Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2017, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2017, Blaðsíða 28
Vikublað 4.–6. apríl 201724 Lífsstíll Bleikt P étur er vinsæll snappari, en hann snappar undir nafninu Grameðlan (gramedlan), og birtir þar eitt og annað sem á daga hans drífur. Snapchat er miðill í sókn, en Pétur er líklega eini snapparinn á landinu sem hefur tekið fylgjendur sína með í ófrjó- semisaðgerð, eða herraklippingu eins og aðgerðin er oft kölluð. Við Pétur hittumst á kaffihúsi í Kringlunni og ég byrjaði vitaskuld á því að spyrja hvernig honum liði í sáðrásunum. „Ljómandi vel þakka þér fyrir. Það er langt síðan einhver hefur spurt mig að þessu. Kannski síðast í læknisskoðun í Laugarnes- skóla, en það getur verið að mig mis- minni,“ svaraði Pétur. Hvernig skyldi annars standa á því að hann tók ákvörðun um að hleypa þjóðinni með sér í aðgerð á sínu allra heilagasta – aðgerð sem margir líta á sem einkamál og jafnvel mikið feimnismál. „Ég hugsaði með mér að þetta væri nú ekkert mál, því ég sýni á mér beran rassinn í þriðja hverju mynd- skeiði sem ég set á Snapchat.“ Þarna vísar Pétur í tiltekna hefð sem hófst þegar hann var staddur í Stokkhólmi með Grétu Salóme og fríðu Eurovision-föruneyti og birti myndskeið af afturenda sínum við góðan róm fylgjenda. Þetta gerði hann vitaskuld til að lýsa yfir stuðn- ingi við Grétu eftir að mynd af henni á einni æfingunni birtist á forsíðu Fréttablaðsins og sumum þótti sjást ansi mikið í hennar vel þjálfaða rass. Rassagrínið hefur svo undið upp á sig og nú fer Pétur reglulega fá- klæddur út á svalir sínar að morgni dags og stígur lítinn en þokkafullan dans við Morgunstemningu eftir Edward Grieg. Að sögn hans snýst gjörningurinn um að sýna fólki að það sé ekkert að því að vera með rass! Þarf ekki að vera feimnismál „Ég ræddi málið við eldri systur mína, og auðvitað lækninn. Systur minni þótti þetta hið besta mál, því það er til svo margt fólk sem veigrar sér við því að ræða mál sem þessu tengjast. Mér fannst fínt að sýna fram á að þetta þyrfti alls ekki að vera neitt tabú. Vinur minn Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, eða BNAK eins og hann er kallaður, kom með mér í að- gerðina en hann fór einmitt í eins að- gerð fyrir nokkru síðan og er að auki kvikmyndatökumaður.“ Pétur sýndi frá öllu ferlinu á Snapchat og síðar á Facebook. „Allt sem ég sýndi þarna var ekta. Til dæmis þegar ég vaknaði eftir að- gerðina, kolruglaður og eldrauður í framan. Ég var sko ekkert að ýkja. Viðbrögðin sem ég fékk voru miklu meiri en ég bjóst við. Bæði konur og karlar höfðu samband og þökkuðu mér fyrir og spurðu mig um ýmis- legt sem tengdist aðgerðinni. Nokkr- ir karlmenn sendu mér skilaboð um að nú skyldu þeir láta af þessu verða eftir margra ára umhugsun.“ Þetta var einmitt það sem Pétur vonaðist eftir. „Þetta sýnir okkur bara að það er miklu betra að opna umræðuna um alls konar hluti en að gera það ekki. Það er ekki eins og ég hafi verið að játa á mig einhvern stórglæp – ég var bara í ófrjósemisaðgerð og sagði frá því. Það virðist svo mikil lækna- feimni í gangi hjá fólki.“ Ekki vísitölumaður Pétur á 12 ára dóttur sem býr í Noregi hjá móður sinni og fóstur- föður, en kemur þó reglulega til Ís- lands í heimsókn. „Ég ætlaði aldrei að eignast börn, þó að auðvitað sé ég himinlifandi með dóttur mína og elski hana heitt. Ég vissi það mjög snemma að ég yrði ekki fjölskyldu- maður og mundi alls ekki fara hina dæmigerðu vísitöluleið í lífinu. Það merkilega er að fjölskylda mín sætt- ir sig alveg við mitt val og ég hef aldrei þurft að hlusta á kvabb um hvort ég ætli nú ekki að fara að finna mér konu og fjölga mér.“ Athyglissýki? Hvað er málið með Snapchat – er þetta athyglissýki, leið út úr ein- manaleika eða hvað? Pétur segist hafa áttað sig á því fyrir réttu ári að Snapchat gæti verið mikilvægur miðill fyrir hann til að eiga fyrir salti í grautinn, já og fyrir kattamat. „Kannski að þetta sé einhver tegund af athyglissýki, en mér finnst mjög skemmtilegt að deila jákvæðum hlutum. Inni við beinið er ég mikill einfari og ekki endilega mikið að ota mínum tota hvert sem ég fer. Þegar ég tek upp myndskeið fyrir snappið er ég einn og finnst mjög óraunverulegt að vita til þess að svona margir horfi á mig.“ Í skemmtanabransanum skiptir máli að vera sýnilegur. „Ég og kettirnir eigum allt okkar undir því að síminn hringi þegar einhver er að halda veislu, eða vant- ar skemmtikraft. Mér finnst þetta skemmtilegur miðill til að vera sýni- legur.“ Dansar á línunni Þeir sem fylgjast með Pétri hafa ekki aðeins fengið að kynnast rassinum hans og kisunum, heldur snapp- ar hann gjarnan um þau verkefni sem hann starfar að hverju sinni, til dæmis Eurovision, en þar hefur Pétur verið fastagestur í bakröddum lengi vel. „Fólk fær innsýn í það sem ger- ist baksviðs og það hefur virkað vel. Þó að það sé um 2.500 manna kjarni sem virðist fylgjast með öllu sem ég geri er ég alltaf hræddur um að vera ekki nógu fyndinn eða fræðandi. Stundum held ég að fólk sé búið að fá nóg af kattasnöppum og segi það við fylgjendur mína – en þá bregst ekki að ég fæ holskeflu af skilaboð- um á móti um að fólk elski kettina mína og vilji endilega sjá meira af þeim. Ég man ekki til þess að hafa fengið annað en jákvæð viðbrögð, enda er ég bara með fimmaura- brandara, kisusnöpp og hlaupandi allsber úti á svölum – svona fyrir utan það sem tengist vinnunni. Ég dansa á grófri línu og kem yfirleitt út eins og bjáni. Það skiptir mestu máli að gera grín að sjálfum sér, með því held ég mig réttum megin línunn- ar.“ n Sýnir á sér beran rassinn á Snapchat Hann er kenndur við frelsaran sjálfan, Jesúm, en viðurnefnið er tilkomið vegna hlutverks hans í söngleiknum Jesus Christ Superstar, sem sýndur var í Borgar- leikhúsinu árið 1995. Svo sannarlega örlagaríkt, því Pétur Örn Guðmundsson verður líklega þekktur sem Pétur Jesú meðan hann dregur andann. Undarlegur dagur Að morgni fór ég í eftirskoðun hjá lækninum sem gelti mig, til að kanna hvort allt væri í lagi og hvort pínulitlu götin, sem aðgerðin var gerð í gegnum, væru að gróa rétt. Ég lá á bakinu á bekk á meðan hann gruflaði í mínu allra heilagasta. Síðar um daginn fór ég með Eurovision- hópnum í spreybrúnku og stóð þar allsber fyrir framan bláókunnuga stúlku sem sprautaði mig brúnan. Þar sem ég stóð þarna nakinn með handleggina út frá síðunum hugsaði ég með mér að þetta væri dálítið fyndið – ég var búinn að bera mig fyrir framan tvo ókunnuga einstaklinga sama daginn, og það var bara allt í lagi. Af hverju er það svona mikið mál að vera nakinn fyrir framan annað fólk? Mér finnst við gera aðeins of mikið mál úr nekt. Það eru allir einhvern veginn og við þurfum ekki að skammast okkar. Ekkert feimnis- mál Pétri fannst nú lítið mál að hleypa Snapchat- fylgjendum með í herraklippinguna. MynD SiGtryGGur Ari ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is Ekki vísitölu- maður Pétur vissi ungur að hann yrði aldrei fjölskyldumaður. MynD SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.