Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Síða 31
Helgarblað 17.–20. febrúar 2017 Fólk Viðtal 27
geri það líka með því að hafa aldurs-
takmarkið aðeins 16 ára. Ég ætla
aldrei að horfa upp á svona aftur.“
Tók terturnar í sundur
Miðvikudaginn 4. janúar síðastliðinn
gerðu þeir feðgar sér ferð í höfuð-
borgina til að kaupa flugelda sem
fjölskyldan ætlaði að sprengja saman
á þrettándanum. Með í för voru
yngri bræður Antons en samtals eru
systkinin sex talsins. Anton og bræð-
ur hans hafa mikinn áhuga á flugeld-
um og því hafa þeir, til þessa, verið
mjög spenntir fyrir þessum árstíma.
„Á meðan við vorum að kaupa
flugeldana keypti Anton sér sjálfur sex
tertur og eina sýningartertu sem var
töluvert stærri. Ég setti ekkert sérstakt
spurningarmerki við það enda hafði
ég enga hugmynd um hvað hann ætl-
aði sér með þær,“ segir Gunnar. Anton
bætir við að dagana á undan hafi
hann ásamt vinum sínum notað bíl-
skúrinn til að taka tertur í sundur og
búa til heimatilbúnar sprengjur.
„Krafturinn er aðalmálið þegar
maður er að sjálfur að gera sprengj-
ur. Sprengingin verður miklu stærri,
sterkari og öflugri,“ segir Anton en
eftir að hann kom heim úr flug-
eldabúðinni ákvað hann að útbúa
stærðarinnar sprengju með því að
safna púðrinu úr tertunum saman
í stóran glervasa. Dagana á undan
hafði hann verið að búa til sprengj-
ur með því að setja púður inn í tómar
klósettpappírsrúllur en nú var kom-
ið að því að taka sprengjugerðina
á næsta stig. Foreldrar hans voru
grunlausir um hvað hafði gengið á í
bílskúrnum.
„Þessi sprengja var samt ekki
plönuð fyrirfram. Við ætluðum bara
að prófa að gera eitthvað nýtt.“
Eftir að Anton og vinir hans höfðu
dundað sér í rúmar fimm klukku-
stundir við að taka allar terturnar í
sundur og búnir að útbúa nokkrar
stórar sprengjur var komið að stóru
stundinni.
Heppinn að vera á lífi
„Við fórum með sprengjurnar út og
ég sagði strákunum að fara í burtu
áður en ég kveikti á þræðinum á
fyrstu sprengjunni. Á sama augna-
bliki og ég bar eldinn að sprengjunni
sprakk hún yfir alla höndina þar sem
ég náði ekki að kippa henni upp úr
glervasanum. Hún sprakk líka yfir
allt andlitið. Það næsta sem ég man
er að ég sá hvítt, missti heyrnina og
náði ekki andanum.“
Glerbrotum og sprengjuögnum
rigndi yfir Anton. Auk þess sem
hann fékk glerbrot inn í annað aug-
að brunnu hornhimnurnar af báð-
um augunum og andlitið var svart og
blóðugt. Hljóðhimnurnar sprungu
og úr þeim vall blóðugur, þykkur
vökvi. Hægri handleggur Antons
skaddaðist jafnframt töluvert og
hann hlaut annars og þriðja stigs
bruna í slysinu.
„Eftir á var okkur sagt að ef Anton
hefði gert sprengjuna rétt þá hefði
hann dáið í slysinu. Það sem bjarg-
aði honum var að hann þjappaði
ekki púðrinu eins og er yfirleitt gert.
En sem betur fer hafði hann ekki vit
á því,“ segir Helga móðir hans og
hryllir sig.
Hún segir að þau Gunnar hafi
verið heima þetta kvöld þegar vinur
Antons hringdi og bað þau um að
koma strax þar sem Anton hefði lent
í slysi. Þau höfðu ekki minnsta grun
um hvað biði þeirra á slysstað. Þau
töldu að hann hefði kannski brennt
sig á puttanum og Helga tók sér því
tíma til að þrífa og fylla tveggja lítra
gosflösku af köldu vatni til að kæla
brunasárið áður en hún fór af stað.
Héldu að Anton væri blindur
Eftir slysið ráfaði Anton inn í
nærliggjandi blómabúð og vinur
hans hringdi, áður en hann hafði
samband við foreldra Antons, í
Neyðarlínuna. Fyrir tilviljun var eig-
andi blómabúðarinnar staddur í
versluninni og gat hleypt þeim inn
og Anton komst strax að vaski þar
sem hann kældi andlitið.
„Það fyrsta sem ég hugsaði og
sagði upphátt eftir slysið var að ég
væri orðinn blindur. Ég var alveg viss
um það,“ segir Anton en þegar pabbi
hans kom hlaupandi stóð hann við
vaskinn og var að skvetta vatni fram-
an í sig.
„Mér brá svakalega þegar ég sá
hann. Ég stoppaði mömmu hans af,
hún var rétt fyrir aftan mig, og sagði
að þetta væri alltof mikið. Ég vildi
hlífa henni við því að sjá hann svona.
En hún hlustaði auðvitað ekki á
Anton afmyndaðist
eftir flugeldaslys Hefur lært Anton Freyr er búinn að læra
sína lexíu.
Mynd SigTryggur Ari
Á spítalanum
Á meðan læknar
og hjúkrunarfólk
gerði að sárum
Antons var honum
haldið sofandi.
Mynd Úr einkASAfni
„Auk þess sem
hann fékk glerbrot
inn í annað augað brunnu
hornhimnurnar af báðum
augunum og andlitið var
svart og blóðugt.
Bataferlið var sársaukafullt Fyrstu dagana eftir slysið var óvíst hvort Anton fengi sjónina aftur. Mynd Úr einkASAfni