Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Blaðsíða 63

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Blaðsíða 63
40 menning Helgarblað 8. september 2017 H vort ræður meiru, áhuga- vert efni eða sterk efnistök, um það hvort hvort bók er vel eða illa heppnuð? Í skáldskap skiptir úrvinnslan lík- lega meira máli. Frábærir stílist- ar geta skrifað skemmtilega um „ekki neitt“. Þó er til lítils að stíla vel ef maður hefur ekkert að segja og því getur bók aldrei verið mjög góð ef hún miðlar ekki áhuga- verðu efni. Að sama skapi fara merkar örlagasögur fyrir lítið ef þær eru illa stílaðar. Þetta nefni ég vegna þess að Með lífið að veði, saga Yeonmi Park, er dæmi um bók þar sem einstakur efniviður hefur ekki fengið þann búning sem hann verðskuldar. Hún leiðir strax í byrjun hugann að bókinni Engan þarf að öfunda sem kom út hér á landi fyrir nokkrum árum og veit- ir, rétt eins og þessi bók, einstaka innsýn í lífið í hinu furðulega al- ræðisríki Norður-Kóreu, þar sem kúgunin á borgurunum nær ekki bara til athafna þeirra og skoðana heldur líka tilfinninganna. Sú bók er eftir blaðamanninn Barböru Demick og byggir á viðtölum við sex flóttamenn frá Norður-Kóreu. Í Engan þarf að öfunda eru dregn- ar upp ógleymanlegar myndir af lífinu í Norður-Kóreu, daglegu lífi fólks, sjúklegri leiðtogadýrkun, ólýsanlegri hungursneyð sem geisaði í landinu í kringum síð- ustu aldamót, rafmagnsleysinu og allsleysinu, skoðanakúguninni og mörgu því sem gerir Norður- Kóreu að súrrealísku ríki í sam- anburði við flest önnur samfélög. Allt þetta birtist á síðum þessar- ar bókar en ekki með eins eftir- minnilegum hætti vegna þess að þessi bók er ekki eins vel skrifuð. Hefur hún þó enn merkilegra efni að geyma en Engan þarf að öfunda því hér er að auki lýst flótta til Kína, hlut- skipti norðurkóreskra flóttamanna í Kína sem flestir verða þolendur mansals, sem og flótta til Suður-Kóreu og hvernig gengur að aðlagast líf- inu í lýðræðisríki eftir að hafa búið í alla ævi í al- ræðisríki sem gegnsýrt er lygi. Þegar Yeonmi Park, sem hér segir sögu sína, kom til Suður-Kóreu, voru margvísleg hug- tök sem okkur þykir sjálfstæð henni fram- andi. Þegar hún var spurð hver væri upp- áhaldsliturinn henn- ar hafði hún ekki hug- mynd um hverju hún gæti svarað. Þegar hún var spurð álits á einhverju hafði hún í fyrstu ekkert fram að færa vegna þess að alla ævi hafði henni verið innrætt að hafa ekki skoðanir. Viðkvæðið að raunveruleikinn sé ótrúlegri en nokkur skáldskap- ur á hér afar vel við. Saga Yeonmi Park lýsir gífurlegum mann- raunum, takmarkalausri illsku ómanneskjulegs kerfis en jafn- framt mannlegri reisn, samheldni og þrautseigju við óbærilegar að- stæður. Bókin geymir margar ótrúlegar, sannar frásagnir. Gallinn er hins vegar sá að þetta einstæða efni hefði þurft miklu betri búning en þennan texta. Yeonmi Park skrifar þessa sögu í samvinnu við Maryanne Vollers, blaðamann og höfund vinsælla drauga- sagna. Annað hvort hefur hin unga Yeonmi Park, sem er ekki rit höfundur, verið of ráðrík við texta- gerðina eða Vollers veldur ekki því hlutverki að færa svo áhrifamikla og óvið- jafnanlega sögu í viðeig- andi búning. Textinn er tilþrifalítill, blátt áfram og þurr. Sagt er frá skelfileg- um mannraunum á tilf- inningasnauðan og jafnvel flatneskjulegan hátt. Efni sem kallar á lifandi stíl og áhrifaríkar orðmyndir er afgreitt með þurri frásögn. Mjög skortir á lifandi svið- setningar af atvikum sem lesendur geta gleymt sér í. Bókin er um 270 blaðsíð- ur en maður fær á tilfinn- inguna að Park sleppi fáu úr sögu sinni. Þetta er of mikið efni á of fáum blaðsíðum. Annað- hvort hefði þurft að sleppa ein- hverju og gera öðru betri skil eða hafa bókina miklu lengri. Um- fram allt hefði bókin þurft að vera miklu betur skrifuð. n Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is Bækur Með lífið að veði Höfundur: Yeonmi Park og Maryanne Vollers Þýðandi: Elín Guðmundsdóttir Útgefandi: Almenna bókafélagið 273 bls. „Efni sem kallar á lif- andi stíl og áhrifa- ríkar orðmyndir er afgreitt með þurri frásögn. Merkilegt efni í fátæklegum búningi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.