Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 4
4 Helgarblað 16. júní 2017fréttir M aður á níræðisaldri lenti í skelfilegu slysi um síðustu helgi í annarri af verslun­ um Bónuss á Akur eyri. Hann féll aftur fyrir sig með þeim afleiðingum að hann slas­ aðist illa á höfði og vankaðist. Starfs­ maður verslunarinnar freistaði þess að hringja á Neyðarlínuna úr tveim­ ur mismunandi númerum, þrisvar sinnum alls, en enginn svaraði. Hann náði loks inn í fjórðu tilraun en þá voru liðnar rúmlega sjö mín­ útur frá því að hann reyndi fyrst að hringja. „Það var keyrt á lágmarks­ mönnun þessa vakt út af veikindum og sumarleyfum,“ segir aðstoðar­ framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar og játar að þjónustan hafi verið léleg. „Ég er enn að reyna að gleyma hljóðinu“ Atvikið átti sér stað síðastliðinn laugar­ dag, 10. júní. Maðurinn, sem eins og áður segir er á níræðisaldri, var á leið út úr versluninni. Hann stóð of lengi í dyragættinni með þeim afleiðingum að skynjarar hurðarinnar námu hann ekki og hurðin lokaðist á hann. Mað­ urinn féll þá aftur fyrir sig til jarðar og rak höfuðið harkalega í gólfið. „Ég er enn að reyna að gleyma hljóðinu sem heyrðist þegar höfuð hans skall í jörðina. Það var hrikalegt,“ segir starfsmaður verslunarkeðjunnar, sem ekki vill láta nafns síns getið. Þegar hann kom að lá maðurinn meðvitundarlaus á gólfinu og hafði stór blóðpollur myndast undir höfði hans. „Ég greip í ofboði til símans og hringdi tvisvar í 112 – Neyðarlínuna. Í bæði skiptin hringdi út,“ segir starfs­ maðurinn. Honum var, eðli málsins samkvæmt, verulega brugðið við að enginn skyldi svara. „Viðskiptavinur benti mér þá á að prófa að hringja úr skrifstofusímanum sem ég og gerði. Það hringdi út í fyrstu tilraun en síðan náði ég loks inn í fjórða skiptið,“ segir starfsmaðurinn. Í millitíðinni var hringt beint í síma slökkviliðsins sem sendi sjúkrabíl strax á vettvang. „Mér var verulega brugðið yfir þessu. Maður gerir bara ráð fyrir því að 112 svari. Það er eitt að þjónustan sé léleg en þetta var einfaldlega hættulega lélegt. Það lá mannslíf við og vonandi bæta þeir úr þessu tafarlaust,“ segir starfsmað­ urinn. Hann er einnig ósáttur við við­ brögð starfsmanns Neyðarlínunn­ ar þegar hann loks náði sambandi en hann var, að sögn starfsmannsins, hálf dónalegur í símann. Allt fór þó vel að lokum og kom dóttir mannsins í verslunina tveim­ ur dögum síðar og þakkaði fyrir skjót viðbrögð. „Faðir hennar þurfti að dvelja eina nótt á spítala en er á batavegi. Mér létti gífurlega að heyra það og bað fyrir kæra kveðju,“ segir starfsmaðurinn. Vaktin keyrð á lágmarksmönnun Tómas Gíslason, aðstoðarfram­ kvæmdastjóri Neyðarlínunnar, stað­ festir atburðarásina í skriflegu svari til DV. „Það er tilfellið að þessi tvö símanúmer fá afskaplega slaka þjón­ ustu þarna,“ segir Tómas. Hann upplýsir blaðamann um að símtöl starfsmannsins úr farsímanum hafi slitnað eftir 90 sekúndur en landlínu­ símtalið slitni eftir styttri tíma eða 60 sekúndur. „Hann þarf síðan að bíða í 44 sekúndur eftir að svarað er í fjórða skiptið,“ segir Tómas. Að hans sögn var þessi tiltekna vakt keyrð á lágmarksmönnun, þremur neyðarvörðum, sökum sumarleyfa og veikinda. „ Tilviljun raðar málum þannig að þennan klukkutíma voru símtölin óvenju löng eða að meðaltali 100 sekúndur hvert símtal. Vegna fjölda símtala varð heildartími rúm klukkustund sem dreifist á þessa þrjá,“ segir Tómas. Hann segir að um óheppni hafi verið að ræða því að á þessari sömu klukkustund hafi verið fimm hringingar sem ekki náðist að svara áður en samband slitnar eða skellt er á. „Þar af eru þessi þrjú tilteknu símtöl,“ segir Tómas. Hann tekur sem dæmi að þriðja hringingin hafi verið klukkan 16:27:25 en síðan var fjórða hringingin 16:31:21 þenn­ an dag. „Ef að hringt hefði verið 16:27:30 hefði þetta verið eina sím­ talið í biðröðinni og eins milli 16:29 og 16:30,“ segir Tómas. Að hans sögn geti slíkir toppar alltaf myndast og þá sé lykilatriði að bíða rólegur, láta hringja út og hringja svo aftur. Að hringja úr mörgum símum á sama tíma eykur ekki líkurnar á hraðari svörun heldur eykur aðeins streitu neyðar­ varða. „Sem verða þá kannski stuttara legri við þá sem þeir eru þá þegar að þjóna,“ segir Tómas. n aldraður maður lá n 112 svaraði ekki n Lágmarksmönnun Neyðarlínunnar vegna veikinda og sumarleyfa„Ég er enn að reyna að gleyma hljóð- inu sem heyrðist þegar höfuð hans skall í jörðina Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Verslun Bónuss Viðskiptavinur á níræðisaldri slasaðist í Bónus-verslun á Akureyri um síðustu helgi. 112 svaraði ekki hringingum starfsmanns. í blóði sínu í bónus
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.