Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2017, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2017, Blaðsíða 24
Vikublað 4.–6. apríl 201720 Sport Þ að eru ekki nema 105 dagar í að íslenska kvenna- landsliðið hefji leik á EM í Hollandi í sumar. Fyrsti leikur liðsins er gegn Frakk- landi þann 18. júlí næstkomandi. Miðað við þá ótrúlegu stemmingu sem skapaðist á landinu í fyrra- sumar þegar strákunum gekk vel má ekki útiloka að eitthvað svip- að muni eiga sér stað í sumar ef stelpurnar okkar, sem hafa í dag talsverða reynslu af stórmótum, geri gott mót. Er útlitið svart? Það er hins vegar ljóst að útlitið hef- ur oft verið bjartara en um þessar mundir, lykilmenn eru meiddir og þá átti Harpa Þorsteinsdóttir barn á dögunum og ekki er öruggt að henni takist að koma sér í toppform á þessum 105 dögum sem eru til stefnu. Það hefur hins vegar orðið ljóst síðan Harpa þurfti að taka sér pásu vegna þungunar sinnar að hún er landsliðinu afar mikilvæg. Sóknarleikur liðsins hefur verið slakur á þeim tíma sem Harpa hef- ur verið fjarverandi. Harpa skoraði tíu mörk í undankeppninni sem tryggði liðinu leið inn á EM. Þar skoraði liðið 34 mörk en Harpa var ekki bara sú sem skoraði mest heldur skapaði hún mikið fyrir liðsfélaga sína. Hún tek- ur mikið til sín og skapar þannig svæði sem félagar hennar geta nýtt sér. Freyr Alexandersson, þjálfari liðsins, hlýtur einfaldlega að liggja á bæn og vona að Harpa nái sér áður en boltinn fer að rúlla í Hollandi. Harpa er farin að stunda hreyfingu og vonast til að ná sér. Þjálfarinn hefur áhyggjur Freyr Alexandersson hefur aldrei ferið í felur með neitt síðan að hann tók við landsliðinu, hann veit af þeim vandamálum sem hafa komið upp síðan að Harpa þurfti frá að hverfa. Freyr hefur breytt um leikkerfi sem enginn sá fyrir enda var liðið eins og smurð vél í undankeppninni, vörnin hélt vel og sóknarleikurinn var eins og best varð á kosið. Í undankeppni EM lék liðið alltaf útgáfu af 4-3-3 kerf- inu. Undanfarið hefur Freyr verið að prófa sig áfram með 3-4-3 kerfið og útgáfur af því. Allt er það vegna þess að sóknarleikur liðsins, án Hörpu, hefur verið slakur, aðrir leikmenn hafa fengið tækifærið en ekki nýtt sér það. „Harpa myndi hjálpa liðinu, hún gerir íslenska liðið betra. Hún er ekki bara að skora, hún skapar líka pláss. Ég hef ekki verið ánægð- ur með þau svör sem ég hef fengið í fjar- veru hennar. Þegar Harpa kom inn í mitt kerfi hafði hún ekki skorað mikið en það tók hana 4–5 leiki að skora fyrsta markið. Ég er ekki bú- inn að gefast upp á þeim sem hafa fengið tækifæri, þeir leikmenn hafa hæfileika. Þær hafa möguleika á að stíga upp. Sóknarleikurinn er aug- ljóst vandamál en ég er búinn að skoða þetta og á meðan hún er ekki að spila þá er mér alveg sama hvar mörkin koma,“ sagði Freyr um mál- ið. Áföll í Portúgal Liðið hélt til Algarve á dögun- um þar sem það tók þátt í sterku æfingarmóti, ferðin skildi hins vegar eftir fleiri vandamál en lausnir. Strax í fyrsta leik gegn Noregi meiddust bæði Dóra Mar- ía Lárus dóttir og Sandra María Jessen alvarlega. Meiðslin eru þess eðlis að þær missa að öllum líkind- um báðar af EM, Sandra María reyn- ir að halda í vonina um ótrúlega skjót- an bata en sú von er afar veik. Að auki er Hólm- fríður Magnúsdóttir í kappi við tímann eftir fótbrot og ekki er víst hvenær hún kemst á fullt aftur, hún reyndist liðinu einnig mikil- væg sóknarlega. Dagný Brynjars- dóttir er svo einn allra mikilvæg- asti leikmaður liðsins en vandræði hennar með meiðsli hafa sett strik í reikninginn í leikjum landsliðsins í upphafi árs. Vonir standa þó til að hún verði heil heilsu tæpum tveim- ur mánuðum áður en ballið byrj- ar í Hollandi. Það þarf ekki að hafa meistaragráðu í neinu fagi til að sjá að svona stuttu fyrir mót er ástandið ekki eins og þjálfarinn klóki hefði viljað hafa það. Mörg spurningar- merki voka yfir liðinu sem hefur þó ótrúlegan karakter sem hjálpar til á tímum sem þessum. Mikilvægir dagar fram undan Það eru mikilvægir dagar fram und- an hjá landsliðinu þessa stundina þar sem liðið leikur tvo æfingarleiki, sá fyrri er gegn Slóvakíu á fimmtu- dag en báðir leikirnir eru ytra. Í Slóvakíu gæti gefist kjörið tæki- færi fyrir íslenska liðið að byggja upp sjálfstraust á nýjan leik og þá er tækifærið gott fyrir sóknarmenn liðsins sem hafa átt erfitt uppdrátt- ar í að finna markaskóna sína á nýj- an leik. Síðari leikurinn er svo gegn Hollandi eftir slétta viku, sá tími sem liðið fær þar í landi og leik- urinn gegn Hollandi er góð próf- raun. Liðið nær að kynnast aðstæð- um í landinu þar sem það dvelur á EM í sumar. Þá er Holland sterkur andstæðingur sem mun reyna tals- vert á varnarlínu liðsins og verða henni stór prófraun. Hver dagur fram að móti þarf svo að nýtast vel í að fá lykilmenn heila heilsu til að íslenska þjóðin geti verið stolt af þessu landsliði okkar í Hollandi í sumar. n 105 dagar í EM og útlitið ekki nógu gott n Ýmis ljón í veginum fyrir íslenska liðið n Barneign Hörpu valdið þjálfaranum höfuðverk Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is „Ég hef ekki verið ánægður með þau svör sem ég hef fengið í fjarveru hennar Mörg spurningarmerki Freyr segist vera alveg sama hvaðan mörkin koma. Sóknarleikur liðsins hefur verið slakur í fjarveru Hörpu Þorsteinsdóttur. Mynd EPA Styttist í mót Íslenska landsliðið undirbýr sig nú fyrir EM í Hollandi í sumar. Mynd EPA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.