Fréttablaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 6
2x10
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
Láttu mæla
í þér sjónina
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
S:587 2123
FJÖRÐUR
S: 555 4789
Dómsmál Landsbanki Íslands
áfrýjar dómi í máli sem kona á sjö-
tugsaldri höfðaði gegn bankanum
og vann í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Málið snýst um að konan skrifaði
undir veðskuldabréf sem þáverandi
unnusta sonar hennar hafði gefið út
til Landsbanka Íslands 18. júní 2007
að fjárhæð 1.750 þúsund krónur.
Veð var tekið í fasteign konunnar
í Vogum á Vatnsleysuströnd.
Hún stefndi Landsbankanum og
krafðist þess að felld yrði úr gildi
veðsetning á fasteign hennar og
skuldabréfinu aflýst. Dómari féllst
á kröfur konunnar.
Konan byggði kröfu sína á því
að Landsbankinn hafi brotið gegn
ákvæðum samkomulags um notkun
ábyrgða frá árinu 2001, einkum 4.
grein samkomulagsins. Þá hafi verið
brotið gegn 19. grein þágildandi
laga um fjármálafyrirtæki.
Konan segist ekki hafa fengið
að sjá greiðslumat um lántakann.
Bankinn hefði átt að afhenda upp-
lýsingabækling um ábyrgðir en það
hafi ekki verið gert.
Þá byggði konan kröfuna á því
að hæpið sé að vinna greiðslumat
sama dag og sótt eru um lán. Fjár-
málafyrirtæki beri ábyrgð á því að
upplýsingarnar séu réttar og verði
að afla nauðsynlegra gagna til þess
að matið gefi góða mynd af ætlaðri
greiðslugetu skuldara. Vafasamt sé
að unnt sé að afla gagna á nokkrum
klukkustundum. Ekki hafi verið
veitt heimild til upplýsingaöflunar
með lánsumsókn og því virðist sem
bankinn hafi ekki aflað neinna
gagna. Hann sé þó skyldur til þess.
Þá taldi konan að upplýsingar í
greiðslumatinu hafi verið rangar.
Tekjur hafi verið sagðar of háar.
Þá hafi verið sagt að leigugreiðsl-
ur næmu 25 þúsund krónum á
mánuði en lántaki hafi greitt 100
þúsund krónur í leigu. Benti konan
á að láninu hafi meðal annars verið
varið til að greiða upp skuld vegna
húsaleigu að fjárhæð 444 þúsund
krónur.
Dómurinn kemst að þeirri niður-
stöðu að Landsbankinn og forveri
hans hafi engin gögn varðveitt um
vinnslu og forsendur greiðslumats-
ins. Fjárhæð húsaleigu sé óstaðfest
og forsendur framfærslu ósann-
færandi. Þá sé ekki hægt að segja að
konan hafi haft næg tækifæri til að
kynna sér greiðslumatið. Því beri að
fella veðsetninguna á fasteigninni
úr gildi.
Eins og segir á forsíðu glímir
konan við krabbamein og kveðst
lögmaður hennar undrast að Lands-
bankinn haldi málinu til streitu
með áfrýjun þess til Hæstaréttar.
jonhakon@frettabladid.is
Tengdadóttirin tók lán
út á bjagað greiðslumat
Kona á sjötugsaldri stefndi Landsbankanum til að fá veðsetningu á húsi sínu
aflétt. Veðsett var vegna láns þáverandi unnustu sonar hennar. Héraðsdómur
segir mat bankans á tekjum og framfærslu tengdadótturinnar ósannfærandi.
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á kröfur um afléttingu veðs. FRéttablaðið/Rósa
Skólinn þeirra er í rúst
Grunnskóli þessara tveggja sýrlensku stúlkna í Austur-Ghouta-héraði Sýrlands var í rúst þegar þær skoðuðu hann í gær. Hart hefur verið barist í
héraðinu nýverið eftir að vopnahléssamkomulagi var rift og hafa loftárásir ríkisstjórnarhersins meðal annars eyðilagt skólann. Mannúðarsamtök
vöruðu við því í gær að ástandið í héraðinu væri sífellt að versna og óttast starfsmenn mannúðarsamtaka mjög um öryggi íbúa. NoRdicpHotos/aFp
sVÍÞJóÐ Menningarmálaráðherra
Svíþjóðar, Alice Bah Kuhnke, kall-
aði stjórnendur leikhúsa, meðal
annars Dramaten og Riks teatern auk
óperustjóra Kungliga operan, á sinn
fund eftir að 456 leikkonur sögðu í
grein í Svenska Dagbladet frá nauðg-
unum, öðru kynferðislegu ofbeldi og
kynferðislegri áreitni.
Leikkonurnar greindu frá heimi
þar sem karlkyns leikarar og leik-
stjórar væru hafnir upp til skýjanna
og kæmust upp með það að áreita
samstarfsmenn.
Ráðherrann sagði málið alvarlegt
og að breytinga væri þörf.
Framkvæmdastjóri Kungliga oper-
an, Birgitta Svendén, segir aðgerða-
áætlanir liggja fyrir um hvernig
bregðast skuli við kynferðislegri
áreitni. Nú verði hins vegar að skapa
þannig umhverfi að starfsmenn verði
ekki hræddir við að kæra. Þeir megi
ekki vera hræddir um að missa hlut-
verk við það að samþykkja ekki það
sem er rangt. – ibs
Ráðherra boðar
stjórana á fund
um áreitnismál
alice bah
Kuhnke,
menningar-
málaráðherra
svíþjóðar.
sVeitarstJórnir Bæjarráð Vest-
mannaeyja hafnaði í gær þeirri hug-
mynd eins Eyjamanns að efnt yrði
til íbúakosningar vegna fyrirhugaðs
samnings um rekstur bæjarins á
ferjunni Herjólfi.
„Tilgangur með störfum í bæjar-
stjórn er enda að sameina fólk um
mikilvæg mál frekar en að sundra.
Til að fyrirbyggja misskilning vill
bæjarráð benda bréfritara á að
samkvæmt viljayfirlýsingu sem
kynnt hefur verið er eingöngu
unnið út frá því að Vestmannaeyja-
bær reki Herjólf í 2,5 ár og að skýrt
sé að framlög ríkisins standi undir
kostnaði við reksturinn. Áhættan
er því afar takmörkuð ef samningur
verður yfirhöfuð gerður,“ segir
bæjarráðið. – gar
Íbúar kjósa ekki um Herjólfsmálið
Vestmannaeyingar eiga í viðræðum um yfirtöku á Herjólfi. FRéttablaðið/EyþóR
1.750
þúsund króna lán sem þáver-
andi unnusta sonar öryrkja
tók fyrir tíu árum með veði
í húsi tengdamóðurinnar
hefur dregið langan dilk á
eftir sér fyrir konuna sem
barist hefur við krabbamein.
456 sænskar leikkonur
sögðu í blaðagrein frá
nauðgunum og öðru kyn-
ferðislegu ofbeldi.
1 0 . n ó V e m b e r 2 0 1 7 F Ö s t U D a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a Ð i Ð
1
0
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
F
-D
F
4
8
1
E
2
F
-D
E
0
C
1
E
2
F
-D
C
D
0
1
E
2
F
-D
B
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K