Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Blaðsíða 30
Helgarblað 17.–20. febrúar 20174 Málning - Kynningarblað
ÁÁ Verktakar eru leið-
andi í háþrýstiþvotti
H
áþrýstiþvottur er óhjá-
kvæmilegur undanfari
stórra málningarverkefna
utanhúss og ákaflega skil-
virk aðferð til að gera hús
og byggingar klárar undir málningu.
Fyrirtækið ÁÁ Verktakar ehf. er leið-
andi á sviði háþrýstiþvottar hér á
landi og hefur yfir að ráða afar öflug-
um búnaði til slíkra verka, sem er all-
ur í eigu fyrirtækisins.
Til að hreinsa málningu af hús-
um er notast við 500 bara hitadælur
sem geta hitað vatn upp í 100 gráður.
Slíkar dælur eru einnig notaðar í alls
konar fitu- og olíuhreinsanir og víðar
þar sem við á.
„Íbúðarhús eru oft hreinsuð með
um 300 til 500 bara þrýstingi og köldu
vatni sem dugar til að hreinsa óhrein-
indi og gróður af húsum. En svo geta
verið öndunarvandamál og vatns-
pokar og þá þarf að hreinsa gömlu
málninguna alla af, þ.e. alhreinsun.
Þá þarf að nota heitt vatn,“ segir Ás-
laugur Einarsson, framkvæmdastjóri
ÁÁ Verktaka.
Fyrirtækið var stofnað árið 1991
og hefur það vaxið og dafnað allar
götur síðan. Auk háþrýstiþvottar sér-
hæfir ÁÁ Verktakar ehf. sig í viðhaldi
fasteigna, til dæmis múrviðgerðum,
málningarvinnu, trésmíðavinnu og
annarri viðhaldsvinnu fasteigna.
Sem fyrr segir er búnaður ÁÁ
Verktaka til háþrýstiþvotta afar öfl-
ugur: „Við erum
með 3.000 bara
dælur sem eru
notaðar til að
hreinsa málningu
af stáli. Enn frem-
ur við hreinsanir
á túrbínuhjól-
um og ýmsu öðru.
Þrýstingurinn á
þeim er afar hár og
þær mjög öflugar.
Enn fremur erum
við með 1.500 bara
dælur, mjög vatns-
miklar, þær eru
meðal annars not-
aðar í virkjanir, til
að hreinsa úr bor-
holum og rörum og vörmum,“ segir
Áslaugur.
Háþrýstidælurnar koma annars
vegar frá Þýskalandi, frá framleið-
andanum Falch, og hins vegar frá
Bandaríkjunum, frá fyrirtækinu Gar-
den Denver, en báðir aðilar eru afar
öflugir framleiðendur háþrýstidæla.
ÁÁ Verktakar ehf. er í Reykjanesbæ
en að sögn Áslaugs eru langflest ver-
kefni þeirra á höfuðborgar svæðinu.
Viðskiptavinir fyrirtækisins eru af
ýmsu tagi, til dæmis almennir hús-
eigendur sem ætla að mála hús sitt og
þurfa á háþrýstiþvotti að halda til að
gera klárt undir málun. Einnig er al-
gengt að málarameistarar leiti til fyrir-
tækisins eftir tilboðum í háþrýstiþvott.
Háþrýstiþvotturinn er einnig oft hluti
af stærri verkefnum fyrirtækisins enda
sinni það margs konar húsaviðgerð-
um og er með fjölda múrara í vinnu.
Einnig hefur fyrirtækið unnið mikið
fyrir orkufyrirtæki við að beita hinum
öflugu háþrýstidælum við hreinsan-
ir úr borholum og fleira. Þá hefur ÁÁ
Verktakar ehf. unnið mikið fyrir út-
gerðarfyrirtæki og sinnir öllum þvotti
fyrir Stálsmiðjuna Framtak, sem rek-
ur Slippinn í Reykjavík. Sem fyrr seg-
ir hefur verið mikill vöxtur í starf-
seminni: „Starfsemin hefur vaxið jafnt
og þétt frá því við byrjuðum og tækja-
kosturinn hefur fylgt með. Það varð
vissulega dálítið stopp eftir hrunið
eins og hjá mörgum en síðan hefur
þetta legið upp á við. Sem dæmi um
það keyptum við 3.000 bara háþrýsti-
dæluna árið 2013 og var það fyrsta
dælan af slíku tagi sem seld var frá
Þýskalandi innan Evrópu. Einnig höf-
um við bætt við okkur skæralyftum
og spjótum til að nota þegar unnið er
við hærri byggingar,“ segir Áslaugur að
lokum. n
ÁÁ Verktakar ehf
Fitjabraut 4, 260 Reykjanesbæ
Símar: 421-6530 og 898-2210
aaverktakar@aaverktakar.is
Heimasíða: www.aaverktakar.is
Unnið við háþrýsti-
þvott á einbýlishúsi
Háþrýstiþvottur á
bárujárnshúsi
Myndin hægra megin sýnir einbýlishús eftir háþrýstiþvott - vinstra megin er sama hús eftir pússningu og fíltun.
Háþrýstiþvottur
á fjölbýlishúsi