Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 40
Litríkt litahlaup slær í gegn - Gung-ho! væntanlegt Color Run fór nýlega fram, þriðja árið í röð, og er ljóst að litríka litahlaupið er komið til að vera. Það er þó ekki eina hlaupaþrautabrautin sem Íslendingar fá að prófa í sumar því Gung-ho! verður haldið í ágúst. Í ár tóku 10 þúsund manns þátt í Color Run og í heildina hafa um 32 þúsund manns tekið þátt. Í hlaupið mætir fólk á öllum aldri, allt frá börnum í kerru upp í fólk á áttræðisaldri,“ segir Davíð Lúther Sigurðarson hjá viðburða- fyrirtækinu Silent.is sem sér um Color Run. „Fólk gengur og skokkar, það er engin tímataka og fólk er að koma og njóta þess að eiga skemmtilegan dag með fjölskyldu og vinum.“ Ný fjölskylduskemmtun í ágúst En Davíð lætur ekki staðar numið við að færa Íslendingum óhefðbundna skemmtun, því næst ætlar hann að bjóða upp á nýja hlaupaþrautabraut, þann 12. ágúst næstkomandi. Hlaupabrautin er fimm kílómetra löng, samanstendur af tíu risavöxnum uppblásnum hindrunum og ber hið skemmtilega nafn Gung-ho!, en nafnið á rætur að rekja til Kína og þýðir samvinna. „Eftir að við fórum af stað með Color Run, sáum við hvað Íslendingar eru tilbúnir að fara í óhefðbundin hlaup og í fyrra fórum við að skoða fleiri möguleika og fleiri hlaup. Þá rákumst við á breska hlaupið Gung-Ho! sem hefur verið haldið þar í þrjú ár og við fórum til Cardiff og tókum þátt. Við vorum hrika- lega ánægðir og skemmtum okkur konunglega. Við buðum Íslendingum sem búsettir eru í Cardiff að taka þátt og prófa með okkur. Niðurstaðan varð sú að þetta var stórkostleg skemmtun og óhefðbundin, þannig að við létum slag standa, sóttum um réttindin meðan við vorum enn þá úti og fengum réttinn til að halda hlaupið á Íslandi og í Skandinavíu,“ segir Davíð. „Við erum að finna besta staðinn á höfuðborgarsvæðinu til að halda hlaupið þann 12. ágúst næstkomandi og erum með nokkra staði í huga. Við þurfum að komast í bæði mikið rafmagn og mikið pláss. Við þurfum gríðarlega stórt svæði, og til dæmis erum við með eina braut sem er 370 fermetrar, aðrar tvær brautir sem eru yfir 250 fermetrar hvor. Í heildina eru þetta tíu brautir og þúsund- ir fermetra sem okkur vantar.“ Íslendingar hrifnir af hlaupaþrautum Tvö fersk Davíð og Greta Salóme hress í Hallar- garðinum. Mynd MuMMi Lú Brugðið á leik Skemmtileg tilþrif eiga heima í litahlaupinu. Mynd Ása/sahara kynnirinn Gleðipinninn Eva Ruza sá um upphitun eins og fyrri ár. Mynd Ása/sahara ásTargúrúinn Það fer enginn í galla Love Guru, sem tróð upp eins og honum einum er lagið. Mynd Ása/sahara fjör fyrir alla Allir eru glaðir og litríkir eftir hlaupið. Mynd Ása/sahara gleðikonungurinn og Tón- lisTargyðjan Sigurður Hlöðversson og Greta Salóme litrík og hress að vanda. Mynd Ása/sahara „selfies“ Myndatökur eru algjört skilyrði í litahlaupinu. Mynd MuMMi Lú enn meiri liTagleði Í litahlaupinu er upplagt að koma með litríka kollu. Mynd MuMMi Lú
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.