Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 43
Reykjavík Foods framleiðir afurðir úr hágæða hráefni
Nýlega setti Reykjavík Foods sínar fyrstu vörur á mark-
að, hægeldaðan lax í dós, en fyrirtækið sérhæfir sig
í að búa til afurðir úr hágæða íslensku hráefni. Af því
tilefni var boðið til fagnaðar á Bryggjunni brugghúsi,
Grandagarði þar sem gestum var boðið upp á að
smakka dýrindis útgáfur af laxinum.
Fyrirtækið var stofnað fyrir ári,“ segir Þórdís Jóhannsdóttir Wathne, framkvæmdastjóri
Reykjavík Foods. „Í þessari fyrstu
vörulínu er notast við hágæða lax frá
Vestfjörðum sem er bragðbættur með
hreinum náttúruafurðum eins og ba-
silíku, hvítlauk, trufflum og sjávarsalti
frá Saltverki. Við byrjum með hreinan
lax, lax með hvítlauki og basil, lax með
trufflum og reyktan lax.“
Vörur Reykjavík Foods hafa fengið
mjög góðar viðtökur og fór svo að
fyrsta sending í verslanir seldist upp, en
vörurnar munu fást í Hagkaup, 10-11
Austurstræti, Borðinu við Ægissíðu
og Fríhöfninni. „Við erum á fullu
að fylla á verslanir auk þess að bæta
við öðrum verslunum,“ segir Þórdís.
„ Vörurnar munu einnig fást í verslun-
um Samkaup og fleiri ferðamannaversl-
unum. Vörurnar hafa jafnframt fengið
alþjóðlega athygli og erum við núna í
viðræðum við
nokkra aðila í
sambandi við
útflutning.“
Myndir: Gunnar Leifur.
Ljúffengur og
spennandi Lax
Gómsætur lax Vinkon-
urnar Karen Kjerúlf og Linda
Baldvinsdóttir voru ánægðar
með boðið og veitingarnar.
alltaf skemmti-
leGur Jón Jónsson
kom og skemmti og
sló í gegn eins og
honum er lagið.
Velkomin Þórdís Jóhannsdóttir Wathne, fram-
kvæmdastjóri Reykjavík Foods, bauð gesti velkomna.
Stórglæsileg og á von á sér í ágúst.
falleGar umbúðir
Vörunum er pakkað í fallegar
og stílhreinar umbúðir.
Í sambandi
Yngri kynslóðin
lék sér í snjall-
símum, meðan
sú eldri spjallaði
saman.
með áhuGa á
sjáVarútVeGi
Hanna Birna Krist-
jánsdóttir, fyrrverandi
innanríkisráðherra og
borgarstjóri, og Þór
Sigfússon, stofnandi
Sjávarklasans.
ljúffenGar
VeitinGar
Gestir, bæði
ungir og aldnir,
gæddu sér á
veitingunum.
Veisluborð Veisluborð og góðir gestir.
GirnileGt Vörustandarnir sem sjá
má hér í bakgrunni eru jafn glæsilegir
og umbúðirnar og laxinn girnilegur.