Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Qupperneq 56
Helgarblað 17.–20. febrúar 2017 13. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Nei, Atli það nokkuð! ÖLL LJÓS Á 25% AFSLÆTTI TIL 23. FEBRÚAR 1 byko.is Ö ll v er ð er u bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r o g/ eð a m yn da br en gl. T ilb oð g ild a t il 2 4. o kt ób er eð a á m eð an b irg ði r e nd as t. ÞÚ FÆRÐ PERURNAR Í BYKO AUÐVELT AÐ VERSLA Á BYKO.IS Ráðherra- íbúð til sölu n Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur sett íbúðina sína á sölu. Um er að ræða mjög huggulega, mikið endurnýjaða íbúð í Furugrund 58 í Kópavogi. Íbúðina keypti hún ásamt manni sínum 2015 en hjá ungu fólki gerast hlutirnir hratt. Kolbrún er síðan orðin ráðherra í ríkisstjórn Íslands auk þess þau hjónin eignuðust sitt annað barn nýverið. Íbúðin er 91 fermetri, fjögurra herbergja – að meðtöldu stóru kjallaraher- bergi – og er í fallegu hverfi við Foss- vogsdalinn. Ásett verð er 37,9 milljónir króna. E f ákveðnum aðilum verður að ósk sinni þá verð ég gjaldþrota á þessu ári vegna meiðyrða- mála,“ skrifar blaðamaðurinn Atli Már Gylfason á Twitter. Tilefnið er erindi sem Atli Már hefur feng- ið frá Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni, lögmanni Guðmundar Spartakus Ómarssonar sem Atli Már fjallaði um í Stundinni í fyrra. DV greindi frá því á dögunum að Guðmundur Spartakus hafi far- ið fram á ómerkingu fjölda ummæla og vill skaðabætur vegna umfjöll- unar sem Atli Már birti í Stundinni. Rakel Þorbergsdóttur, fréttastjóra RÚV, Pálma Jónassyni, Jóhanni Hlíðari Harðarsyni og Hjálmari Friðrikssyni fréttamönnum á RÚV, hefur einnig verið stefnt, rétt eins og Sigmundi Erni Rúnarssyni, dag- skrárstjóra á Hringbraut, vegna um- fjöllunar um Guðmund. Atli Már tjáði sig um stefnu Vil- hjálms á Twitter á dögunum og hvatti Guðmund Spartakus til að einbeita sér að því að hjálpa til við upplýsa mannshvarf í stað þess að lögsækja blaðamenn eins og „aumingi“. Í þessu samhengi má nefna að nafn Guðmundar Sparta- kus hefur oft komið upp í tengslum við fréttaflutning af hvarfi Friðriks Kristjánssonar sem ekkert hefur spurst til síðan í apríl 2013. Ríkisút- varpið birti frétt í byrjun síðasta árs þar sem haft var eftir ABC-Color að Guðmundur Spartakus væri valda- mikill dópsmyglari í Suður-Ame- ríku. Vilhjálmur hefur nú sent Atla Má bréf þar sem þess er krafist, fyrir hönd Guðmundar, að Atli biðjist af- sökunar á ummælunum á Twitt- er, um meintan aumingjaskap um- bjóðanda hans. Atli var önnum kafinn þegar DV leitaði til hans en sagði áður en hann kvaddi: „Fyrirgefðu vinur minn, en ég hef mikilvægari hnöpp- um að hneppa en að elta ólar við þennan lögmann.“ n baldur@dv.is Krefur Atla um afsökunarbeiðni „Ég hef mikilvægari hnöppum að hneppa,“ segir Atli Már Gylfason um kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar Líka önnum kafinn Vilhjálmur er lögmaður Guðmundar Spartakus. MyndiR SiGtRyGGuR ARi Önnum kafinn Atli Már hefur í nógu að snúast, nú sem endranær. Smint og engin ölvun n Áfengisfrumvarpið myndar enn á ný mikla umræðu og snörp skoðanaskipti í samfélaginu og hvergi meiri en á samfélagsmiðl- um þar sem fólk á öndverðum meiði tekst á og stutt er í öfgarnar í báðar áttir. Síðan eru þeir sem sjá kómísku hliðar málsins og reita af sér brandara yfir umræðunni. Einn þeirra er Kastljósstjarnan Helgi Seljan sem í vikunni hefur velt fyrir sér öðrum hliðum frumvarpsins, á léttu nótunum. „Pælir enginn í því hversu margir munu geta keyrt fullir og komist upp með það, þegar þeir geta keypt Smint og hálsbrjóstsykur með Vodkanu?“ Þá sér Helgi líka kosti frum- varpsins. „Karlar munu verða duglegri að versla í mat- inn. Konurnar fá meiri tíma til að snyrta sig og lesa dönsku blöðin,“ segir kaldhæðin Kastljósstjarnan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.