Fréttablaðið - 21.10.2017, Page 8

Fréttablaðið - 21.10.2017, Page 8
Reykjavíkurborg býður til sölu byggingarrétt á Starhaga 1 á föstu verði. Umsókn skal innihalda myndir af húsi, innan og utan, teikningar af flutningshúsi ef til eru, upplýsingar um stærð grunnflatar, mænishæð, aldur húss og núverandi staðsetningu, auk byggingarsögu ef til er. Húsið þarf að falla vel að umhverfinu og vera í svipaðri stærð og nærliggjandi hús í samræmi við ákvæði gildandi deiliskipulags. www.reykjavik.is/lodir Lóð fyrir flutningshús Umsóknarfrestur er til kl. 14:00 miðvikudaginn 1. nóvember 2017 Sjá nánari upplýsingar á vef Reykjavíkurborgar - reykjavik.is/lodir Starhagi 1 - lóð til sölu Samfélag Þýsk börn voru send hing- að til lands í fóstur fyrir um tveimur áratugum í óþökk íslenskra barna- verndaryfirvalda. Tilgangurinn var að brjóta niður allar bjargir þeirra og aftengja þau vondum félagsskap. Stöð 2 sagði frá því á fimmtudags- kvöld að Útlendingastofnun hefur ákveðið að vísa þýskum brotamanni, Marcel Wojcik, úr landi. Marcel hefur búið á Íslandi í rúm 15 ár eða allt frá því að hann var sendur til landsins sextán ára gamall í vistun til fósturforeldra í sveit. Hann hafði fengið dóm í Þýskalandi og var boðið að taka út hluta hans í sveit á Íslandi. Saga Marcels vekur athygli en Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barna- verndarstofu, segir það ekki eins- dæmi að hingað hafi komið börn í vistun frá Þýskalandi. Fyrir um það bil 20 árum, fáeinum árum eftir að Barnaverndarstofa var stofnuð, hafi þeim borist fréttir af því að þýskt einkafyrirtæki hefði ráðstafað börnum í fóstur á nokkur íslensk sveitaheimili. „Það verður að ráði að við förum og könnum þetta. Þetta var tvíþætt. Annars vegar eru nokkrir starfs- menn þessa fyrirtækis sem bjuggu á afskekktum bæ, í Miðfirði minnir mig, með nokkrum þýskum börnum og síðan höfðu þeir komið hluta af þessum börnum í fóstur til bænda á svæðinu,“ segir Bragi. Barnaverndar- stofa hafi talið þetta mjög óheppilegt „Þarna var verið að taka þau út úr sínu þjóðfélagi, flytja þau í einangrun upp í sveit á Íslandi þar sem þau voru eiginlega ósjálfbjarga í harðri náttúru og töluðu ekki neitt tungumál. Þetta var byggt á einhvers konar uppeldis- kenningum um það að brjóta niður allar bjargir þessara einstaklinga þannig að þeir gætu ekki manipú- lerað, gætu ekki strokið og þetta átti að vera leið til að aftengja þá vondum félagsskap, munnsöfnuði og öðru slíku,“ segir Bragi. Barnaverndarstofa hafi hreinlega viljað banna þessa starfsemi á Íslandi. Bragi bendir á að þýska barna- Þýsk börn send í einangrun til Íslands Þýskt einkafyrirtæki sendi börn á íslensk fósturheimili til þess að brjóta niður bjargir þeirra. Bragi Guðbrandsson segir íslensk barna- verndaryfirvöld ekki hafa haft heimild til að banna starfsemina. Ekki var staðið við skilyrði um að flytja börnin aftur til Þýskalands. er fólgið í því að þeim bar að upp- lýsa okkur um hvaða börn kæmu til landsins og hver vandamál þeirra væru. Í öðru lagi gerðum við kröfur um að þeir gerðu samninga við skólastofnanir og tryggðu við- eigandi kennslu. Í þriðja lagi að það yrði gerður samningar til að tryggja þessum börnum viðeigandi heil- brigðisþjónustu og í fjórða lagi að þau myndu greiða fyrir öll inngrip sem þyrfti til af hálfu Íslands. Til dæmis vistun á neyðarvistun Stuðla sem þurfti í einhverjum tilfellum. Þegar þessari dvöl væri lokið ættu þeir að taka þessi börn til Þýskalands en ekki skilja þau hér eftir. Síðan kom í ljós að þeir áttu í basli með að uppfylla þær kröfur og ákvæði sem samningurinn kvað á um,“ segir Bragi. Eftir það hafi starfsemin lagst af. Bragi segist hafa talið að öll þessi þýsku börn hefðu horfið til baka til Þýskalands og hafði ekki hugmynd um tilvist Marcels Wojcik. Bragi þekkir ekki til þess að í dag séu fyrirtæki að gera svipaða samninga og þetta þýska fyrirtæki gerði. „Ég held að það myndi ekki fara fram hjá okkur í dag.“ jonhakon@frettabladid.is Þarna var verið að taka þau út úr sínu þjóðfélagi, flytja þau í einangrun upp í sveit á Íslandi þar sem þau voru eiginlega ósjálfbjarga í harðri náttúru og töluðu ekki neitt tungumál. Bragi Guðbrands- son, forstjóri Barnaverndar- stofu Þýskaland Ísland verndarkerfið sé allt öðruvísi en hið íslenska. Þar hafi einkaaðilum verið falið að taka við börnunum og ann- ast þau og lítið eftirlit hafi verið með afdrifum þeirra. „En þar sem þetta var einkafyrirtæki, þá hafði það sam- kvæmt reglum EES heimild til þess að starfa innan EES-svæðisins. Við höfðum því ekki heimild til þess að banna þessa starfsemi.“ Forstjórinn segir að Barnaverndar- stofa hafi getað gert kröfur til þess að þetta fyrirtæki færi að íslenskum lögum. „Það næst samkomulag um ákveðna tilhögun á þessu dæmi. Það 16 ára gamall þýskur drengur var sendur hingað til lands í vistun í sveit. Forstjóri Barna- verndarstofu segir þýska barnaverndar- kerfið allt öðruvísi en hið íslenska. Einkaaðilum hafi þar verið falið að taka við börnum í vistun. HeilbrigðiSmál „Ég er mjög ánægð- ur með að fá enn eina úttektina og vona að hún skili meiru en allar hinar úttektirnar sem hafa verið gerðar og hafa ekki skilað neinu af hálfu Alþing- is,“ segir Páll Winkel, forstjóri Fang- elsismálastofnunar, um stjórnsýslu- endurskoðun sem Ríkisendurskoðun vinnur nú að um heilbrigðisþjónustu fanga. Ríkisendurskoðun vann skýrslu um skipulag og úrræði í fangelsismálum árið 2010, þar sem bent var á að úrbóta væri þörf. Skýrslunni var fylgt eftir árin 2013 og 2016. Þrátt fyrir að vel- ferðarráðuneytið segðist hafa unnið að úrbótum telur Ríkisendurskoðun lít- inn sjáanlegan árangur af þeim. Þetta kemur fram á vef Ríkisendurskoðunar. Stofnunin hóf forkönnun á heil- brigðisþjónustu fanga í júní síðast- liðnum og niðurstöður hennar benda til að þótt almenn heilbrigðisþjón- usta virðist viðunandi sé úrbóta þörf í geðheilbrigðismálum og áfengis- og vímuefnameðferð. Þá sé almennri stefnumörkun í heilbrigðismálum fanga ábótavant. Því hefur Ríkisendur- skoðun ákveðið að hefja aðalúttekt á heilbrigðisþjónustu fyrir fanga. Páll segir engar úrbætur hafa verið gerðar af hálfu heilbrigðisyfirvalda frá því að fyrsta úttektin var gerð á þessum málaflokki fyrir nokkrum árum. „Það hefur ekkert breyst á þessum tíma. Það eina sem hefur verið gert, er að það hefur verið opnað stórt fangelsi og það er ekki einu sinni búið að bjóða út heilbrigðisþjónustu fyrir það,“ segir Páll. Stefnt er að því að stofnunin birti opinbera skýrslu til Alþingis með niðurstöðum úttektarinnar í mars á næsta ári. – aá Páll vonar að ný úttekt ýti við heilbrigðisyfirvöldum Enginn geðlæknir er á fangelsinu Litla-Hrauni. FréttabLaðið/EyÞór Flogið var með þýsk börn til Íslands og þau send í vist í Skagafirði og Húnavatnssýslu. 2 1 . o k t ó b e r 2 0 1 7 l a U g a r D a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 2 1 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 7 -8 7 4 4 1 E 0 7 -8 6 0 8 1 E 0 7 -8 4 C C 1 E 0 7 -8 3 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 1 2 s _ 2 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.