að fá þetta á sambærilegum
kjörum. Íslendingar hafa keypt píts
ur af okkur í 20 ár þannig að við höf
um lært inn á þá en við erum enn
að læra inn á þá í Noregi og Svíþjóð,
þar sem þetta byrjaði bara fyrir
stuttu.“
Af þessu má því ráða að hag
stæðara er fyrir Íslendinga að kaupa
sér meira af pítsu, jafnvel meira en
þeir þurfa, í formi tilboðspakka á
meðan Norðmenn og Svíar búa við
færri tilboðspakka en hagstæðara
verð á stökum pítsum af matseðli. n
Við greiðum 60 prósentum
meira fyrir Domino's pítsuna
n Sömu eigendur hér og úti n Íslendingar vilja tilboð en Norðmenn lægra verð á matseðli
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is Íslenska
pítsuútrásin
Eftirtektarverður árangur
Eftir uppgang Dom-
ino's hér á landi á
umliðnum árum
hófst íslenska
Domino's-pítsu-
útrásin í Noregi
árið 2014 en síðan
hefur stöðunum þar
fjölgað jafnt og þétt
og viðtökurnar verið góðar. Árangur
Birgis Þórs Bieltvedt og félaga hefur ekki
farið fram hjá fjárfestum en árið 2015
keyptu lífeyrissjóðir og fagfjárfestar hlut
í Pizza Pizza ehf. í gegnum framtakssjóð-
inn Eddu.
Í júní 2016 var síðan tilkynnt um
kaup Domino's Pizza Group, stærstu
pítsukeðju Bretlands, á minnihluta í
rekstri Domino's á Íslandi, Noregi og
Svíþjóð á 24 milljónir sterlingspunda.
Með kaupunum innleystu íslenskir
eigendur og áðurnefndir fjárfestar hluta
af þeirri fjárfestingu sem lögð hafði verið
í vöxt fyrirtækisins á Norðurlöndum á
undanförnum árum.
Íslendingar héldu sem fyrr segir
meirihlutaeign sinni í rekstrinum í öllum
löndum, en breska fyrirtækið eignaðist
á bilinu 45–49% í norrænu félögunum. Domino ś Verðið á stökum sóttum pítsum af matseðli Domino's er mun hærra hér en í nágrannalöndunum. Kauphegðun Íslendinga hefur
verið kortlögð þannig að við viljum kaupa tilboðspakka á meðan Norðmenn rýna frekar í verð af matseðlum.
Birgir Örn Birgisson Framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi.
Íslendingar taki tilboðspakka
Bahamas-pítsan er á lægra verði í
Noregi og Svíþjóð samanborið við
Ísland. Íslendingar vilja frekar tilboð
þar sem þeir fá meira fyrir minna á
meðan frændur okkar rýna í verð á
matseðlunum. MyND DoMiNoS.iS
„Við gerðum allt
öðruvísi mat seðil
í Noregi en á Íslandi. Við
erum með miklu fleiri til-
boð á Íslandi en í Noregi.