Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Side 4
4 Helgarblað 8. september 2017fréttir Mikill munur á æfinga- gjöldum íþróttafélaga n Dýrt að æfa í Garðabæ n Lægsti frístundastyrkurinn og enginn systkinaafsláttur T alsverður munur er á æf- ingagjöldum íþróttafélaga á höfuðborgarsvæðinu í boltaíþróttunum þremur, fótbolta, körfubolta og hand- bolta. DV fór á stúfana og skoðaði verð í tveimur aldursflokkum hjá nokkrum íþróttafélögum í þessum vinsælu greinum. Úttekin nær til KR og ÍR í Reykjavík, Gróttu á Sel- tjarnarnesi, Breiðabliks í Kópavogi, Stjörnunnar í Garðabæ, Hauka í Hafnarfirði og Aftureldingar í Mos- fellsbæ. Rétt er að geta þess að þessi félög bjóða ekki öll upp á allar þrjár boltagreinarnar. Í úttektinni var skoðað verð fyrir börn sem fædd eru árið 2005 og hins vegar börn sem eru fædd 2009. Munur milli félaganna er lítill í eldri árganginum en er talsverður hjá yngri börnunum. Stjarnan í Garðabæ er oftast með hæstu gjöldin í þessum þremur greinum. Þá sker félagið sig úr að því leyti að Stjarnan er eina félagið sem býður ekki upp á systkinaaf- slátt. Þá er Garðabær það sveitar- félag sem býður upp á lægstu frí- stundastyrkina eða 32 þúsund krónur á ári fyrir hvert barn, sam- anborið við 50 þúsund króna styrki hjá Reykjavíkurborg og Sel- tjarnarnesi. Æfingagjöld segja ekki alla söguna Vetrarstarf íþróttafélaganna er í flestum tilvikum hafið af fullum krafti. Valkostirnir sem standa börnum og unglingum til boða eru gríðarlega margir og fjölbreyttir en kostnaðurinn er æði mismunandi milli félaga. Flestir foreldrar Fótbolti Fótbolti er langvinsælasta íþróttagrein landsins og má búast við því að áhugi barna á þeirri íþrótt muni aðeins aukast í takt við frábæran árangur íslenskra knattspyrnu- landsliða. Æfingagjöldin í fótbolta ná yfir tólf mánaða tímabil en handbolta- og körfu- boltad eildir félaganna eru aðeins starfandi í níu mánuði. Hæstu æfingagjöldin eru hjá Breiðabliki og Stjörnunni fyrir krakka fædda árið 2005, sem eru þá í 5. flokki. Gjaldið er 89.000 krónur á ári hjá báðum félögum en rétt er að geta þess að Breiðablik hefur ekki enn uppfært gjaldskrá sína og því gætu gjöldin þar hækkað. Í boði eru fjórar æfingar í viku hjá öllum félögum en æfingarnar hjá Breiðabliki eru óvenjulangar eða tvær klukkustundir hver. Það má því segja að iðkendur þar fái mikið fyrir peninginn. Lægsta gjaldið fyrir árið er hjá KR í Reykjavík. Árgjald í knattspyrnu fyrir börn fædd árið 2005: 1.–2. Breiðablik - 89.000 krónur 1.–2. Stjarnan - 89.000 krónur 3. Haukar 88.500 krónur 4.–5. Grótta - 87.600 krónur 4.–5. Afturelding - 87.600 krónur 6. ÍR - 75.000 krónur* 7. KR - 72.500 krónur *Haustönn hjá ÍR, alls fjórir mánuðir, kostar 25.000 krónur. Árgjaldið var því áætlað samkvæmt því. KR-ingar eru afar sanngjarnir varðandi æfingagjöld sín í knattspyrnu en félagið býður einnig upp á lægstu gjöldin fyrir börn fædd árið 2009. Grótta er með hæstu gjöldin en Seltirningarnir eru með sama verð fyrir 3.–7. flokk, 7.300 krónur á mánuði. Þá er Stjarnan eins og endranær ofarlega á blaði. Árgjald í knattspyrnu fyrir börn fædd árið 2009: 1. Grótta - 86.700 krónur 2. Stjarnan - 81.370 krónur 3. Breiðablik - 77.000 krónur 4. ÍR - 75.000 krónur * 5. Afturelding - 63.600 krónur 6. Haukar - 62.500 krónur 7. KR - 60.000 krónur Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Systkinaafsláttur íþróttafélaga Útfærsla systkinaafsláttar er yfirleitt á þá leið að afslátturinn er reiknaður af báðum gjöldum en síðan dregst heildarafsláttarsumman af lægra gjaldinu. Íþróttafélagið Haukar í Hafnarfirði skera sig þó aðeins úr. Þar á bæ er fjórða iðkun systkina og allar þær sem á eftir koma ókeypis. Ef forráðamaður á tvö börn sem æfa bæði knattspyrnu og körfubolta þá er fjölskyldan komin með fjórar iðkanir. Fjórða iðkunin er því frí og þær sem á eftir koma og að sjálfsögðu er ódýrasta iðkunin er frí. Breiðablik - 15% afsláttur KR - 12,5% afsláttur ÍR - 10% afsláttur Afturelding - 10% afsláttur Grótta - 10% afsláttur Haukar - Fjórða iðkun frí og allar þær sem eftir koma Stjarnan - Enginn afsláttur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.