Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Page 10
vikublað 7.–9. mars 201710 Fréttir Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500 Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526 www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is BT rafma gnstjakk ar - auðveld a verkin ! • 1300 kg. lyftigeta • 24V viðhaldsfrír rafgeymir • Innbyggt hleðslutæki (beint í 220V) • Aðeins 250 kg. að þyngd Ákvarða launin sín í næstu viku Stefnt að því að taka ákvörðun um framtíðarskipulag launamála borgarfulltrúa 17. mars T aka á ákvörðun um fyrir­ komulag launa borgarfull­ trúa 17. mars næstkomandi. Við ákvörðun kjararáðs 29. október síðastliðinn um hækkun launa þingmanna brugðust borgarfulltrúar ókvæða við og ákváðu að hækka ekki laun sín í samræmi við þá hækkun, sem að öllu jöfnu hefði átt að eiga sér stað. Helst er horft til þess að tengja laun borgar fulltrúa við launavísitölu í landinu. Kjararáð hleypti öllu upp Laun borgarfulltrúa hafa miðast við 77,82 prósent af þingfararkaupi og nam sú upphæð tæpum 600 þúsund krónum fyrir ákvörðun kjararáðs. Kjararáð ákvað að hækka þingfarar­ kaup upp í ríflega 1,1 milljón króna sem hefði þýtt að hækka hafði átt laun borgarfulltrúa upp í ríflega 850 þúsund krónur að óbreyttu. Það vildi borgarstjórn hins vegar ekki og sam­ þykkti 15. nóvember að laun skyldu að sinni haldast óbreytt. Sú samþykkt hefur verið framlengd í tvígang en nú sér líklega fyrir endann á málinu. Horft til launavísitölu Líf Magneudóttir, forseti borgar­ stjórnar, vonast til að hægt verði að taka ákvörðun um launakjör borgar­ fulltrúa í næstu viku. „Enn hefur ekki verið tekin nein ákvörðun hjá okk­ ur. Við erum hins vegar að skoða út­ reikninga fjármálaskrifstofu borg­ arinnar hvað varðar það hvort hægt sé til dæmis að tengja laun borgar­ fulltrúa við launavísitölu og aftengja þau þannig við þingfararkaup. Það kemur líka til greina að halda áfram tengingu við þingfararkaup en lækka hlutfallið. Það er það sem við erum að skoða í augnablikinu. Við erum líka að skoða hvernig við getum haldið okkur innan Salek­samkomu­ lagsins. Við berum vonir til að geta afgreitt þetta á fundi forsætisnefndar borgarinnar 17. mars næstkomandi.“ Líf segir að áður en til afgreiðslu komi muni vitanlega verða fundað með borgarfulltrúum og varaborgar­ fulltrúum og þeim kynntar tillögurn­ ar og leitað viðbragða við þær. Reikn­ að er með að sá fundur verði haldinn í þessari viku. Ekki gott að fulltrúar ákveði eigin laun Eftir að starfsgreiðslur þingmanna voru lækkaðar í síðasta mánuði eru laun þingmanna í samræmi við þróun launavísitölu síðastliðinn áratug. Spurð hvort það muni hafa áhrif á ákvörðunina um með hvaða hætti laun borgarfulltrúa verða ákvörðuð svarar Líf því til að hún telji það ekki eiga að hafa áhrif. Hún bætir því við að hennar mat sé að það sé ekki gott að sveitar­ stjórnarfulltrúar séu að vasast í því að ákvarða eigin laun, þótt sveit­ arstjórnarlög segi svo til. „Það var bara ekki hægt að kyngja öllum þessum gríðarlegu launahækkun­ um, þessum stökkum sem kjör taka með ákvörðunum kjararáðs.“ Ekki víst að ákvörðunin verði afturvirk Spurð hvort launabreytingar muni verða afturvirkar, þar eð nú séu liðnir fjórir mánuðir án þess að málið hafi verið klárað segir Líf að um það hafi ekki verið teknar ákvarðanir og hún sjái ekki endilega fyrir sér að þess gerist þörf. „Það skiptir máli hvort ákveðið verður að halda áfram tengingu við þingfararkaup með lægri prósentu. Ef við aftengjum laun borgarfulltrúa við þingfarar­ kaup og tengjum þau við almenna launaþróun þá munum við ekki leið­ rétta afturvirkt, það væri bara ný leið sem verið væri að fara. Mér finnst ekki einsýnt að það þurfi að leið­ rétta launagreiðslur afturvirkt þó að ákvörðun yrði tekin um að halda við tengingu við þingfararkaup. Það get­ ur hins vegar verið að einhverjir séu þeirrar skoðunar, margar starfsstétt­ ir hafa fengið afturvirka leiðréttingu, eins og kennarar, og þá verður það bara skoðað.“ n Freyr Rögnvaldsson freyr@dv.is Ákvarða loks launin Stefnt er að því ákvarða með hvaða hætti launakjör borgarfulltrúa verða í næstu viku, segir Líf Magneudóttir, forseti borgarstjórnar. Mynd SigtRygguR ARi Þarf maður virkilega að pakka niður enn einu sinni? Öllum starfsmönnum saltfiskverk­ unarinnar Hólmsteins Helgasonar ehf., HH, á Raufarhöfn var á mánudag tilkynnt að vinnslu verði hætt í vor. Fyrirtækið fékk ekki 100 tonna aukakvóta, sem hugsaður er til að styrkja veikar byggðir. GPG, sem hefur 30 manns í vinnu á Húsavík og Raufarhöfn, fékk kvót­ ann. Það staðfestir forsvarsmaður GPG í samtali við DV. GPG hafði áður fengið 400 tonna byggða­ kvóta til tveggja ára. Gunnar Finnbogi Jónasson, verkstjóri hjá HH, segir í samtali við DV að fólk sé gapandi vegna ákvörðunarinnar. „Við vorum að vonast til að fá einhverja hlutdeild í þessum kvóta.“ Hjá fyrirtækinu starfa sjö manns en það gerir út tvo báta frá Raufarhöfn, sem hefur mjög átt undir högg að sækja undanfarin ár, eins og fleiri þorp á norðausturhorni landsins. Um 190 manns búa á Raufarhöfn. Á samfélagsmiðlum má sjá að starfsfólki er mjög brugðið enda eru atvinnutækifæri af skornum skammti á svæðinu. „Þarf maður virkilega að fara að pakka niður enn einu sinni?“ spyr einn þeirra á Facebook. Gunnar segir að ekki hafi verið um eiginlegar uppsagnir að ræða. Fyrirtækið hafi viljað upplýsa fólk um stöðuna svo það gæti sjálft gert ráðstafanir áður en til stöðvun­ ar kemur. Þeir vilji ekki standa í vegi fyrir þeim sem finna sér eitt­ hvað annað að gera. Hann segir að reksturinn hafi verið þungur að undanförnu, enda hafi krónan styrkst mikið frá því fyrirtækið hóf verkunina. „Ég er ekki farinn að hugsa neitt um það,“ segir Gunnar, spurður hvað hann sjái fyrir sér að gera þegar vinnslan stöðvast. Bátar fyrirtækisins verða gerðir út á grásleppu í vor en að þeirri vertíð lokinni verði hlé á vinnslu út þetta ár, hið minnsta. U m 148 þúsund erlendir ferða­ menn fóru frá landinu í febrúar síðastliðnum samkvæmt taln­ ingu Ferðamálastofu í Flug­ stöð Leifs Eiríkssonar, eða 47.600 fleiri en í febrúar í fyrra. Fjölgunin nemur 47,3 prósentum milli ára. Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu. Árin á undan fjölgaði ferðamönn­ um jafnframt mikið milli ára, en fjölg­ unin nam 31,2 prósentum frá 2013– 2014, 34,4 prósentum frá 2014–2015 og 42,9 prósentum frá 2015–2016. Frá áramótum hafa 284 þúsund erlendir ferðamenn farið úr landi um Keflavíkurflugvöll sem er 59,5 prósentum meira en á sama tímabil í fyrra. Bandaríkjamenn voru um helmingur ferðamanna, en Bretar voru 31,9 prósent. Þar á eftir komu Kínverjar (5,7%), Frakkar, Þjóðverjar, Kanadamenn, Hollendingar, Pól­ verjar, Japanir, Spánverjar, Danir og Norðmenn. n 148 þúsund fóru frá landinu í febrúar ÓTrúleg fjölgUn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.