Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Síða 46
6 Í góðum málum Helgarblað 16. júní 2017KYNNINGARBLAÐ Málningarfyrirtækið Litbrigði hefur starfað í rúmlega 20 ár og starfsmenn þess eru þekktir fyrir að veita fagmannlega og lipra þjónustu. Fyrirtækið tekur að sér alla almenna húsamálun auk þess sem það sér bæði um húsgagnamálun og skiltamálun. Sinna stórum sem smáum verkefnum Að sögn Kristjáns Arnars Sveins- sonar málarameistara hefur Litbrigði sinnt fjölbreytilegum ver- kefnum við málningarvinnu í jafnt stórum sem smáum byggingum: „Stundum sér fyrirtækið alfarið um málningarvinnu ákveðinna verkefna en er einnig oft í samvinnu við fyrirtæki og byggingarverktaka sem taka að sér utanhússviðgerðir. Við hjá Litbrigðum höfum að sama skapi málað fyrir fjölda ólíkra fyrirtækja,“ segir Krist- ján og nefnir meðal annars til sögunnar verkefni sem þeir hafa unnið fyrir fjölbýlishús, hótel, heilsuræktarstöðvar, tryggingafélög, verslanir og veitinga- og skemmtistaði. „Lit- brigði þjónustar þó ekki aðeins fyrirtæki heldur tekur líka að sér almennar viðgerðir og málun og fyrir einstaklinga, hvort sem um verkefni innandyra er að ræða eða utandyra.“ Metnaðarfullir starfsmenn „Hjá Litbrigðum starfa tveir löggildir málarameistarar og allir starfsmenn okkar eru samstíga í því að leggja allan sinn metnað í að skila vönduðu verki – og breytir þá engu hvort um er að ræða lítil eða stór verk. Hér á bæ er eingöngu notast við hágæða efni sem henta aðstæðum hverju sinni. Það að láta fagmenn um að vinna verkið tryggir að unnið sé eftir þínum óskum og að vandað sé til verka. Við gerum föst verðtilboð fólki að kostnaðarlausu,“ segir Kristján að lokum og bendir á að á heimasíðu fyrirtækisins sé hægt að taka lit- blindupróf og skoða litahringinn og fróðleiksmola. Það var Newton sem var fyrstur manna til þess að setja litina upp í hring. Til að loka hringnum þurfti hann svo að bæta við einum lit, vínrauðum, en þar er í raun upphaf og endir hringsins. Heimasíða fyrir- tækisins er: www.litbrigdi.is Litbrigði, Vættaborgum 61, 112 Reykjavík. Sími: 697-9000. Litbrigði: Vönduð vinnubrögð fagmanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.