Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Page 17
18 umræða
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurvin Ólafsson ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson
aðstoðarritstjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
fréttaskot
512 70 70
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Helgarblað 8. september 2017
Snjalltækjabörnin okkar
H
ér áður fyrr var til siðs að
halda bókum að börnum.
Nú er það hins vegar talið
hluti af því að koma þeim
til manns að rétta þeim snjall-
tækið, strax barnungum. Smá-
börn vappa um meðal okk-
ar, hæstánægð að sjá og glápa á
skjáinn. Þau eru gera það sama
og mamma og pabbi.
Þarna virðist hamingjan þó að
mestu vera á yfirborðinu. Æ fleiri
rannsóknir sýna að kvíði meðal
barna og unglinga fer vaxandi.
Bandarískur sálfræðiprófessor,
sem skrifað hefur bók um þetta
efni, sagði nýlega að snjalltæki
væru mesta ógnin við geðheilsu
ungmenna. Ungmenni nútímans
eru í stöðugu sambandi við aðra
í gegnum tæki og sum eyða meiri
tíma í símanum en með fólki. Allir
kannast við að sjá ungmenni, og
reyndar einnig þá fullorðnu, sitja
saman við borð á veitingastað en
ekki er talast við því allir eru upp-
teknir af snjalltækjunum sínum.
Varla geta þetta talist mjög gef-
andi samskipti.
Í nýlegu sjónvarpsviðtali sagð-
ist sálfræðingur hjá Kvíðamið-
stöðinni ekki muna eftir nokkru
barni, sem þangað hefur leitað,
sem hefur að venju að lesa fyrir
svefninn. Ungmenni hafa hins
vegar flest tamið sér þann sið að
skoða snjalltækið sitt fyrir svefn-
inn og yfirleitt er það einnig fyrsta
verk þeirra þegar þau vakna.
Flest ungmenni eyða
dágóðum tíma í snjalltækjum
sínum, jafnvel nokkrum klukku-
tímum. Fullyrða má að langflest
þeirra eyði ekki svo miklum tíma
í að lesa bækur sér til ánægju.
Vissulega er engin ástæða til að
stimpla snjalltæki sem tæki djöf-
ulsins sem leiði böl yfir eigend-
ur sína og kasti þeim í kvik-
syndi þunglyndis og kvíða. Við
getum hins vegar ekki afneitað
þeim rannsóknum sem sýna að
óhófleg notkun snjalltækja skapi
kvíða hjá ungmennum. Um leið
er erfitt að banna eða takmarka
notkun þeirra. Ef ungmenni fær
tæki í hendur á barnsaldri, sama
tæki og foreldrar þess eyða mikl-
um tíma í, þá er erfitt að hrifsa
það skyndilega af því og segja
notkun þess of neikvæða og
tímafreka. Börnin læra fremur
auðveldlega það sem fyrir þeim
er haft. Þeim er kennt að glápa á
skjáinn á snjalltækjum því það er
einmitt það sem hinir fullorðnu
gera.
Stöðugt er verið að minna for-
eldra á að halda bókum að börn-
um sínum. Og blessunarlega
finnast fjölmargir foreldrar sem
kjósa fremur að sitja með barni
sínu og lesa fyrir það, eða með
því, í stað þess að sýna því snjall-
tækið. Þeir mættu samt vera svo
miklu fleiri. Bóklestur er gefandi
og þroskandi. Hann eflir sam-
kennd, auðgar ímyndunaraflið
og víkkar sjóndeildarhringinn.
Þar er eftir miklu að sækjast. n
Hvað heldur þessi
maður að hann sé?
Samnefnarinn er þessi hreina hægri-
stefna þegar kemur að ríkisrekstri
Ráðherrar Viðreisnar hafa verið að
eiga ágæta spretti upp á síðkastið
Guðmundur Hagalín Guðmundsson um Tómas Guðbjartsson Katrín Jakobsdóttir um ríkisstjórnina – FréttablaðiðJón Steinsson hagfræðingur - eyjan.is
Myndin Töfraveröld Stórurð er fremur aðgengileg náttúruperla undir Dyrfjöllum á Úthéraði. Sífellt fleiri leggja á sig dagsgöngu til þess að njóta þessarar töfraveraldar. mynd SiGTryGGur Ari
„Þeim er kennt að
glápa á skjáinn
á snjalltækjum því það
er einmitt það sem hinir
fullorðnu gera.
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Jónas Kristjánsson talar alltaf
tæpitungulaust og á vefsíðu
sinni, jonas.is, blandar hann
sér í umræðu um vændi og
segir: „Fólk, sem vill stunda
vændi (ekki barnaníð), á að
fá það … Vændi er mjög göm-
ul atvinnugrein og þar geta
orðið til miklar tekjur. Frá-
leitt er að ofsækja fólk fyrir
að stunda það af fúsum og
frjálsum vilja. Sjálfsagt er
að elta uppi alla, sem neyða
fólk til vændis og halda úti
þrælahaldi á því sviði. En
látið vændið sjálft í friði.“
Jónas ver vændið
Eyðibýlastefna
Þorgerðar Katrínar
Haraldur Benediktsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins og
formaður fjárlaganefndar, er
hundóánægður með þær tillög-
ur sem Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir landbúnaðarráðherra hef-
ur komið með varðandi vanda
sauðfjárbænda. Hann dregur
ekki upp fallega mynd og seg-
ir að þær muni valda fækkun
í byggðum landsins og skilja
eftir sig eyðibýli. Í Bændablað-
inu kallaði hann þetta eyðibýla-
stefnu. Í viðtali við RÚV vildi
hann þó heldur draga úr orðum
sínum og sagðist ekki vera að
festa orðið við núverandi land-
búnaðarráðherra. Erfitt er þó að
sjá að svo sé ekki. Andstaða við
tillögurnar innan Sjálfstæðis-
flokks einskorðast ekki við Har-
ald. Nú er að sjá hvort Þorgerð-
ur Katrín mun eiga við ofurefli
að etja og þurfi að draga í land,
eins og virðist vera hlutskipti
Viðreisnar í ríkisstjórnarsam-
starfinu.