Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Page 36
Litrík og skemmtileg bæjarhátíð Bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík fór fram í 21. sinn aðra helgina í júní. Blíðskaparveður var alla helgina fyrir utan smá vætu rétt undir lok litaskrúð- göngunnar á föstudag. Bæjarbúar og gestir þeirra á öllum aldri skemmtu sér konunglega og var boðið upp á fjölda smærri og stærri viðburða frá morgni til kvölds alla helgina, frá föstudegi til sunnudags. Bæjarhátíðin var vel sótt líkt og fyrri ár og þrátt fyrir að bæði Kótilettan á Selfossi og Color Run hafi fallið á sömu helgi í ár benda tölur frá Vegagerðinni til að um 40.000 gestir hafi ferðast í gegnum bæinn meðan hátíðin stóð yfir. Grindvíkingar pakka nú saman skreytingum fram að næstu hátíð og þakka gestum kærlega fyrir komuna. Svipmyndir frá Sjóaranum Síkáta Öflug bjÖrgunarsveit Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík er öflug björgunarsveit og sá hún um kappróður, koddaslag, skemmtisiglingu og gæslu á hátíðinni. frumlegasta skreytingin í græna hverfinu 2017 Borgar­ hraun 15, sem Hafsteinn og Grace eiga. appelsínugulir Börn í appelsínugula hverfinu tilbúin fyrir göngu. Myndir Heiða dís Bjarnadóttir allt sem er rautt rautt Hjónin Margrét Magnúsdóttir og Bjarki Guðmundsson, eldrauð og til í helgina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.