Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2017, Síða 24
Vikublað 4.–6. apríl 201720 Sport
Þ
að eru ekki nema 105
dagar í að íslenska kvenna-
landsliðið hefji leik á EM
í Hollandi í sumar. Fyrsti
leikur liðsins er gegn Frakk-
landi þann 18. júlí næstkomandi.
Miðað við þá ótrúlegu stemmingu
sem skapaðist á landinu í fyrra-
sumar þegar strákunum gekk vel
má ekki útiloka að eitthvað svip-
að muni eiga sér stað í sumar ef
stelpurnar okkar, sem hafa í dag
talsverða reynslu af stórmótum,
geri gott mót.
Er útlitið svart?
Það er hins vegar ljóst að útlitið hef-
ur oft verið bjartara en um þessar
mundir, lykilmenn eru meiddir og
þá átti Harpa Þorsteinsdóttir barn
á dögunum og ekki er öruggt að
henni takist að koma sér í toppform
á þessum 105 dögum sem eru til
stefnu. Það hefur hins vegar orðið
ljóst síðan Harpa þurfti að taka sér
pásu vegna þungunar sinnar að
hún er landsliðinu afar mikilvæg.
Sóknarleikur liðsins hefur verið
slakur á þeim tíma sem Harpa hef-
ur verið fjarverandi.
Harpa skoraði tíu mörk í
undankeppninni sem tryggði liðinu
leið inn á EM. Þar skoraði liðið 34
mörk en Harpa var ekki bara sú sem
skoraði mest heldur skapaði hún
mikið fyrir liðsfélaga sína. Hún tek-
ur mikið til sín og skapar þannig
svæði sem félagar hennar geta nýtt
sér. Freyr Alexandersson, þjálfari
liðsins, hlýtur einfaldlega að liggja
á bæn og
vona að
Harpa nái
sér áður en boltinn fer að rúlla í
Hollandi. Harpa er farin að stunda
hreyfingu og vonast til að ná sér.
Þjálfarinn hefur áhyggjur
Freyr Alexandersson hefur aldrei
ferið í felur með neitt síðan að
hann tók við landsliðinu, hann veit
af þeim vandamálum sem hafa
komið upp síðan að Harpa þurfti
frá að hverfa. Freyr hefur breytt
um leikkerfi sem enginn sá fyrir
enda var liðið eins og smurð vél í
undankeppninni, vörnin hélt vel
og sóknarleikurinn var eins og best
varð á kosið. Í undankeppni EM
lék liðið alltaf útgáfu af 4-3-3 kerf-
inu. Undanfarið hefur Freyr verið
að prófa sig áfram með 3-4-3 kerfið
og útgáfur af því. Allt er það vegna
þess að sóknarleikur liðsins,
án Hörpu, hefur verið slakur,
aðrir leikmenn hafa fengið
tækifærið en ekki nýtt sér
það.
„Harpa myndi hjálpa
liðinu, hún gerir íslenska liðið
betra. Hún er ekki bara að skora,
hún skapar líka pláss. Ég hef
ekki verið ánægð-
ur með þau svör
sem ég hef
fengið í fjar-
veru hennar.
Þegar Harpa
kom inn í mitt
kerfi hafði hún
ekki skorað
mikið en það tók hana 4–5 leiki að
skora fyrsta markið. Ég er ekki bú-
inn að gefast upp á þeim sem hafa
fengið tækifæri, þeir leikmenn hafa
hæfileika. Þær hafa möguleika á að
stíga upp. Sóknarleikurinn er aug-
ljóst vandamál en ég er búinn að
skoða þetta og á meðan hún er ekki
að spila þá er mér alveg sama hvar
mörkin koma,“ sagði Freyr um mál-
ið.
Áföll í Portúgal
Liðið hélt til Algarve á dögun-
um þar sem það tók þátt
í sterku æfingarmóti,
ferðin skildi hins vegar
eftir fleiri vandamál
en lausnir. Strax í
fyrsta leik gegn
Noregi meiddust
bæði Dóra Mar-
ía Lárus dóttir
og Sandra
María Jessen
alvarlega.
Meiðslin eru
þess eðlis að
þær missa að
öllum líkind-
um báðar af
EM, Sandra
María reyn-
ir að halda í
vonina um
ótrúlega skjót-
an bata en sú
von er afar veik.
Að auki er Hólm-
fríður Magnúsdóttir
í kappi við tímann eftir
fótbrot og ekki er víst
hvenær hún kemst á
fullt aftur, hún reyndist
liðinu einnig mikil-
væg sóknarlega. Dagný Brynjars-
dóttir er svo einn allra mikilvæg-
asti leikmaður liðsins en vandræði
hennar með meiðsli hafa sett strik í
reikninginn í leikjum landsliðsins í
upphafi árs. Vonir standa þó til að
hún verði heil heilsu tæpum tveim-
ur mánuðum áður en ballið byrj-
ar í Hollandi. Það þarf ekki að hafa
meistaragráðu í neinu fagi til að sjá
að svona stuttu fyrir mót er ástandið
ekki eins og þjálfarinn klóki hefði
viljað hafa það. Mörg spurningar-
merki voka yfir liðinu sem hefur þó
ótrúlegan karakter sem hjálpar til á
tímum sem þessum.
Mikilvægir dagar fram undan
Það eru mikilvægir dagar fram und-
an hjá landsliðinu þessa stundina
þar sem liðið leikur tvo æfingarleiki,
sá fyrri er gegn Slóvakíu á fimmtu-
dag en báðir leikirnir eru ytra. Í
Slóvakíu gæti gefist kjörið tæki-
færi fyrir íslenska liðið að byggja
upp sjálfstraust á nýjan leik og þá
er tækifærið gott fyrir sóknarmenn
liðsins sem hafa átt erfitt uppdrátt-
ar í að finna markaskóna sína á nýj-
an leik. Síðari leikurinn er svo gegn
Hollandi eftir slétta viku, sá tími
sem liðið fær þar í landi og leik-
urinn gegn Hollandi er góð próf-
raun. Liðið nær að kynnast aðstæð-
um í landinu þar sem það dvelur á
EM í sumar. Þá er Holland sterkur
andstæðingur sem mun reyna tals-
vert á varnarlínu liðsins og verða
henni stór prófraun. Hver dagur
fram að móti þarf svo að nýtast vel
í að fá lykilmenn heila heilsu til að
íslenska þjóðin geti verið stolt af
þessu landsliði okkar í Hollandi í
sumar. n
105 dagar í EM og
útlitið ekki nógu gott
n Ýmis ljón í veginum fyrir íslenska liðið n Barneign Hörpu valdið þjálfaranum höfuðverk
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
„Ég hef
ekki verið
ánægður með þau
svör sem ég hef
fengið í fjarveru
hennar
Mörg spurningarmerki
Freyr segist vera alveg
sama hvaðan mörkin koma.
Sóknarleikur liðsins hefur
verið slakur í fjarveru Hörpu
Þorsteinsdóttur. Mynd EPA
Styttist í mót Íslenska
landsliðið undirbýr sig nú fyrir
EM í Hollandi í sumar. Mynd EPA