Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2017, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2017, Síða 32
Vikublað 4.–6. apríl 201728 Menning Forréttindi að vera í tónlistarbransanum Karl Olgeirsson og Jón Rafnsson koma fram með Helenu Eyjólfsdóttur á tónleikum í Salnum T ónlistarmennirnir Karl Olgeirsson og Jón Rafnsson eru í hópi þeirra sem koma fram með söngkonunni Helenu Eyjólfsdóttur á tón- leikum í Salnum í Kópavogi, föstu- daginn 7. apríl. Þar syngur söngkon- an lög af geisladiskinum Helena sem kom út fyrir síðustu jól. Karl stjórn- aði upptökum og sá um útsetningar og það er fyrirtæki Jóns, JR Music, sem gefur geisladiskinn út. „Það er frábært að koma fram með mann- eskju eins og Helenu, sem er lifandi goðsögn,“ segir Jón. „Hún er yndis- leg manneskja með mikla og ein- læga útgeislun.“ Karl tekur í sama streng: „Það var frábært að vinna með Helenu, algjör draumur.“ Hugmyndin að geisladisknum fæddist fyrir þremur árum í sam- tali Jóns og Helenu. „Við ákváðum að gera stúdíóplötu,“ segir Jón. „ Helena fékk slatta af lögum til að hlusta á, meðal annars óskaplega fallegt lagt frá Jóhanni G. heitnum og svo bað hún menn eins og Magn- ús Eiríksson og Ingva Þór Kormáks- son að semja fyrir sig lög og einnig eru þarna lög eftir Karl. Svo eru á plötunni nokkur erlend uppáhalds- lög sem hafa fylgt Helenu og hún lét gera íslenska texta við.“ Lög Karls Olgeirssonar á disknum eiga sér skemmtilega forsögu. „ Fyrir um það bil tólf árum fékk ég stóra hugmynd um að krækja mér í hluta af íslensku tónlistar- sögunni og gera plötu með fjórum goðsögnum: Skapta Ólafssyni, Svan- hildi Jakobs, Ragga Bjarna og Helenu Eyjólfs,“ segir Karl. „Ég tók nafnið úr gamalli Humphrey Bogart-mynd, Engir englar, og samdi lög á þessa plötu með félaga mínum Trausta Einarssyni. Ég ætlaði að fá þessa söngvara til að syngja inn á plötuna. Aldrei varð neitt af því. Svo fékk ég allt í einu þetta tækifæri til að vinna með Helenu og tvö þeirra laga sem ég samdi fyrir Enga engla fóru á plötuna hennar, Reykur og Saman á ný þar sem Þorvaldur Halldórs syng- ur með henni.“ Félagarnir komu fram með Helenu á tónleikum á Akureyri um síðustu helgi. Þeir heppnuðust mjög vel, mæting var góð og stemn- ingin frábær. Gestir kunnu greini- lega vel að meta dagskrána, en hún samanstóð af öllum lögum nýju plötunnar auk nokkurra uppáhalds- laga sem fylgt hafa Helenu á henn- ar 60 ára söngferli. Dagskráin verður flutt í Salnum í Kópavogi næstkom- andi föstudag. Þar syngur Helena með hljómsveit en hana skipa Karl Olgeirsson á píanó og hljómborð, Stefán Már Magnússon á gítar, Sig- urður Flosason á blásturshljóðfæri og slagverk, Jón Rafnsson á bassa og Benedikt Brynleifsson á tromm- ur. Sigríður Eyrún Friðriksdóttir kemur einnig fram á tónleikunum og sömuleiðis Þorvaldur Halldórsson. Þorvaldur og Helena eiga 50 ára sam- söngafmæli í ár, byrjuðu að skemmta saman í Sjallanum árið 1967. Forréttindi að vera tónlistarmaður Jón Rafnsson starfar sem tónlistar- kennari við Tónlistarskólann í Hafnarfirði þar sem hann kennir klassískan kontrabassaleik og raf- bassaleik. Hann hefur lengi verið áberandi í íslensku tónlistarlífi, leik- ur með nokkrum tónlistarhópum og hefur unnið í leikhúsum. Karl Ol- geirsson er fjölhæfur listamaður, hljóðfæraleikari, tónlistarstjóri, út- setjari og lagahöfundur og hefur samið tónlist fyrir sjónvarp og kvik- myndir. Þeir félagar starfa saman í Hot Eskimos og þar leikur Karl á píanó, Jón á bassa og þriðji meðlimur- inn, Kristinn Snær Agnarsson, ber trommurnar. Báðir segjast Karl og Jón snemma hafa fengið áhuga á tónlist. „Tónlist hefur alltaf haft djúp áhrif á mig. Fjögurra ára var ég far- inn að semja lög og spila á hljóðfæri og hef aldrei hætt því,“ segir Karl. „Þegar ég byrjaði í menntaskóla var ég búinn að ákveða að verða tónlistar maður, en ákvað að klára skólann til að hafa þá menntun fyrir mömmu og pabba svona til að gleðja þau. Mér finnst það vera forréttindi að vera tónlistarmaður. Maður þarf að vísu alltaf að vera að til að geta lif- að af því, en það er allt í lagi því þetta er svo skemmtilegt starf,“ segir Karl. „Ég ólst upp á heimili þar sem var mikill áhugi á tónlist,“ segir Jón. „Foreldrar mínir sungu í kór í áratugi og pabbi spilar á orgel. Þau hvöttu mig mjög til að fara í músíknám. Ég ákvað að verða tónlistarmaður, hætti í Versló þegar ég var átján ára en á þessum tíma var ég búinn að vera spilandi í sveitaballabransann í tvö ár og langaði að færa tónlistarkunnátt- una á næsta stig.“ Hann stundaði síð- an klassískt tónlistarnám við Tón- skóla Sigursveins D. Kristinssonar, lærði á fiðlu, píanó og kontrabassa og síðan tók við framhaldsnám í kontrabassaleik í Stokkhólmi og þar tók hann einnig tónlistarkennara- próf. Hann sneri heim árið 1990 og bjó í átta ár á Akureyri þar sem hann kynntist Finni Eydal og Helenu Eyjólfsdóttur. „Við Finnur vorum báð- ir kennarar við tónlistarskólann og fórum fljótlega að spila djass saman. Ég kom fyrst fram með þeim báðum á jólatrésskemmtun, Finnur spilaði á klarínett, Helena söng og ég spilaði á píanó. Ég hef verið svo heppinn að spila mikið með fólki sem ég hlust- aði á á uppvaxtarárunum, eins og til dæmis Helenu og Ragga Bjarna og að ógleymdum Gunnari Þórðarsyni, en við Gunnar höfum leikið saman í tríó- inu Guitar Islancio frá 1998.“ Að spila með goðunum Blaðamaður spyr þá félaga hvort það hafi komið fyrir þá að verða feimn- ir eða frá sér numdir fyrir fram- an átrúnaðargoð sín. Jón segir það einu sinni hafa hent sig. „Þá var ég að spila með fleirum, þar á meðal Magga Kjartans, á jólatónleikum í Keflavíkurkirkju. Við hófum að spila Elskaðu náungann með Trúbrot og við fyrstu hljómana opnuðust kirkju- dyrnar og inn gekk Rúnar Júlíusson og söng lagið. Ég stóð þarna upp- numinn og hugsaði með mér að ég væri að spila undir hjá goðinu mínu. Það var frábært augnablik. Mér finnst ég alltaf vera að koma fram með hálfguðum,“ segir Karl. „Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst þeim sem komu á undan okkur í tónlistinni. Í menntaskóla spilaði ég með Mannakornum og ég var eins og kjáni í kringum þá. Gulli Briem spilaði á trommur og spurði félaga minn hvort þessi Kalli Olgeirs væri eitthvað skrýtinn. Ég var bara svona einkennilegur af því að ég var svo feiminn við þá! Ég spilaði einu sinni með Elly Vilhjálms. Það var í upphafi ferilsins og þá var ég tvítugur. Hún sagði mér að þetta væri í fyrsta sinn sem hún syngi við píanóundirleik, því hún væri alltaf með hljómsveit. Elly var frábær, mjög vingjarnleg, og söng eins og drottning.“ Karl er að leggja lokahönd á plötu með Karl Orgeltríó og Ragnari Bjarnasyni, Happy Hour með Ragga Bjarna, en þar leikur Karl á Hamm- ond-orgel, Ólafur Hólm á trommur og Ásgeir Ásgeirsson á gítar. „Raggi syngur ýmis dægurlög í djassútsetn- ingu, lög eftir Björk, Pink og Spandau Ballet, eitthvað sem fólk á kannski ekki von á frá Ragga. Að vinna með Ragga er eins og að vinna með Hel- enu, þar er tónlistarsagan holdi klædd.“ Vínylplata í bígerð Þegar líður að hausti stefnir Hot Eskimos að því að gefa út vínyl- plötu með óútgefnu efni ásamt lög- um af þeim tveim geisladiskum sem tríóið hefur sent frá sér og tónleik- ar verða haldnir í tilefni útgáfunnar. En af hverju tóku þeir vínylinn fram yfir geisladiskaútgáfu? „Ég hef aldrei hætt að hlusta á vínylplötur, á plötu- spilara og hlusta nánast á hverjum degi. Mér finnst gaman að bregða plötu á fóninn,“ segir Karl. „Ég er sammála þessu,“ segir Jón. „Ég á ennþá fyrsta plötuspilarann sem ég eignaðist árið 1976 og hann er enn í toppstandi. Við ákváðum að gefa út vínylplötu vegna þess að það er viss hópur sem kaupir bara vínyl- plötur,“ segir hann. „Hljómurinn er öðruvísi,“ segir Karl, „ekki endi- lega betri en öðruvísi, hlýrri segja sumir. Mér finnst notalegt hvað skammtastærðin er hæfileg, ein hlið er kannski 20 mínútur og svo ræður maður hvort maður snýr plötunni við eða ekki, meðan geisladiskurinn heldur áfram, kannski í klukku- tíma.“ n Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Karl Olgeirsson og Jón Rafnsson „Það er frábært að koma fram með manneskju eins og Helenu, sem er lifandi goðsögn.“ Mynd SigtRygguR ARi „Mér finnst það vera forréttindi að vera tónlistarmaður. Maður þarf að vísu alltaf að vera að til að geta lifað af því, en það er allt í lagi því þetta er svo skemmti- legt starf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.