Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 11
Helgarblað 16. júní 2017 fréttir 11 frumvarp um strandveiðar frá 23. mars og þingsályktunartillaga um mótun eigendastefnu ríkisins fyrir bújarðir sem var lögð fram 16. maí. Öll málin voru lögð fram af þing- mönnum stjórnarandstöðunn- ar. Nefndin skilaði ekki áliti í neinu málanna. Ekkert gerðist á fjórum mánuðum Allsherjar- og menntamálanefnd fékk 28 mál inn á borð sitt á árinu. Af þeim hlutu 12 afgreiðslu eða 43 prósent. Sjö málanna sem afgreiðslu hlutu voru frumvörp dómsmála- ráðherra en auk þess voru afgreidd frumvörp félags- og jafnréttismála- ráðherra um jafnlaunavottun og frumvarp menntamálaráðherra um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Þá voru samþykkt tvö mál þingmanna minnihlutans, þingsályktunartillaga Svandísar Svavarsdóttur um jafn- ræði í skráningu foreldratengsla og þingsályktunartillaga Valgerðar Gunnarsdóttur um uppbyggingu að Hrauni í Öxnadal. Meðal þeirra mála sem komu inn á borð nefndarinnar og ekki voru af- greidd á Alþingi var þingsályktunar- tillaga Vilhjálms Bjarnasonar um minningu tveggja alda afmælis Jóns Árnasonar. Það má raunar telja með mestu ólíkindum að sú tillaga hafi ekki fengið afgreiðslu, í ljósi þess að hún var lögð fram 1. febrúar, að frestur til að skila inn umsögnum var til 1. mars og að fimm umsagnir, allar jákvæðar, bárust um tillöguna. Þrátt fyrir þetta tókst nefndinni ekki að setja saman álit um málið og því gekk það aldrei til annarrar umræðu. Þrjú málanna sem ekki fengu afgreiðslu voru stjórnarfrumvörp en önnur mál voru þingmanna- mál, ýmist þingmanna stjórnar eða stjórnarandstöðu. Nefndin skilaði áliti í tveimur þeirra. Tvö málanna vöktu verulega athygli og deil- ur, annars vegar áfengisfrumvarp Teits Bjarnar Einarssonar og hins vegar frumvarp Brynjars Níelssonar um refsingu vegna tálmunar á um- gengni við börn. Vilhjálmur nær sínu ekki fram Efnahags- og viðskiptanefnd fékk 27 mál til umfjöllunar og voru 16 þeirra afgreidd frá Alþingi, rétt tæplega einn fimmti hluti. Öll málin ellefu sem eft- ir sátu, utan eitt, voru þingmanna- mál, ýmist þingmanna meirihluta eða minnihluta. Eina málið sem lagt var fram af ríkisstjórninni og ekki fékk afgreiðslu var brottfall laga um lífeyrissjóð bænda. Nefndinni tókst ekki að leggja fram álit í neinu þessara ellefu mála, og þar af leiðandi var ekki hægt að taka þau til frekari um- ræðu í þinginu. Athygli vekur að Vil- hjálmur Bjarnason var iðinn við kolann í vetur og lagði fram fjögur þingmál sem komu til kasta nefndarinnar. Hann hafði hins vegar ekki erindi sem erfiði og ekkert málanna hlaut afgreiðslu frá Alþingi. Fullt hús hjá fjárlaganefnd Fjárlaganefnd bárust þrjú mál og voru þau öll samþykkt. Styr stóð þó um fjármálaáætlun næstu fimm ára og einnig um viðbótarfjármögnun Vaðlaheiðarganga en bæði málin voru samþykkt frá Alþingi. Aðeins eitt af tíu málum Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd bárust tíu mál til umfjöllunar en að- eins eitt þeirra hlaut afgreiðslu Al- þingis, frumvarp forsætisráðherra um fjölgun ráðuneyta. Það verður að teljast fremur slök frammistaða í ljósi þess að nægur tími var til af- greiðslu málanna, öll nema eitt voru komin fram í marsmánuði. Meðal annars lagði Jón Þór Ólafsson fram frumvarp um upplýsinga- og sann- leiksskyldu ráðherra 31. janúar síð- astliðinn. Fjallað var um frumvarpið í nefndinni 3. febrúar og samdægurs sendar út umsagnabeiðnir. Frestur til að skila inn umsögnum var til 27. mars og bárust tvær umsagnir, báð- ar jákvæðar. Nefndin fjallaði hins vegar ekki aftur um málið og var ekki aðhafst frekar hvað það varð- aði. Hin málin átta sem ekki voru af- greidd voru öll þingmannamál, sjö þeirra lögð fram af þingmönnum stjórnarandstöðu en eitt af Pawel Bartoszek, þingmanni Viðreisnar. Nefndin skilaði ekki áliti nema í einu þessara mála, frumvarpi um kosningarétt erlendra ríkisborgara, sem téður Pawel lagði fram. Mál umhverfisráðherra skilin eftir Til kasta umhverfis- og samgöngu- nefndar komu 23 mál og voru ellefu þeirra afgreidd á Alþingi, tæpur helmingur. Öll málin sem hlutu af- greiðslu voru þingmál ríkisstjórn- arinnar en ekkert þingmanna- mál, hvorki þingmanna stjórnar eða stjórnarandstöðu, var afgreitt. Nefndin skilaði einungis áliti í þeim málum sem síðan voru afgreidd. Sex mál ríkisstjórnarinnar sátu einnig eftir óafgreidd, þar af fimm lögð fram af umhverfis- og auð- lindaráðherra. Tíu frumvörp ráð- herrans fengu umfjöllun í nefndinni og var því aðeins helmingur þeirra afgreiddur á Alþingi. Meðal mála sem ekki fengu afgreiðslu voru ný heildarlög um umhverfisstofnun og þingsályktunartillaga um rammaá- ætlun, hvort tveggja mál umhverfis- og auðlindaráðherra. Afgreiddi EES-mál Utanríkismálanefnd skilaði áliti á tíu þeirra þrettán mála sem nefndinni voru send. Öll tíu voru afgreidd á Alþingi, níu þingsálykt- unartillögur sem í öllum tilfellum voru upptökur á viðaukum við EES- samninginn eða fullgilding samn- inga, og í einu tilfelli lagafrumvarp sem sneri að grunnlínupunktum í landhelginni. Ekki tókst hins vegar að klára fullgildingu fríverslunar- samnings EFTA-ríkjanna og Filipps- eyja, þrátt fyrir að nefndin hafi skil- að áliti um málið seint í maímánuði. Hin málin tvö sem eftir sátu voru bæði borin fram af Katrínu Jakobs- dóttur og skilaði nefndin áliti í hvor- ugu málinu. Tæpur fjórðungur afgreiddur 25 málum var vísað til velferðar- nefndar en aðeins sex þeirra voru afgreidd á Alþingi, tæpur fjórðungur. Nefndin skilaði áliti í þremur málum sem ekki hlutu afgreiðslu. Fjögur málanna sem ekki voru afgreidd voru mál lögð fram af félagsmálaráðherra og þrjú þeirra voru lögð fram af heil- brigðisráðherra. Sjö af málunum 19, sem ekki voru afgreidd, voru lögð fram í febrúar og því nægur tími til að fjalla um þau, kalla eftir umsögnum og skila áliti nefndarinnar um þau. Engu að síður gerðist það í engu málanna. Tímaleysi, slugs og vísvitandi hægagangur Svo sem bent var á hér að framan komu mörg mála ríkisstjórnarinnar seint fram sem gerði vinnu í nefnd- um erfiðari en ella. Hins vegar er ekki hið sama að segja um fjölmörg þing- mannamál sem lögð voru fram í febr- úar og mars. Engu að síður var lítið fjallað um mörg þeirra í nefndum og í fæstum tilfellum skiluðu nefnd- irnar áliti í málunum. Það er í valdi formanna nefndanna að taka mál á dagskrá og stýra umfjöllun og vinnu nefndanna. Eins og að framan grein- ir höfðu nefndirnar aðeins skilað áliti í 24 málum af 126 um miðjan maí síð- astliðinn. Þingmenn sem DV hefur rætt við segja tvennt vera meginskýr- inguna á slælegum vinnubrögðum við afgreiðslu málanna. Annars vegar skipulagsleysi formanna, og í ein- hverjum tilvikum varaformanna, nefndanna. Orð eins og slugs voru nefnd í þeim efnum. Hins vegar væru mál vísvitandi svæfð eða dregin á langinn þannig að þau kæmu aldrei út úr nefndum og þar með ekki til at- kvæðagreiðslu í þinginu. Eðlilegt að greiða atkvæði um mál Katrín Jakobsdóttir, formað- ur Vinstri grænna, segir það óþolandi að mál séu í svæfð í löng- um röðum í nefndum Alþingis, eðli- legt sé að fara með þau í atkvæða- greiðslu í þingsal. Þar sé hægt að fá fram lýðræðislegan vilja þing- manna. „Mín skoðun er sú að það eigi að hleypa fleiri málum út úr nefndum og til afgreiðslu í þinginu. Ég held að það sé eðlilegt að Alþingi sýni vilja sinn í málum, þótt það sé meirihlutavilji gegn því að sam- þykkja þau. Það er þá bara eðlilegt að fella mál í atkvæðagreiðslu frekar en að svæfa þau í nefnd. Það er það sem verið er að gera í einhverjum tilfella. Í öðrum tilfellum er auð- vitað sátt um það milli flutnings- manns máls og nefndarmanna að fara þurfi betur yfir málin, sum mál eru þannig vaxin. En oft og tíðum eru þetta bara mál sem hafa verið lögð fram ítrekað. Ég get nefnt þing- mál sem ég hef flutt um uppruna- merkingar á vörum frá hernumdum svæðum í Palestínu, mál sem hefur verið endurflutt lítt eða ekki breytt í nokkur ár. Það væri bara eðlilegt að hleypa því til atkvæðagreiðslu.“ Katrín segir það sína skoðun að breyta eigi vinnubrögðum Al- þingis til að taka á þessum málum. „Hafi fólk í raun og veru áhuga á að breyta þingsköpum, svo sem margir hafa lýst áhuga á, til að mynda for- sætisráðherra, þá þarf auðvitað að styrkja stöðu minnihlutans. Annars vegar þannig að hægt sé að hafa ein- hvern hemil á málum og í því sam- hengi hef ég meðal annars talað fyrir því að þriðjungur þingmanna hefði heimild til að skjóta málum til þjóðarinnar í atkvæðagreiðslu. Hins vegar þarf auðvitað með einhverj- um hætti að styrkja stöðu minni- hlutans innan þingnefnda til að koma málum þaðan og til afgreiðslu þingsins.“ n Innan við helmingur afgreiddur Páll Magnússon er formaður atvinnuveganefndar en nefndin afgreiddi aðeins fjögur þeirra tíu mála sem komu á borð hennar. Mynd SIgTryggur ArI gekk illa Vilhjálmi Bjarnasyni gekk ekki vel að ná fram sínum málum en fjögur þingmála hans voru svæfð í efnahags- og við- skiptanefnd. döpur frammistaða Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, undir forystu Brynjars Níelssonar, auðnaðist ekki að afgreiða nema eitt af þeim tíu málum sem komu inn á borð hennar. Mynd SIgTryggur ArI Helmings árangur Af þeim tíu málum sem Björt Ólafsdóttir, um- hverfis- og auðlindaráðherra, lagði fram og komu til kasta umhverfis- og samgöngunefndar voru aðeins fimm kláruð. Mynd SIgTryggur ArI Vill að greidd séu atkvæði um mál Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir eðlilegt að hleypa málum úr nefndum og til atkvæða- greiðslu í þinginu. Þannig sé hægt að mæla lýðræðislegan vilja þingmanna. Mynd SIgTryggur ArI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.