Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Side 14
Helgarblað 17.–20. febrúar 201714 Fréttir
n Nota kjördæmaviku til að hitta kjósendur n Landsbyggðarþingmenn á ferð og flugi
E
nginn þingfundur hefur verið
á Alþingi þessa viku þar eð
svokölluð kjördæmavika
hefur staðið yfir. Þá er gefið
frí frá þingfundum og þing
menn nýta tíma sinn til að fara út í
kjördæmin og hitta kjósendur, sveit
arstjórnarfólk, halda fundi á stofnun
um og í fyrirtækjum.
Kjördæmavika hefur kannski
í huga margra einkum snúist um
að þingmenn í hinum stóru lands
byggðarkjördæmum hafi tækifæri
til að fara út og hitta sína kjósendur.
Landsbyggðarþingmenn hafa að
talsverðu leyti haft samflot í ferð
um sínum um kjördæmið, þó það sé
ekki einhlítt. Venjan er að önnur kjör
dæmavikan hvern vetur sé nýtt með
þeim hætti en í hinni vikunni hafi
flokkarnir hver fyrir sig skipulagt sína
dagskrá.
En þingmenn Reykjavíkur og Suð
vesturkjördæmis sitja hins vegar ekki
auðum höndum í kjördæmaviku.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri
grænna, segir að vikan hafi verið þétt
pökkuð af heimsóknum í stofnanir
og fyrirtæki hjá þingmönnum. „Við
höfum síðan haldið félagsfundi fyrir
okkar flokksmenn í vikunni. Einstak
ir þingmenn hafa einnig boðið upp á
fasta viðtalstíma sem hafa verið vel
nýttir.“
Lágstemmt hjá
Sjálfstæðisflokknum
Birgir Ármannsson, þingflokksfor
maður Sjálfstæðisflokksins, segir
það nokkuð misjafnt hvað þingmenn
flokksins á suðvesturhorninu
aðhafist í kjördæmaviku.
„Að þessu sinni er engin
skipulögð dagskrá hjá
okkur þingmönnum
Reykjavíkur en þing
menn Kragans hafa hitt
sveitarstjórnir í kjördæm
unum. Þingmenn hafa
nýtt tækifærið og unnið
við skrifborðin og hitt fólk
á fundum sem ekki hefur
gefist tími til í önnum hinna daglegu
þingstarfa. Í gegnum árin höfum við
oft farið í skipulagða dagskrá með
heimsóknum í fyrirtæki og
stofnanir auk annars. Það er
hins vegar allt lágstemmt
hjá okkur í þessari kjör
dæmaviku, um það var
tekin ákvörðun þegar að
Ólöf Nordal samflokks
kona okkar féll frá í síð
ustu viku.“
Hanna Katrín Friðriks
son, þingflokksformað
ur Viðreisnar, segir að
það hversu stutt sé frá því að þing
kom saman hafi kannski talsverð
áhrif á hvernig þingmenn Viðreisn
ar hagi sinni dagskrá í vikunni, en
þingmenn flokksins eru allir nýir
fyrir utan sjávarútvegs og landbún
aðarráðherrann Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur. „Við eigum auðvitað
bara tvo landsbyggðarþingmenn.
Við þingmenn Reykjavíkur og Suð
vesturkjördæmis höfum ekki verið
með skipulagða dagskrá heldur höf
um við hvert um sig sinnt ýmsum
verkefnum, hitt fólk, farið í stofnanir
og fyrirtæki og svo framvegis. Hanna
Katrín segir hún hafi varla reynslu
til að segja af eða á um gagn
semi kjördæmaviku. Hún
hallist þó að því að hún sé
mikilvæg. „Eitt af því sem
kom mér á óvart þegar ég
settist á þing er hve tími
þingmanna er mikið nið
ur njörvaður í fasta fundi.
Annars vegar þingfundi
og svo nefndarfundi. Þess
vegna held ég að það sé
gagnlegt að fá tíma í þess
um vikum til að sinna baklandinu og
kjósendum.“
Píratar bjóða í bíó
Ásta Guðrún Helgadóttir,
þingflokksformaður
Pírata, segir að þing
menn flokksins hafi nýtt
tímann til að hitta flokks
menn og kjósendur með
skipulagðri dagskrá. „Rús
ínan í pylsuendanum er
svo að við ætlum á laugar
daginn að bjóða fólki á
myndina Democracy í Bíó
Paradís, með pallborðsumræðum á
eftir.“
Silja Dögg Gunnarsdóttir, vara
formaður þingflokks Framsóknar
flokksins, segir að landbyggðarþing
menn flokksins hafi að talsverðu leyti
verið í samfloti með þingmönnum
annarra flokka, þó ekki í Norðvestur
kjördæmi. n
„Eitt af því sem
kom mér á óvart
þegar ég settist á þing er
hve tími þingmanna er
mikið niður njörvaður
Kjördæmavika Þingmenn hafa
nýtt liðna viku til að hitta kjósendur,
heimsækja stofnanir, fyrirtæki og
sveitarstjórnir. Mynd Sigtryggur Ari
Freyr rögnvaldsson
freyr@dv.is
Tími þingmanna niður njörvaður
Ásta guðrún
Helgadóttir
Birgir
Ármannsson
Okkar kjarnastarfssemi er
greiðslumiðlun og innheimta.
Hver er þín?
515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is
Síðan 2006
VIÐ ERUM ÓDÝRARI
EN ÞIG GRUNAR
SPRENGJUVERÐ
Á LED FLÓÐKÖSTURUM FYRIR VERKTAKA
Ludviksson ehf - Ledljós
Flatahraun 31 - Hafnarfirði
www.ledljós.is
LEDLÝSING
VINNUKASTARAR
80-90% SPARNAÐUR
Gæði - ábyrgð og
brautryðjendur í betri verðum ...
20W og upp í 1000w LED kastarar