Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 8
8 Helgarblað 16. júní 2017fréttir
S
umarnætur á norðurhjara
draga ólíklegasta fólk fram
úr fylgsnum sínum. Hann
var reyndar nokkuð líklegur,
hópurinn sem hittist við
rætur Kirkjufells í Grundarfirði, eitt
sólbjart föstudagskvöld nú í júní.
Ætlunin var að klífa fjallið, sem eins
og margir þekkja er nokkuð bratt
og tignarlegt, og slá upp búðum á
toppnum til þess að fá notið sól
seturs og sólarupprásar með út
sýni yfir Breiðafjörðinn og eyjarnar,
ásamt hluta af Snæfellsnesinu,
Jöklinum og Helgrindum ofan
Grundarfjarðar.
Óumdeildir leiðtogar í þessum
sex kvenna og manna hópi voru
þeir Tómas Guðbjartsson og Ólafur
Már Björnsson, sem eru prímusar í
Félagi íslenskra fjallalækna, FÍFL.
Ekkert slór
„Síðast þegar ég kom hér upp þá
blasti það við mér hversu gaman
væri að tjalda hérna uppi eina fal
lega nótt,“ segir Tómas.
Nú var áliðið kvölds og ekki
mátti slóra til þess að missa ekki
af sólsetrinu, sem standa átti yfir
rétt upp úr miðnætti. Uppgangan
sjálf er nokkuð brött, með klettabelt
um. Fastar línur eru til staðar á fjór
um stöðum þar sem fjallið er erfiðast
yfirferðar. Klifrið er hreint ekki óyfir
stíganlegt, en réttur búnaður og ein
hver reynsla er nauðsynleg. Fjallið er
ekki fyrir lofthrædda. Á toppnum var
slegið upp búðum og fagnað. Hópur
inn hafði stutta hvíld og hélt svo nið
ur strax í morgunsárið.
Snæfellsjökull og Ljósufjöll
Morguninn eftir skipti hópurinn
sér upp. Ólafur Már og hans fólk
héldu áleiðis upp á Snæfellsjökul
á fjallaskíðum í blíðskaparveðri.
Tómas fór svo við þriðja mann til
þess að leiðsegja þrjátíu manna hópi
maraþonhlaupara úr Hlaupahópi
Grafarvogs í ferð yfir Snæfellsnesið,
frá bænum Borg í suðri, yfir Ljósu
fjöll og BotnaSkyrtunnu og ofan í
Álftafjörð í norðri. Tuttugu kílómetra
ferð með alls um 1.300 metra hækk
un.
Himinn var aftur heiður og
hópurinn keikur. Við látum mynd
irnar tala sínu máli, sem margar eru
teknar af Ólafi Má Björnssyni. n
Tjaldað á himnum
Sex manna hópur kleif Kirkjufell í Grundarfirði og sló upp búðum á fjallinu
Sigtryggur Ari Jóhannsson
sigtryggur@dv.is
Búðum slegið upp Hópurinn festi snarlega niður tjöldin og fagnaði svo með léttum
veitingum. Mynd Sigtryggur Ari
Miðnætursól Miðnætursólin
í Grundarfirðinum sveik engan.
Mynd ÓLAfur Már BJörnSSon
norðurhlíðar
Norðurhlíðar
Ljósufjalla eru snævi
þaktar. Mynd Sigtryggur Ari
Í Ljósufjöllum Hlaupahópurinn
taldi ekki eftir sér að skokka upp
fannirnar í Ljósufjöllum. Mynd Sigtryggur Ari
uppgangan Það
er rétt að vanda sig á
fjallinu. Mynd Sigtryggur Ari
Sömu leið til baka
Greinarhöndur fikrar sig niður
línuna. Mynd ÓLAfur Már BJörnSSon
tjaldað á himnum Morgunsólin
vermir tjaldbúðirnar á toppi Kirkjufells.
Mynd ÓLAfur Már BJörnSSon