Fréttablaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 13
Fólk beitir mismunandi strategíum til að takast á við haustlægðir. Sumir byrgja sig
upp af matvörum, slökkva á símum
og horfa á sjónvarpið. Aðrir hanga
yfir netmiðlum og lesa frásagnir af
fjúkandi trampólínum. Sjálfur er ég
í eirðarlausa flokknum. Ég breytist
í algjöran Ómar Ragnarsson þegar
það er stormur úti. Helst vil ég aka
fram og til baka um borgina þegar
það er stormur. Ég var nánast farinn
að sakna þess að hafa ekki fengið
almennilega haustlægð til að keyra
í gegnum þegar það brast loksins
á með dúndrandi lægð um síðustu
helgi.
Þetta er allt sagt í kaldhæðni. Ég hef
ekkert gaman af fárviðri og allra síst
að keyra um í slíku veðri. En það eru
samt örlög mín. Ég þurfti að hendast
út um allan bæ í haustlægðinni.
Það voru afmælisboð og frístundir
og bara hin almenna manía sem
Íslendingar stunda á haustmánuðum
til að spyrna við fótum gegn nátt
úruöflunum. Rosalegast þótti mér að
keyra eftir veginum við Hörpu niðri í
bæ. Það lá drasl eftir öllum veginum,
umferðarkeilur og stórir klumpar úr
framkvæmdunum við Geirsgötuna.
Þetta var stríðssvæði. Ég setti við
vörunarljósin á og svigaði mig fram
hjá hættunum eins og ég væri að spila
andstyggilegan tölvuleik. Ég bjóst
allt eins við því að fá steypustyrktar
járn í gegnum framrúðuna. Þetta var
gothic og gott. Hrolldimmur himinn,
öskrandi vindur og frussandi úrhelli.
Ég leit í baksýnisspegilinn og sá
túrista í Dacia Duster fyrir aftan mig.
Hann var svo skelfdur á svip að ég
næ enn að ylja mér við tilhugsunina.
Hann var nákvæmlega eins á svipinn
og fjölskyldufaðir á ljósmynd sem
hægt er að kaupa við þjónustusvæðið
sem maður gengur í gegnum þegar
maður yfirgefur rússíbana. Augun
voru galopin, munnurinn afmynd
aður og stjarfur og hann hélt í stýrið
með útréttar hendur eins og hann
héldi á víraumluktri sprengju sem
hann hefði fundið í hanskahólfinu.
Auðvitað er þetta rússíbanareið. Ef
hér geisuðu ekki skæðar haustlægðir
þá væri líklega ekkert varið í að búa
hérna. Sumir segja að fortíðin hafi
yfir sér rósrauðan blæ. En þannig er
það ekki hjá mér. Flestar minningar
mínar frá Íslandi eru steingráar. Ég
ólst upp í steingráu skeljasands
klæddu hverfi, borðaði steingráa
kindakæfu inni í steingráa skólanum
mínum og fór svo heim til vinar
míns eftir skóla sem bjó í steingrárri
kjallaraíbúð og settist á steingráan
sófa og spilaði tölvuleiki á steingráa
Nintendo tölvu. Þessi vinur minn átti
steingráa kanínu sem vappaði um
fyrir framan sófann og kúkaði stein
gráum kúkum. Vinur minn bjó einn
með móður sinni en stundum kom
stóra systir hans í heimsókn. Hún
var rauðhærð og öskraði stanslaust.
Það er mín eina minning af henni.
Linnulaus öskur og geðshræring sem
rauf gráa móðuna, eins og chili fræ á
kindakæfubrauðsneið. Yndislegt, eld
rautt brjálæði.
Ég lofa ekki brjálæðið af vanvirð
ingu við þá sem þjást af geðsveiflum,
þeir eiga alla mína samúð og þeirra
reynslu þekki ég innilega og af nánd.
Og líklegast er jafnlyndi farsælasta
leiðin til að lifa lífinu. En ég neita að
trúa að brjálæði sé vanstilling. Það er
hluti af stærra mynstri, það er hluti
af púls í stærra æðakerfi, og það er
hverjum manni ljóst þegar stormur
inn geisar.
Ég átti eitt sinn hvítan Ford Escort
bíl. Þetta var þegar ég var unglingur.
Þetta var kannski ekkert frábær bíll,
Stormur. Dacia Duster. Brjálæðið
Bergur Ebbi
Í dag
en hann dugði til að rúnta um með
vinum mínum sem var mín helsta
iðja þegar ég var nýkominn með
bílpróf. Og í eitt skiptið sat ég með
vinum mínum um miðja nótt fyrir
framan hús eins þeirra og við vorum
að spjalla. Það var stormur úti, en
það var eins og hann væri farinn að
lægja, því allt í einu varð hljótt og
þægilegt í bílnum. Ég man ekki hvað
við töluðum um, en það var mjög
merkilegt, eitthvað frumspekilegt og
gáfulegt að mati 17 ára krakka, en þá
fundum við allt í einu fyrir vindhviðu.
Við nánast sáum hana þar sem hún
flatti niður tré og skilti á veginum
fyrir framan okkur þar til hún sópaði
sér undir bílinn og lyfti honum upp.
Já. Við lyftumst upp! Kannski ekki
nema 10 sentimetra, en nóg til að fá
rússíbanafiðring í magann og adrena
línskot í blóðið. Og það var vá! Það
var „váááááá“ eins og Bubbi Mort
hens myndi orða það. Nóg til að bæta
upp allt steingráa sjoppuhangsið,
steingráu fúlu morgnana, vonleysið
og leiðindin. Við lyftumst tíu senti
metrum nær almættinu. Kannski var
það nóg til bæta upp allt hitt.
Þið afsakið þetta sundurlausa
flæði minninga. En það er nóvember,
kannski skelfilegastur allra mánaða,
en hann er mánuðurinn minn því
ég fæddist þá. Og maður verður að
standa með sínu. Standa með sínu
fólki og sínum minningum.
Ég bjóst allt eins við því að fá
steypustyrktarjárn í gegnum
framrúðuna. Þetta var
gothic og gott. Hrolldimmur
himinn, öskrandi vindur og
frussandi úrhelli.
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18
Jólakökur,Smákökur,Stórar piparkökurtil að skreyta,PipakökuhúsO.m.fl.
JÓLIN ERU
HJÁ OKKUR...
....................................................
www.bjornsbakari.is
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F Ö S T u d a g u R 1 0 . n ó v e m B e R 2 0 1 7
1
0
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
F
-C
B
8
8
1
E
2
F
-C
A
4
C
1
E
2
F
-C
9
1
0
1
E
2
F
-C
7
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K