Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 45

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Qupperneq 45
Í góðum málum 5Helgarblað 16. júní 2017 KYNNINGARBLAÐ M1 ehf. er framsækið fjöl-skyldufyrirtæki sem sinnir almennu fasteignaviðhaldi – öllu því sem viðkemur múr- og steypuviðgerðum, almennu múr- verki og málningarvinnu, bæði inn- an- og utanhúss, endursteiningu og múrklæðningu. Fyrirtækið eiga hjónin Kolbeinn Hreinsson, sem er múrara- og málarameistari, og Helena Hermansen, sem er mál- arameistari og viðskiptafræðingur. M1 ehf. er félagi í Samtökum iðnaðarins. Í kringum átta manns starfa að jafnaði í fyrirtækinu sem hjóna- kornin stofnuðu árið 2010, eftir að hafa lært húsamálun í kjölfar hrunsins 2007. Starfsmönnum fjölgar þó yfir sumartímann og eru þá oft 15–20 manns starfandi auk undirverktaka. Kolbeinn og Helena hafa alltaf unnið sjálf í fyrirtækinu með mannskapnum og fylgst vel með öllu. „Við höfum aldrei viljað vera mjög stór, því við viljum vinna í fyrirtækinu og sjá um verkstjórn. Börnin okkar hafa líka unnið með okkur og er t.d. Sindri verkstjóri við framkvæmdir við Hallgríms- kirkju og Kristín málar með mér á sumrin,“ segir Helena. Kolbeinn hefur unnið við múr- verk síðan um fimmtán ára aldur og hefur því gríðarlega reynslu. „Við leggjum mikla áherslu á að vanda til verks og nota eingöngu viðurkennd efni. Starfsmenn okkar fá líka oft hrós fyrir góða umgengni og framkomu,“ bætir Kolbeinn við. „Svo getum við alveg unnið saman þótt við séum hjón,“ segir Helena og Kolbeinn bætir við: „Einmitt, ég fæ alveg að ráða hvenær ég vaska upp.“ Þau eru bæði sammála um að húmor sé einn mikilvægasti hlekkurinn í vel heppnuðu sam- starfi og nauðsynlegur til að halda uppi góðum starfsanda. M1 ehf. tekur þátt í bæði opnum og lokuðum útboðum á vegum verkfræðistofa og hefur fengið fjölda verkefna gegnum þessi út- boð. Einnig er mikið um að einstak- lingar og húsfélög leiti beint til M1. M1 hefur undanfarið m.a. unnið að eftirfarandi verkefnum: Suðurhlíð 38 „Eldra múrkerfi tókum við af í fyrra, gerðum við allar múr- og steypu- skemmdir, og húsið var svo steinað upp á nýtt. Við tókum einnig allar flísar af svalagólfum og settum dúk og gúmmí- flísar ofan á öll svalagólf, þar sem svalagólfin eru að hluta til loft íbúðarinnar fyrir neðan.“ Sólvallagata 66–68 Húsið er tilbúið að framan. „Við gerðum við fram- hliðina og endursteinuðum hana árið 2012 og klárum bakhliðina í sumar.“ Safamýri 59 „Þar var öll málning tekin af húsinu og gert við allar múr- skemmdir. Síðan var heilfiltað yfir alla steinfleti og loks málað.“ Hallgrímskirkja „Núna erum við að gera við Hallgrímskirkju. Það eru tölu- verðar skemmdir í steypunni og lekavandamál, þá sérstaklega á þökum og stuðlabergssúlunum. Við tókum gamla þakdúkinn og munum setja nýjan,“ segir Kol- beinn. ,,Skemmd steypa er brotin í burtu og gert við járnabindinguna í steypunni áður en endursteypa á súlum hefst, einnig er megn- ið af múrkápunni fjarlægt og ný múrkápa (svokallaður munstur- múr) sett á með sömu áferð,“ bætir Helena við. „Undanfarin ár höfum við einnig séð um málningarvinnu innanhúss í Hallgrímskirkju.“ „Fjölbreytt verkefni eru í gangi hjá okkur í dag og sýna svolítið hvað við erum að fást við dags- daglega Þessi verkefni eru Hall- grímskirkja, Klettaskóli (múrvinna innanhúss), blokk í Álfkonuhvarfi (gluggamálun) og Hraunstígur (viðgerðir, filtun og málun). Auk þess sem mörg önnur verkefni eru á döfinni þetta árið.“ Kolbeinn vill meina að best sé að hafa reglulegt viðhald á húsum enda sé það ódýrast til lengri tíma litið. Það þarf nefnilega að halda viðhaldinu við. „Já, maður sér það núna að kreppan bitnaði töluvert á viðhaldi húsa,“ segir Helena. Það hefur verið nóg að gera hjá hjónakornunum í M1 og útskýrir Helena skilgreininguna á ehf. á skemmtilegan hátt: „Ehf. stendur eiginlega fyrir ekkert helv... frí“ og skellir upp úr. „Það hef ég frá góðri vinkonu minni sem hefur reynslu af því,“ bætir Helena við. Húmorinn er greinilega í lagi hjá þeim báðum. „Við hjá M1 bjóðum einstaklingum og húsfélögum að leita til okkar til að taka út eignir og gera verktilboð í kjölfarið. Ef fólk hefur áhuga á að spjalla við okkur þá mælum við með að það sé gert sem fyrst. Við erum byrjuð að bóka verkefni fyrir sumarið 2018,“ segir Kolbeinn. Hins vegar er viðhaldsvinnan ekki eingöngu bundin við sumartímann, hægt er að vinna megnið af undir- búningsvinnunni yfir veturinn. Því er um að gera að hafa samband sem fyrst við M1 og semja um viðhald á eignum. Hægt er að hafa samband við Kolbein í síma 896-6614 og Helenu í síma 843-3230. Vefpóst er svo hægt að senda á veffangið m1@ simnet.is. Fyrirtækið er staðsett að Marargötu 8, Vogum á Vatnsleysu- strönd. Fjölskyldufyrirtæki í fasteignaviðhaldi M1 EHF.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.