Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Side 30
Helgarblað 17.–20. febrúar 20174 Málning - Kynningarblað ÁÁ Verktakar eru leið- andi í háþrýstiþvotti H áþrýstiþvottur er óhjá- kvæmilegur undanfari stórra málningarverkefna utanhúss og ákaflega skil- virk aðferð til að gera hús og byggingar klárar undir málningu. Fyrirtækið ÁÁ Verktakar ehf. er leið- andi á sviði háþrýstiþvottar hér á landi og hefur yfir að ráða afar öflug- um búnaði til slíkra verka, sem er all- ur í eigu fyrirtækisins. Til að hreinsa málningu af hús- um er notast við 500 bara hitadælur sem geta hitað vatn upp í 100 gráður. Slíkar dælur eru einnig notaðar í alls konar fitu- og olíuhreinsanir og víðar þar sem við á. „Íbúðarhús eru oft hreinsuð með um 300 til 500 bara þrýstingi og köldu vatni sem dugar til að hreinsa óhrein- indi og gróður af húsum. En svo geta verið öndunarvandamál og vatns- pokar og þá þarf að hreinsa gömlu málninguna alla af, þ.e. alhreinsun. Þá þarf að nota heitt vatn,“ segir Ás- laugur Einarsson, framkvæmdastjóri ÁÁ Verktaka. Fyrirtækið var stofnað árið 1991 og hefur það vaxið og dafnað allar götur síðan. Auk háþrýstiþvottar sér- hæfir ÁÁ Verktakar ehf. sig í viðhaldi fasteigna, til dæmis múrviðgerðum, málningarvinnu, trésmíðavinnu og annarri viðhaldsvinnu fasteigna. Sem fyrr segir er búnaður ÁÁ Verktaka til háþrýstiþvotta afar öfl- ugur: „Við erum með 3.000 bara dælur sem eru notaðar til að hreinsa málningu af stáli. Enn frem- ur við hreinsanir á túrbínuhjól- um og ýmsu öðru. Þrýstingurinn á þeim er afar hár og þær mjög öflugar. Enn fremur erum við með 1.500 bara dælur, mjög vatns- miklar, þær eru meðal annars not- aðar í virkjanir, til að hreinsa úr bor- holum og rörum og vörmum,“ segir Áslaugur. Háþrýstidælurnar koma annars vegar frá Þýskalandi, frá framleið- andanum Falch, og hins vegar frá Bandaríkjunum, frá fyrirtækinu Gar- den Denver, en báðir aðilar eru afar öflugir framleiðendur háþrýstidæla. ÁÁ Verktakar ehf. er í Reykjanesbæ en að sögn Áslaugs eru langflest ver- kefni þeirra á höfuðborgar svæðinu. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru af ýmsu tagi, til dæmis almennir hús- eigendur sem ætla að mála hús sitt og þurfa á háþrýstiþvotti að halda til að gera klárt undir málun. Einnig er al- gengt að málarameistarar leiti til fyrir- tækisins eftir tilboðum í háþrýstiþvott. Háþrýstiþvotturinn er einnig oft hluti af stærri verkefnum fyrirtækisins enda sinni það margs konar húsaviðgerð- um og er með fjölda múrara í vinnu. Einnig hefur fyrirtækið unnið mikið fyrir orkufyrirtæki við að beita hinum öflugu háþrýstidælum við hreinsan- ir úr borholum og fleira. Þá hefur ÁÁ Verktakar ehf. unnið mikið fyrir út- gerðarfyrirtæki og sinnir öllum þvotti fyrir Stálsmiðjuna Framtak, sem rek- ur Slippinn í Reykjavík. Sem fyrr seg- ir hefur verið mikill vöxtur í starf- seminni: „Starfsemin hefur vaxið jafnt og þétt frá því við byrjuðum og tækja- kosturinn hefur fylgt með. Það varð vissulega dálítið stopp eftir hrunið eins og hjá mörgum en síðan hefur þetta legið upp á við. Sem dæmi um það keyptum við 3.000 bara háþrýsti- dæluna árið 2013 og var það fyrsta dælan af slíku tagi sem seld var frá Þýskalandi innan Evrópu. Einnig höf- um við bætt við okkur skæralyftum og spjótum til að nota þegar unnið er við hærri byggingar,“ segir Áslaugur að lokum. n ÁÁ Verktakar ehf Fitjabraut 4, 260 Reykjanesbæ Símar: 421-6530 og 898-2210 aaverktakar@aaverktakar.is Heimasíða: www.aaverktakar.is Unnið við háþrýsti- þvott á einbýlishúsi Háþrýstiþvottur á bárujárnshúsi Myndin hægra megin sýnir einbýlishús eftir háþrýstiþvott - vinstra megin er sama hús eftir pússningu og fíltun. Háþrýstiþvottur á fjölbýlishúsi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.