Fréttablaðið - 21.10.2017, Side 2
Veður
Hægir vindar og skýjað með köflum,
en norðankaldi og fer að rigna fyrir
austan seinnipartinn, jafnvel slydda
til fjalla. Fremur milt í veðri.
sjá síðu 48
Kemst hvorki lönd né strönd
íþróttir „Ég sat hérna agndofa og
öskraði oft og mörgum sinnum á
sjónvarpið,“ segir Ásta B. Gunn-
laugsdóttir, sem spilaði á sínum
tíma 26 landsleiki fyrir Íslands
hönd og skoraði í þeim átta mörk.
Líkt og fjölmargir aðrir horfði hún
á snilldina sem íslenska kvenna-
landsliðið bauð upp á í Þýskalandi
í gær með stórbrotnum sigri.
Þetta var fyrsti sigur Íslands
á sameiginlegu liði Þýskalands
hjá bæði A-landsliðum karla
og kvenna. Þýska landsliðið er
ríkjandi Ólympíumeistari, átt-
faldur Evrópumeistari, tvöfaldur
heimsmeistari og í öðru sæti á
styrkleikalista FIFA, en þær þýsku
áttu engin svör við stórkostlegum
leik íslenska liðsins.
„Ég hoppaði um húsið og síðustu
þrjár mínúturnar voru alveg að fara
með mann. Þær liðu eins og þrjár
vikur,“ segir Vanda Sigurgeirs-
dóttir en hún spilaði 37 landsleiki
auk þess að þjálfa íslenska kvenna-
landsliðið um tíma. „Ég er stödd á
Hofsósi, og var hérna líka þegar
Ísland vann England á EM karla.
Ég held að þetta sé einhver happa-
staður – það er eitthvað í loftinu
hérna,“ segir hún.
Þegar úrslit eldri leikja eru
skoðuð er ekki oft þar sem lands-
liðið hafði möguleika gegn Þýska-
landi. Einu sinni tapaði liðið 8:0 á
afmælisdegi Vöndu. „Þá voru þær í
betra formi og miklu fljótari. Fyrst
þegar ég spilaði við þær, fékk ég
kantmann á móti mér og ég hugs-
aði með mér; Guð minn góður, hún
var svo fljót.“
Síðan hafa verið stigin stór skref
í kvennaboltanum hér heima. „Í
þessum leik vorum við betri,“ segir
Vanda.
Ásta tekur í sama streng en báðar
hrósa þjálfarateyminu mikið.
„Þetta var rosalega góður leikur og
við vorum bara betri en þær. En ég
var orðin skíthrædd í lokin. En vá.
Mér fannst þetta æðislegt og yndis-
legt á að horfa. Það er eitthvað í
vatninu hér á Íslandi þessa dagana.
Ég leit oft á stöðuna og trúði henni
varla.“
Vanda segir að sigurinn megi
skrifa á Frey Alexandersson lands-
liðsþjálfara og hans teymi. „Mér
fannst stelpurnar spila þennan
leik listavel. Þetta var íslenska bar-
áttan og taktík og þegar það kemur
saman þá gerast góðir hlutir.“
benediktboas@365.is
Lokamínúturnar þrjár
liðu eins og þrjár vikur
Gömlu kvennalandsliðshetjurnar Ásta B. Gunnlaugsdóttir og Vanda Sigurgeirs-
dóttir trúðu varla sínum eigin augum þegar þær horfðu á íslenska landsliðið
vinna það þýska í gær. Báðar lifðu þær sig inn í leikinn með öskri og hoppum.
Ég er stödd á Hofs-
ósi, og var hérna
líka þegar Ísland vann
England á EM karla. Ég held
að þetta sé
einhver
happa staður.
Vanda Sigurgeirs-
dóttir, landsliðs-
hetja
Ásta B. Gunn-
laugsdóttir,
landsliðshetja
Dómsmál Færeysk kona á fertugs-
aldri hefur verið ákærð fyrir tolla-
og vopnalagabrot fyrir að hafa flutt
til landsins í búslóðarsendingu loft-
skammbyssu og riffil.
Skotvopnanna var ekki getið í
afgreiðsluskjölum sendingarinnar
og ekki sótt um tilskilin leyfi. Þar að
auki var konan ekki með gilt skot-
vopnaleyfi hér á landi.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi
birti í Lögbirtingablaðinu í gær
fyrirkall í málinu þar sem ekki hefur
tekist að birta konunni ákæruna.
Er þar tekið fram að hún sé með
óþekktan dvalarstað í Færeyjum.
Konan flutti skotvopnin hingað
til lands í október í fyrra og var
riffillinn af óþekktri gerð og án allra
auðkenna.
Málið verður tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Norðurlands vestra þann
28. nóvember. – hg
Flutti inn byssur
með búslóðinni
Þota þýska flugfélagsins Air Berlin var kyrrsett af starfsmönnum Isavia á Keflavíkurflugvelli á fimmtudagskvöld vegna vanskila. Tveimur snjó-
moksturstækjum var þá lagt fyrir framan og aftan flugvélina og flugstjóra hennar afhent tilkynning um kyrrsetninguna. Mynd/Víkurfréttir
Barátta og framúrskarandi fótbolti skiluðu sögulegum sigri. nordicphotos/Getty
stjórnmál „Við verðum
bara að sjá. Við munum leggja
áherslu á að fá góða niðurstöðu í kosn-
ingunum og þá verður allt auðveldara,“
segir Bjarni Benediktsson, forsætisráð-
herra og formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, um niðurstöður nýs Þjóðarpúls
Gallup sem birtar voru í gær.
Átta flokkar ná manni á þing sam-
kvæmt Þjóðarpúlsinum. Sjálfstæðis-
flokkurinn og Vinstri græn eru nánast
hnífjöfn með fylgi í kringum 23 pró-
sent og fyrirheit um 15 þingmenn
hvor. Hin 33 þingsætin dreifast á sex
flokka.
„Ég er voðalega tregur að fara fram
úr mér og reyni að taka einn dag í
einu núna,“ segir Bjarni inntur eftir
því hvaða möguleika hann telji Sjálf-
stæðisflokkinn eiga á stjórnarmyndun
miðað við þessa könnun.
Þrátt fyrir að fylgi Sjálfstæðisflokks-
ins sé tiltölulega lítið í sögulegu sam-
hengi segist Bjarni bjartsýnn. „Það er
mikill kraftur í Sjálfstæðismönnum og
ég er bjartsýnn á síðustu dagana fyrir
kosningar.“
Bjarni telur kosningabaráttuna hafa
verið að styttast á síðustu árum. „Mér
finnst samtalið við kjósendur miklu
lausara í reipunum þegar það eru tvær
til þrjár vikur til kosninga. Hin eigin-
lega kosningabarátta er að fara fram á
síðustu tveimur vikunum þegar mál-
efnin fara loksins að síast í gegn.“
Samkvæmt könnuninni er Sam-
fylkingin þriðji stærsti flokkurinn
með 13 prósenta fylgi. Píratar koma
þar á eftir og mælast með 11 pró-
sent. Fylgi Miðflokksins mælist 9
prósent, Framsóknarflokks ríflega 7
prósent, Viðreisnar næstum 6 pró-
sent og Flokks fólksins sömuleiðis.
Björt framtíð fær rúmlega 1 prósent
og Alþýðufylkingin 0,5 prósent. – aá
Átta flokkar
inni á þingi
Bjarni
Benediktsson,
formaður sjálf-
stæðisflokksins
2 1 . o k t ó b e r 2 0 1 7 l A u G A r D A G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
2
1
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
7
-4
C
0
4
1
E
0
7
-4
A
C
8
1
E
0
7
-4
9
8
C
1
E
0
7
-4
8
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K